Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópran-
söngkona er aðalskipuleggjandi tón-
listardagskrárinnar Brautryðjendur
sem haldin verður í Salnum í Kópa-
vogi fimmtudaginn 20. október kl. 20
og síðan í Selfosskirkju laugardag-
inn 22. október kl. 16. Þar verður í
tóni, tali og myndum sagt frá þrem-
ur brautryðjendum í óperusöng á Ís-
landi; þeim Maríu Markan, Þuríði
Pálsdóttur og Sigurveigu Hjalte-
sted, en Ingibjörg Aldís er einmitt
sonardóttir Sigurveigar.
Aríur, einsöngsperlur
og dúettar
Ásamt Ingibjörgu Aldísi koma
fram á dagskránni Egill Árni Páls-
son tenór, Sigríður Ósk Kristjáns-
dóttir mezzosópran, Signý Sæ-
mundsdóttir sópran, Hrönn
Þráinsdóttir píanóleikari og svo
Ólafur B. Ólafsson harmonikkuleik-
ari, sonur Sigurveigar, en hann
þekkti allar þessar söngkonur per-
sónulega frá því að hann var barn.
„Signý Sæmundsdóttir verður
kynnir á sýningunni og leiðir gestina
í gegnum feril þessara söngkvenna.
Við vörpum myndum upp á vegg frá
ferli þeirra og syngjum úr söng-
skrám þeirra, bæði aríur, einsöngs-
perlur og dúetta,“ segir Ingibjörg
Aldís. „Fluttir verða m.a. tveir ís-
lenskir dúettar sem amma og María
áttu þátt í að frumflytja og Íslenskir
tónar gáfu út á sínum tíma. Annar
dúettinn er Blikandi haf, sem amma
frumflutti með Sigurði Ólafssyni
hestamanni og söngvara 1953 og við
Egill Árni ætlum að flytja, hinn er
Við eigum samleið, sem María frum-
flutti með Sigurði 1955 og þau Egill
Árni og Sigríður Ósk munu syngja.“
Metrópólitan og Þjóðleikhúsið
Ingibjörg Aldís segir að fjallað
verði um söngkonurnar í þeirri röð
sem þær komu fram á sjónarsviðið í
söngnum.
„María var elst, Þuríður var fjór-
um árum yngri en amma, en ferill
hennar hefst samt miklu fyrr. Amma
var búin að eiga fjögur börn og alveg
að verða þrítug þegar hún sló í gegn
með laginu Blikandi haf. Þá fór hún
á flug í klassíska söngnum. Kennar-
inn hennar Sigurður Demetz, hafði
mikla trú á henni, sem varð til þess
að hún fór út í nám til Salzburg og
München.“
María Markan starfaði stærstan
hluta ferilsins erlendis. Hún söng
mikið í Þýskalandi en ferðaðist líka
til Ástralíu og Kanada, þar sem hún
söng á tónleikum og í útvarpi. Hún
endaði svo á Metropolitan í New
York og varð fyrsti íslenski söngv-
arinn til að fá samning þar.
„Þuríður átti hins vegar feril sinn
hér heima eins og amma, en Þuríður
er t.d. á meðal stofnenda Íslensku
óperunnar. Þær amma voru í óperu-
sýningunum sem haldnar voru í
Þjóðleikhúsinu áður en Íslenska
óperan var stofnuð. Þær voru þar í
fremstu víglínu úrvalssöngvara og
sungu saman í mörgum sýningum í
Þjóðleikhúsinu.“
Heyskapur og óperusöngur
Ingibjörg Aldís segir að vissulega
hafi þær allar verið mjög miklar dív-
ur, þótt persónuleikar þeirra hafi
verið mjög ólíkir.
„Þær voru allar mjög sterkar kon-
ur sem áorkuðu miklu og áttu glæsi-
legan feril. Bæði amma og Þuríður
voru með stórar fjölskyldur og börn
og samt á kafi í að syngja og fóru
síðar á fullt í kennsluna. Amma var
mikil húsmóðir og stóð heimilisvakt-
ina uppi í Fagranesi við Vatnsenda
en vílaði ekki fyrir sér að grípa hríf-
una ef mikið lá við í heyskap áður en
hún stökk upp í Landleiðavagninn
og fór niður í Þjóðleikhús og söng
heila óperusýningu eins og ekkert
væri. Stundum eftir óperusýningar
að vetrinum hljóp hún niður á torg
til þess að ná Lækjarbotnavagninum
og óð svo mjöllina fjóra kílómetra
frá Rauðavatni og heim í kolvitlausu
veðri svo varla sá út úr augum.
Þetta myndu nú ekki allir gera í
dag.“
Augljóst má vera að margir
aldurshópar geta haft gaman af
þessari dagskrá.
„Það er auðvitað gaman fyrir fólk
sem man eftir þessum söngkonum
að rifja upp þessi lög og þennan
tíma. En í dagskránni felst einnig
heilmikill fróðleikur fyrir yngri kyn-
slóðir söngvara og tónlistarfólk til að
kynnast þessum merkilegu konum.
Það er svo mikilvægt að við vitum
hvað þessar konur gerðu fyrir tón-
listarlífið hér í landinu. Þær voru
ekki einu brautryðjendurnir en voru
í hópi þeirra og eru hluti af tónlistar-
sögunni,“ segir Ingibjörg Aldís að
lokum.
Úr söngskrám óperudíva
Þær voru meðal brautryðjenda í flutningi óperutónlistar á Íslandi María, Þuríður og Sigurveig
voru sterkar konur sem mörkuðu spor sín í íslenska tónlistarsögu og nú skal sungið þeim til heiðurs
Morgunblaðið/Golli
Aðstandendur tónleikanna Hrönn Þráinsdóttir, Signý Sæmundsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Ingibjörg Al-
dís Ólafsdóttir, Egill Árni Pálsson og Ólafur B. Ólafsson sem er sonur Sigurveigar og þekkti hinar tvær vel líka.
Dívur Þuríður Pálsdóttir og Sig-
urveig Hjaltested í Þjóðleikhúsinu
árið 1966 að syngja Ævintýri Hoff-
mans eftir Offenbach.
Dáð María Markan átti á sinni tíð
glæsilegan feril sem söngkona.
Frisland Goð
viðhafnar útgáfa
Hraun skífa með ösku
úr Eyjafjallajökli
Rispufrítt safírgler
Handútskorið í
fornum víkinga
stíl og höfðaletri
Handsaumuð ól
úr hákarlaskinni
Svissneskt hágæða
sjálftrekkt gangverk
www.gilbert.is
Hjartasteinn, fyrsta kvikmynd Guð-
mundar Arnars Guðmundssonar í
fullri lengd, vann til þrennra verð-
launa í aðalkeppni kvikmyndahá-
tíðarinnar í Varsjá í Póllandi. Guð-
mundur Arnar var valinn besti
leikstjórinn, Baldur Einarsson
hlaut sérstök dómnefndarverðlaun
fyrir leik sinn í myndinni og mynd-
in vann til Kirkjuverðlauna hátíðar-
innar. Engin önnur mynd hlaut jafn
mörg verðlaun á hátíðinni í ár.
Dómnefnd Kirkjuverðlaunanna (e.
Ecumenical Award) hafði eftirfar-
andi að segja um ástæðu valsins:
„Verðlaunin eru veitt ekki aðeins
vegna listrænna gæða myndar-
innar, heldur einnig andlegra og
mannlegra þátta hennar. Myndin
sýnir á víðtækan hátt erfiðleika
æskunnar í óblíðri náttúru af-
skekkts íslensks þorps. Mikilvægur
þáttur myndarinnar er hvernig hún
sýnir á lágstemmdan hátt getu
mannsins til að vaxa og þroskast.“
Guðmundur Arnar var við-
staddur hátíðina og veitti verðlaun-
unum viðtöku. Sigursæl stuttmynd
Guðmundar Arnars, Hvalfjörður,
var valin besta leikna stuttmyndin á
kvikmyndahátíðinni í Varsjá árið
2013.
Hjartasteinn „Mikilvægur þáttur myndarinnar er hvernig hún sýnir á lág-
stemmdan hátt getu mannsins til að vaxa og þroskast,“ segir dómnefnd.
Hjartasteinn hreppti
þrenn verðlaun í Varsjá