Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert metnaðarfullur og vilt vera kominn framar en þú ert. Einhver slysa- hætta vofir yfir en hún verður ekki að veru- leika nema vegna flýtis, gremju eða hvat- vísi. 20. apríl - 20. maí  Naut Áform þín um að bæta heimilið eða fjölskylduna munu fá þann stuðning sem þú hefur óskað eftir. Hins vegar myndi hjálpa ef þú vissir að hverju þú stefnir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er eitt og annað sem hvetur þig til varfærni þótt þig langi mest sjálfan til að láta skeika að sköpuðu. Listinn er nánast endalaus. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér finnast sumar persónulegar skoðanir starfsfélaga þinna út í hött. Leyfðu öðrum að njóta sín eins og þú vilt fá að njóta þín sjálfur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er alltaf best að horfast í augu við raunveruleikann og haga orðum og gerðum í samræmi við hann. Nú er eins og allt geti gerst. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það reynir á þig í samstarfi við vinnufélagana. Meiri góðar fréttir: Þú þarft ekki frægð, peninga eða aðdáun einhvers til þess að ráða fram úr því. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhverjir hnökrar koma upp á vinnu- stað og þú þarft að taka á honum stóra þín- um til þess að samstarfið endi ekki með ósköpum. Gerðu það sem þarf til að koma þér í samt lag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er spenna í loftinu varð- andi peninga og sameiginlegar eignir. Gættu þess að skrifa ekki undir neitt sem gæti komið í bakið á þér seinna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú færð góðar hugmyndir í dag um það hvernig þú getur nýtt orku annarra til að gera gagn. En ofmetnastu ekki, því það hefur margur hlotið slæma skrokks- kjóðu af því að sofa á verðinum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þar sem þú elskar ferðalög er upplagt að gera framtíðarplön í þeim efn- um. En þau eru kannski bara merkileg í heimi þess er gerir þau. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það eru margir fúsir til þess að rétta þér hjálparhönd en einhverra hluta vegna vilt þú ekki þiggja aðstoð. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér á eftir að líða mun betur á næst- unni en þér hefur gert að undanförnu. Farðu þér samt í engu óðslega. Áfimmtudaginn orti Páll Ims-land limru um „ástleysi“ – hún var „dapurleg, en svoleiðis eiga limrur ekki að vera“: Hróðný á Harðbalavelli var handfljót að öllu – í hvelli. Hún átti’ ekki mann og aldregi fann ástríku kossanna smelli. Fía á Sandi bætti við daginn eftir: Hún Arnhildur gamla á Eir æfilangt tilbað hann Geir en táldregur aðra sú tæfa og naðra hvern dag alveg þartil hún deyr. Og þann hinn sama dag spurði Sigrún Haraldsdóttir: „Eru ekki allir í bleiku í dag?“: Þegar hún Borghildur bleika BMW einn var að teika, sögðu þær Hanna og Sigríður Anna; sú kann nú alveg að feika. Fía á Sandi kannaðist við hana líka: Þó a ð hún Bogga sé bleik og býsna frumleg í leik segja þær Hanna og Sigríður Anna hún sé fyrir karlmönnum veik. Og nú kom í ljós að Fía þekkti vel til á Harðbalavöllum: Hróðný með hárið sitt smarta hrokkna síða og bjarta var helvíti hress nema hrjáðana stress en þá kunni hún dável að kvarta. „Í björtu hádeginu eftir óþurrk- ana“ var Páll Imsland með hugann hjá Boggu: Flink er hún Bogga bleika brosin sín ljúfu að feika. Margföld er kella og mörg hennar brella. Hún er alltaf eitthvað að meika „Þessar limru kvinnur fara bráð- um að fylla heilt kvenfélag,“ sagði Sigurlín Hermannsdóttir og bætti við „kelin kona“: Mildríður húsfrú á Melum mjög svo var hrifinn af Kelum, það var Þorkell og Hrafnkell og Hólmkell og Rafnkell; hún átti þá alla í felum. Og að lokum Fía á Sandi – „Þessi er ekki ný, en á við núna finnst mér“: Engilráð gamla á Enni og englakroppurinn Benni áttu sér ást sem auðvitað brást þegar Bjarni tók Benna frá henni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Hróðnýju, Arnhildi gömlu og fleiri fraukum Í klípu ÚTLITSDÓMSDAGUR. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „GETIÐ ÞIÐ SENT VIÐGERÐARMANN? ÞAÐ KOMA EINHVER HÁTÍÐNIHLJÓÐ ÚR SJÓNVARPINU.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að breiða yfir og kyssa góða nótt. ÞAÐ ER OF HEITT TIL AÐ HREYFA SIG. FULLKOMIÐ VEÐUR. SJÁÐU! ÞETTA ER GULLNI RIDDARINN VÍÐFRÆGI... ...BRYNVÖRNIN HANS ER ÚR SKÍRA GULLI! MJÖG TILKOMU- MIKIÐ! JÁ... EN EKKI MJÖG HAGKVÆMT! Þessi hattur fer þér illa. Ekkert lát er á íslenska íþróttavor-inu og þegar það eru vonbrigði að vinna „bara“ til silfurverðlauna á Evrópumeistaramóti, eins og hóp- fimleikalandsliðið gerði í Maribor um helgina, sér maður í hvaða hæðir væntingarnar eru komnar. Stöllurnar í liðinu litu þó þrátt fyrir þetta „áfall“ á björtu hliðarnar; það yrði þá bara enn skemmtilegra að endurheimta gullið næst. x x x Boginn er víðar spenntur hátt.Skammt er til dæmis síðan landsliðsþjálfarinn í knattspyrnu karla þurfi að berja fjölmiðlamenn af sér eins og flugur þegar sama spurningin var ítrekað borin upp: „Er þetta ekki bara skyldusigur gegn Tyrkjum?“ Íslenskir knattspyrnumenn eru óvanir að vinna í svona umhverfi og eðlilegt að Heimir Hallgrímsson reyni allt sem í hans valdi stendur til að tóna umræðuna niður. Það verður þó erfiðara með hverjum sigrinum. x x x Ein af hetjum Heimis, Gylfi ÞórSigurðsson, skoraði enn eitt glæsimarkið fyrir Swansea City í ensku úrvalsdeildinni um helgina enda þótt það dygði skammt í æsi- legum leik gegn Arsenal á Emir- ates-leikvanginum. Víkverji fylgdist með leiknum á erlendri sjónvarps- stöð og fóru þulir fögrum orðum um Gylfa og tæknina sem hann býr yfir. Þetta virkar auðvelt en er það þó alls ekki. Sérstaklega með veikari fætinum, þeim vinstri. x x x Talandi um ensku knattspyrnunaog Arsenal þá heyrði Víkverji skemmtilegt viðtal við Bjarna Felix- son, íþróttafréttamann emeritus, í þættinum Bergsson og Blöndal á Rás 2 að morgni síðasta laugardags. Þar kom meðal annars fram að Bjarni er að mestu hættur að fylgj- ast með ensku knattspyrnunni og búinn að snúa sér að þeirri þýsku í staðinn. Það er dapurlegt en Vík- verji skilur þó röksemdir kappans; enska knattspyrnan er orðinn hel- víti mikill bisness. Það er næsta víst! víkverji@mbl.is Víkverji Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. (Sálm.121:5) Við trúum því að fegurðin sé lifandi, sköpuð úr tilfinningum og fulll af lífi. Alveg eins og náttúran sjálf. Til að viðhalda æskuljóma húðar þinnar höfum við tínt saman immortelle, blómið frá Korsíku sem aldrei fölnar. Divine Cream fegrar svipbrigði þín og hjálpar við að lagfæra helstu ummerki öldrunar. Húðin virðist sléttari, *Ánægja prófuð hjá 95 konum í 6 mánuði. Húðin virðist unglegri Mimi Thorisson er franskur matarbloggari. Divine Cream með Immortelle blómum HÚÐUMHIRÐA SKÖPUÐ FYRIR LIFANDI FEGURÐ Kringlan 4-12 | s. 577-7040 L’Occitane en Provence - Ísland

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.