Morgunblaðið - 18.10.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016
Katrín Axels-
dóttir flytur er-
indið Orðasaga í
dag kl. 12.05 í
fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns
Íslands. Katrín
er höfundur
bókarinnar Sög-
ur af orðum
(2014). Bókin er
doktorsritgerð
hennar og fjallar um beygingar-
sögu nokkurra orða og orðahópa,
einkum fornafna, sem eiga það
sameiginlegt að hafa tekið miklum
breytingum frá elsta skeiði í ís-
lensku – máli sem er frægt fyrir
íhaldssemi, ekki síst hvað varðar
beygingu orða.
Erindi um orðasögu
Katrín
Axelsdóttir
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Kvikmyndatökumaðurinn Arnar
Þórisson var tilnefndur sem besti
tökumaðurinn á lettnesku kvik-
myndaverðlaununum. Tilnefninguna
fékk hann fyrir vinnu sína við Mellow
Mud, eða Es esmu šeit. Myndin var
valin sú besta á hátíðinni og hlaut
einnig nýverið Kristalbjörninn fyrir
bestu myndina í flokknum Genera-
tion 14Plus á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Berlín. Myndinni
var leikstýrt af Renars Vimba en að-
koma Arnars að verkefninu er til
komin vegna þess að upphaflega stóð
til að meðframleiðendur yrðu ís-
lenskir. „Leikstjórinn kom hingað til
lands árið 2013 og ræddi við nokkra
kvikmyndatökumenn. Hann fann svo
það sem hann leitaði að hjá mér. Á
endanum varð ekkert úr meðfram-
leiðslunni. Þá vorum við hins vegar
búnir að skjóta svokallaðan „teaser“
og okkur leikstjóranum var orðið vel
til vina og þá ákvað hann að ráða mig
samt. Því endaði ég sem eini íslenski
starfsmaðurinn,“ segir hann.
Rík kvikmyndagerðarhefð er í
Lettlandi og þaðan komu kvik-
myndagerðarmenn á borð við Sergej
Eisenstein og Edouard Tisse sem
Arnar segir að séu ein helsta ástæða
þess að hann fékk áhuga á kvik-
myndagerð. „Við höfum alltaf talið
þá vera Rússa en þeir eru fæddir í
Lettlandi. Kvikmyndatökufélagið
þar er frá því á 3. áratug 20. aldar,“
segir Arnar sem er uppnuminn af
fagmennsku þeirra sem starfa í lettn-
eskum kvikmyndaiðnaði.
Hann var viðstaddur þegar lettn-
esku kvikmyndaverðlaunin voru af-
hent en auk þess að fá verðlaunin fyr-
ir bestu mynd fékk hún einnig
verðlaun fyrir besta handrit, þá var
hún einnig söluhæsta kvikmyndin í
Lettlandi á árinu.
Myndin slær á streng
Í stuttu máli snýr söguþráður
myndarinnar að systkinum, 17 ára
stúlku og 12 ára strák, sem skilin eru
eftir í forsjá ömmu sinnar í lettneskri
sveit. Faðirinn er látinn en móðirin
heldur til London í leit að betra lífi og
endar á því að yfirgefa börnin sín.
Eftir að amman lætur lífið ákveða
börnin að fela dauða hennar í því
skyni að innheimta áfram bætur frá
ríkinu. „Þetta slær ákveðinn streng
hjá mörgum í austantjaldslönd-
unum,“ segir Arnar.
Hann segir að í heild hafi hann
dvalið í Lettlandi í um sex mánuði í
tökuferlinu en myndin var tekin upp
árið 2014 í fimm hlutum. Samskipti
fóru að mestu fram á ensku en að
auki lærði Arnar lettneskt tæknimál.
„Tökur fóru að mestu fram í sveitum
og það var framandi, meira að segja
fyrir marga Letta sem höfðu bara al-
ist upp í Riga, höfuðborginni. Þar er
rússneska töluð í meira en helmingi
tilfella og fullt af fólki sem hætti aldr-
ei að vera Rússar,“ segir hann.
Jákvæðni í garð Íslendinga
Að sögn Arnars fékk hann mikla
og jákvæða athygli fyrir það eitt að
vera Íslendingur. Ástæðan er sú að
Íslendingar voru fyrstir þjóða til þess
að viðurkenna sjálfstæði Letta.
Af þeim sökum fór hann í nokkur
sjónvarpsviðtöl auk þess sem rætt
var við hann í útvarpi.
Mest var rætt um viðurkenningu
Íslendinga á sjálfstæðinu en einnig
hvernig stæði á því að hann væri
staddur þarna. „Í rauninni erum við
kvikmyndagerðarfólk eins og sí-
gaunaþjóð og ég rak mig á það að
þarna voru sömu týpur og ég kynnt-
ist í Bandaríkjunum og Evrópu þar
sem ég hef búið. Þetta er lítill sí-
gaunaflokkur sem vinnur allur sína
sérhæfðu vinnu eilítið afskiptur frá
umheiminum. Nú á ég þarna góða
vini og myndin var sýnd þrisvar á
Riff-hátíðinni. Við vorum t.a.m. sam-
an með Q & A (spurt og svarað),“
segir Arnar.
Á slóðir átrúnaðargoða
Arnar Þórisson var tilnefndur til lettnesku kvikmyndaverðlaunanna Rúss-
nesku átrúnaðargoðin reyndust lettnesk Í sjónvarpsviðtöl vegna þjóðernisins
Mellow Mud Á frummálinu heitir myndin Es esmu šeit sem mætti þýða sem Ég er hér. Alþjóðlegur titill mynd-
arinnar er hins vegar Mellow Mud. Myndin vann á dögunum til lettnesku kvikmyndaverðlaunanna.
Að störfum Arnar er hér til hægri ásamt leikstjóranum Renars Vimba við
tökur á myndinni í Lettlandi. Arnar var hálft ár í Lettlandi við tökur.
Heimur í brotum: GKS 1812 4to og
alfræði miðalda er yfirskrift alþjóð-
legrar ráðstefnu sem haldin verður
í Viðey á fimmtudag og föstudag.
Til hennar er boðið þrettán fyr-
irlesurum af ólíkum sviðum mið-
aldafræða – handritafræði, list-
fræði, latínu, heimspeki,
stærðfræði, stjörnufræði og landa-
fræði – til þess að fjalla um hand-
ritið og efni þess frá ólíkum sjón-
arhornum.
Ráðstefnan er haldin í tilefni af
því að öld er liðin frá því að íslensk-
ir alfræðitextar frá miðöldum voru
gefnir út undir heitinu Alfræði ís-
lenzk I–III. Bindin þrjú komu út á
árunum 1908-1918 á vegum Sam-
fund til udgivelse for gammel nord-
isk litteratur. Það var danski fræði-
maðurinn Kristian Kålund sem bar
hitann og þungann af útgáfunni, en
við útgáfu annars bindis (1914-16) –
þar sem einkum eru prentuð rímtöl
– naut hann fulltingis Svíans Nat-
anaëls Beckman.
Eitt mikilvægasta handritið sem
þeir Kålund og Beckman notuðu
við útgáfuna er GKS 1812 4to og á
ráðstefnunni verður sjónum beint
sérstaklega að því. Handritið var
um langt skeið varðveitt í Konungs-
bókhlöðu í Kaupmannahöfn en var
afhent Íslendingum árið 1984 í sam-
ræmi við samkomulag sem gert var
um lausn handritamálsins. Elsti
hluti handritsins er frá því um
1190-1200.
Morgunblaðið/Kristinn
Viðey Miðaldafræðingar munu leggja eyna undir sig síðar í vikunni.
Miðaldafræðingar
koma saman í Viðey
Allt fyrir gluggana
á einum stað
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is - mán-föst 10-18 - lau 11-15
INFERNO 8, 10:30
MIDDLE SCHOOL 6
MAGNIFICENT 7 9, 10:30
BRIDGET JONES’S BABY 8
FRÖKEN PEREGRINE 6
STORKAR 2D ÍSL.TAL 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ