Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 27
reynt hér á landi, en nokkrum árum síðar varð ungbarnasund mjög vin- sælt. Unnur vann með greiningarteymi Miðstöðvar heilsuverndar barna (nú Þroska- og hegðunarstöð) á árunum 1998-2007 en þar fór fram uppbygg- ing á nýrri starfsemi innan Heilsu- gæslunnar, þar sem börn upp að sex ára aldri voru tekin til athugunar, ef þau sýndu frávik í þroska. Unnur var stundakennari við Hjúkrunarskóla Íslands, við Náms- braut í hjúkrunarfræði við HÍ, Tannlæknadeild HÍ og Námsbraut í sjúkraþjálfun við HÍ, sinnti kennslu í líkamsbeitingu og starfstækni, m.a. hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkur- borgar, Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, Tónskóla Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þá hefur hún sinnt handleiðslu sjúkraþjálfaranema og nýútskrif- aðra sjúkraþjálfara. Unnur sat í stjórn Félags ís- lenskra sjúkraþjálfara (nú Félag sjúkraþjálfara) á ýmsum tímum, var m.a. gjaldkeri, endurskoðandi, fulltrúi í skemmtinefnd og í ritnefnd Félagsmiðils FÍSÞ (málgagni sj.þj.). Hún var aðalhvatamaður að stofnun og formaður Áhugahóps um barna- sjúkraþjálfun á árunum 1988-94, sat í stjórn Starfsmannaráðs Land- spítalans 1978-86, var m.a. formaður þess síðustu tvö árin, sat í stjórn Umhyggju, félags til stuðnings sjúk- um börnum í nokkur ár, starfaði með „Frá foreldri til foreldris“ á vegum Þroskahjálpar 1988-92, var einn af stofnfélögum Leikfélagsins Hugleiks 1984 og hefur setið í stjórn þess nokkrum sinnum frá stofnun. Unnur hefur skrifað greinar í ým- is blöð og tímarit, haldið fyrirlestra og námskeið fyrir faghópa og fé- lagasamtök og samdi pésa fyrir Landlæknisembættið og Heilsu- gæsluna 2008: Að verða maður með mönnum. Unnur er eitt af leikskáldum leik- félagsins Hugleiks í Reykjavík og hefur sent frá sér ljóðabókina Það kviknar í vestrinu, auk þess sem ljóð eftir hana hafa birst í safnritum Ljóðahóps Gjábakka, Kópavogi. „Helstu áhugamál mín hafa lengi snúist um leikhús, bókmenntir, ís- lenska tungu og óendanlega mögu- leika hennar, ljóðlist, útivist, náttúr- una og náttúruvernd og síðan golf eftir að ég hætti að ganga í fjöll- unum.“ Fjölskylda Hálfbróðir Unnar samfeðra er Þorfinnur Guttormsson, f. 1.9. 1945, framreiðslumaður. Foreldrar Unnar voru Jakobína Á. Ásmundsdóttir, f. 6.8. 1904, d. 17.8. 1990, en hún rak hálsbinda- gerðina Jaco hátt í hálfa öld, og Guttormur Erlendsson, f. 13.4. 1912 d. 17.7. 1966, hæstaréttarlögmaður og aðalendurskoðandi Reykjavíkur- borgar. Þau bjuggu í Reykjavík. Úr frændgarði Unnar Guttormsdóttur Unnur Guttormsdóttir Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Skrauthólum Einar Magnússon b. á Skrauthólum á Kjalarnesi Katrín Arndís Einarsdóttir verkak. í Rvík Ásmundur Sigurðsson útvegsb. og kennari á Suður-Bár í Eyrarsveit Jakobína Á. Ásmundsdóttir saumakona og iðnrekandi í Rvík Helga Ásmundsdóttir húsfr. á Vallá Sigurður Sigurðsson b. á Vallá á Kjalarnesi Oddný E. Sen kennari Jarþrúður Ásmunds- dóttir húsfr. Pétur Sigurðsson smiður Einar Ásmundsson forstj. Sindra Kjartan Ásmundsson gullsmiður Ásmundur Ásmundsson bakarameistari Jón Sen fiðluleikari Þórarinn Eldjárn b. á Tjörn Ásmundur Arndal Jóhannsson rennismiður Gunnar Valberg Pétursson bílamálari í Rvík Ragnar Einars- son viðskiptafr. Óskar Kjartansson gullsmiður Gylfi Ásmundsson sálfræðingur Þórdís Kjartansdóttir Kjartan Valdimarsson tónlistar- maður Jónas Sen tónlistarmaður og tónlistargagnrýnandi Kristján Eldjárn forseti Íslands Jarþrúður Ásmundsdóttir viðskiptafr. og form. sjálfstæðiskvenna Pétur Gunnarsson rithöfundur Magnús Ragnarsson kórstjóri Hjörtur Þórarinsson b. á Tjörn Signý Sen lögfr. og fyrrv. fulltr. hjá lögreglustjóraembættinu Þórarinn Eldjárn rithöfundur Árni Hjartarson jarðfr. Ingibjörg Hjartard. rithöfundur Hjörleifur Hjartars. tónlistarmaður Hugleikur Dagsson listamaður Sigríður Hrafnhildur Jónsdóttir sendiherrafrú í Austurríki Erlendur Jónsson dr. í heimspeki Sigríður Jóhannesdóttir vinnukona Sveinn Jónsson b. og skipa- smiður í Gufunesi María Sveinsdóttir húsfr. á Breiðabólsstöðum Erlendur Björnsson útvegsb. og hreppstj. á Breiðabólsstöðum á Álftanesi Guttormur Erlendsson lögfr. og aðalendurskoðandi Reykjavíkurborgar Björn Björnsson leiðsögum, útvegsb. og hreppstjóri á Breiðabólsst. Petrína Soffía Hjörleifsdóttir húsfr. á Tjörn í Svarfaðardal Oddný Hjörleifsdóttir húsfr. á Breiðabólsstöðum ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Aðalgeir Pálsson fæddist á Ak-ureyri 18.10. 1934. Foreldrarhans voru Páll Bjarnason, yfirsímvirkjastjóri á Akureyri, og k.h., Aðalbjörg Guðrún Jónsdóttir húsfreyja. Föðurforeldrar Aðalgeirs voru Bjarni Kristjánsson, bóndi á Kambs- stöðum, og k.h, Guðný Þorláks- dóttir, en móðurforeldrar hans voru Jón Jónsson, bóndi á Kjarna, og k.h., Aðalbjörg Hallgrímsdóttir hús- freyja. Eftirlifandi eiginkona Aðalgeirs er Guðfinna Thorlacius, hjúkrunar- fræðingur og hjúkrunarkennari, og eru dætur þeirra Kristjana, arkitekt í Finnlandi; Guðfinna, dósent í jökla- fræði við jarðvísindadeild HÍ, búsett í Reykjavík, og Margrét Th., kenn- ari á Akureyri. Aðalgeir ólst upp á Akureyri, lauk stúdentsprófi frá MA 1953, fyrri- hlutaprófi í verkfræði 1956 frá HÍ og prófi í rafeindaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn 1963. Aðalgeir var verkfræðingur hjá verksmiðjum SÍS á Akureyri 1963- 65, kennari við undirbúningsdeild tækniskóla á Akureyri og við Iðn- skólann á Akureyri frá 1963, yfir- kennari þar 1970, skólastjóri 1978 og aðstoðarskólameistari við VMA 1984-85 og kennari þar 1985-2004. Aðalgeir stofnaði Verkfræðistof- una Delta hf. 1977, sem sinnti ráð- gjöf í raflagna- og lýsingartækni. Hann var dómkvaddur matsmaður og meðdómari í ýmsum málum við sýslumannsembættið á Akureyri. Aðalgeir sat í skólanefnd Iðnskólans á Akureyri 1966-78; í skólanefnd MA 1990-94 og í nefnd Akureyrarbæjar um stofnun Háskólans á Akureyri 1986-87. Hann sat í stjórn Ferða- félags Akureyrar og var virkur í starfi skátahreyfingarinnar frá því á æskuárunum. Hann sat í stjórn st. Georgsgildisins á Akureyri, var gild- ismeistari þess 1969-71 og 1974-77 og sat í stjórn Landsgildis st. Georgsgilda frá 1983-97 og Lands- gildismeistari 1993-97. Aðalgeir lést 11.2. 2016. Merkir Íslendingar Aðalgeir Pálsson 90 ára Svanfríður Steinsdóttir 80 ára Grétar V. Pálsson 75 ára Ása Ágústsdóttir Einar Kjartansson Elsa Þorsteinsdóttir Jóna Hallgrímsdóttir Óli Árni Vilhjálmsson Sölvi Sigurður Kjerúlf Unnur Guttormsdóttir 70 ára Ari Jónsson Ágúst G. Kristinsson Áslaug Hringsdóttir Flemming Jessen Guðrún Sigurjónsdóttir Gyða B. Flóventsdóttir Halldóra Kristinsdóttir Jóhann Már Jóhannsson Sigurður Tómas Sigurbjarnason Sigþór Þorgrímsson Sveinn Leósson Víðir Tómasson 60 ára Bryndís Olgeirsdóttir Elísabet Eygló Jónsdóttir Gréta Hrönn Ebenezersdóttir Guðrún Árnadóttir Jenný Lind Grétudóttir Jófríður Gilsdóttir Júlíus Þór Júlíusson Ólöf Pálína Úlfarsdóttir Sigurbjörn Egilson Vilhelmína Haraldsdóttir Þóra Vigdís Guðmundsdóttir Þórir Kjartansson 50 ára Agnes Vaka Steindórsdóttir Ah Suan Ooi Conor Joseph Byrne Erla Sesselja Jensdóttir Guðmundur Haraldsson Halla Margeirsdóttir Hans Andes Þorsteinsson Inga Margrét Guðmundsdóttir Kailiang Liu Kristján Rafn Gíslason Maria Beatriz Fernandes Ólafur Árnason Snorri Waage Sævar Helgi Geirsson 40 ára Björg Ólafsdóttir Cristian Sandi Guðni Kári Gylfason Gunnar Rúnar Gunnarsson Heiða Sigurrós Gestsdóttir Hilmar Örn Kolbeins Júlíus Guðlaugur Ingason Radoslav Major Róbert Marinó Sigurðsson Sylvía Sigurðardóttir 30 ára Guðbjörg Halldórsdóttir Guðmundur S. Sigurgeirsson Guðrún Jóna Stefánsdóttir Margrét Birna Björnsdóttir Nadine Dias Goto Steinn Rúnarsson Steinsen Svavar Rúnarsson Steinsen Til hamingju með daginn 30 ára Guðmundur ólst upp í Hveragerði, býr í Reykjavík, lauk stúdents- prófi og sveinsprófi í raf- virkjun og starfar hjá Mar- el í Garðabæ. Maki: María Erla Kjart- ansdóttir, f. 1989, blaða- maður. Börn: Sigurgeir Flóki, f. 2012, og Edda Kolfinna, f. 2016. Foreldrar: Sigurgeir Guð- mundsson, f. 1957, og Guðný Gísladóttir, f. 1953. Guðmundur S. Sigurgeirsson 30 ára Guðbjörg ólst upp á Dalvík, býr í Reykjavík, lauk BSc-prófi í sálfræði og leikskólafræði frá HÍ og er í fæðingarorlofi. Maki: Stefán Árnason, f. 1986, gæðastjóri hjá Stolt Seafarm. Synir: Árni Heiðar, f. 2011, og Ívar Helgi, f. 2016. Foreldrar: Ingileif Ást- valdsdóttir, f. 1964, og Halldór Sigurður Guð- mundsson, f. 1959. Guðbjörg Halldórsdóttir 40 ára Heiða ólst upp í Reykjavík, býr þar og er heimavinnandi sem stendur. Börn: Svanur Þór, f. 1999; Gestur Magnús, f. 2000, og Selma Rós, f. 2006. Foreldrar: Þóra Þor- grímsdóttir, f. 1938, fyrrv. skrifstofumaður hjá Líf- eyrissjóði verslunar- manna, og Gestur Jóns- son, f. 1943, d. 2002, loftskeytamaður við Loft- skeytastöðina í Gufunesi. Heiða Sigurrós Gestsdóttir mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.