Morgunblaðið - 07.11.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
Áætlað er að halda bæjarstjórnar-
fund í Grindavík á morgun þar sem
starfslokasamningur við Róbert
Ragnarsson bæjarstjóra verður tek-
inn fyrir. Fundurinn verður lokaður
og er ástæða þess sögð sú að á hon-
um verða lögð fram trúnaðargögn.
Marta Sigurðardóttir, bæjar-
fulltrúi fyrir Samfylkinguna, stað-
festi þetta við Morgunblaðið og
gagnrýnir um leið að fundurinn
verði haldinn fyrir luktum dyrum.
Langur aðdragandi að baki
„Samkomulag á milli bæjarstjóra
og meirihlutans um starfslok liggur
fyrir,“ sagði hún og bætti við að
bæjarstjóri og meirihluti í bæjar-
stjórn Grindavík-
ur, þ.e.
Sjálfstæðis-
flokkur og Listi
Grindvíkinga,
hefðu unnið að
starfslokasamn-
ingnum í langan
tíma.
„Það hefur því
verið ljóst í nokk-
urn tíma í hvað
stefndi en þetta hefur tekið lengri
tíma en menn bjuggust við,“ sagði
hún.
Þá gagnrýnir Marta þá ákvörðun
að loka fundinum. „Það er ekki verið
að ræða brot í starfi eða eitthvað í
þá áttina. Því finnst mér eðlilegra að
þetta mál sé rætt á opnum fundi svo
íbúar Grindavíkur viti hvernig að
þessu er staðið,“ sagði hún.
Róbert vildi sjálfur ekki staðfesta
við blaðið að starfslok hans yrðu til
umræðu á fundinum á morgun. „Ég
get í raun ekki sagt neitt um þennan
fund því ég mun sjálfur ekki sitja
hann,“ sagði Róbert.
Þá kemur fram á vefnum Grinda-
vik.net að Róbert hafi í lok síðasta
mánaðar tilkynnt samstarfsmönnum
sínum að hann væri að hætta störf-
um fyrir bæinn. Spurður út í það
sagði hann það ekki vera rétt. „Nei,
ég hef ekki tilkynnt starfsfólki það,“
sagði hann. khj@mbl.is
Starfslokasamningur tek-
inn fyrir á lokuðum fundi
Bæjarstjórn Grindavíkur kemur saman á morgun
Róbert
Ragnarsson
Sigurður Bogi Sævarsson
Kristján H. Johannessen
„Sem annar stærsti flokkur lands-
ins og ábyrgt stjórnmálaafl getum
við ekki skellt í lás á fyrir fram
ákveðna flokka í stjórnarmyndunar-
viðræðum,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, oddviti Vinstri grænna í
Norðausturkjördæmi og fyrrver-
andi formaður flokksins.
Í yfirstandandi viðræðum hefur
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, rætt við for-
menn allra flokka. Þau Bjarni og
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,
töluðu saman síðastliðinn fimmtu-
dag.
„Við höfum auðvitað talað mjög
skýrt fyrir samstarfi til vinstri og
alveg eins og ég mæti á þennan
fund erum við alltaf tilbúin að
hlusta,“ sagði Katrín í samtali við
mbl.is fyrir helgina.
Steingrímur J. Sigfússon segist í
öllu vera sammála þeim sjónar-
miðum sem Katrín Jakobsdóttir
hefur sett fram eftir kosningar.
„Mér finnst líklegt að viðræður
um myndun ríkisstjórnar gætu tek-
ið talsverðan tíma, því fulltrúar
sumra flokka fara bratt í hlutina og
ætla sér greinilega stóra hluti. Ef
þetta fer svo að flækjast mikið
munum við í VG sjálfsagt ekki skor-
ast undan ábyrgð þó að áherslur
okkar og Sjálfstæðisflokksins séu
fjarlægar hvor annarri. Okkur í VG
væri heldur enginn vandi á höndum
í stjórnarandstöðu gagnvart
væntanlega veikum stjórnarmeiri-
hluta. Katrín hins vegar heldur á
þessum viðræðum og sjálfur er ég
afar sáttur við að vera kominn á
hliðarlínuna,“ segir Steingrímur.
Katrín Jakobsdóttir sagðist í
samtali við Morgunblaðið í gær
ekki hafa heyrt neitt frá Bjarna ný-
lega.
„Ég hef nú bara aðallega heyrt í
þeim fjölmörgu fjölmiðlamönnum
sem hafa verið að hringja í mig.“
Telur VG ekki
geta skellt
í lás fyrir fram
Steingrímur J. segir myndun ríkis-
stjórnar geta tekið talsverðan tíma
Steingrímur J.
Sigfússon
Katrín
Jakobsdóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þegar við náðum sambandi við
Neyðarlínuna, sem fann nákvæma
staðsetningu, vorum við hólpnir. Við
héldum því kyrru fyrir á sama stað,
og eftir nokkra
klukkutíma komu
björgunarmenn,“
segir Valdimar
Gunnar Sigurðs-
son, en um kl. 14 í
gær fundu björg-
unarsveitarmenn
hann og systur-
son hans, Daða
Rúnar Jónsson.
Höfðu þeir þá
verið villtir og
týndir á rjúpnaveiðum á fjöllum á
Snæfellsnesi í um sólarhring.
Valdimar og Daði Rúnar lögðu upp
frá Slitvindastöðum í Staðarsveit á
sunnanverðu Snæfellsnesi á laugar-
dagsmorgun og um kl. 14.30 ákváðu
þeir að snúa aftur til byggða.
Slökkt á farsímum
„Við töldum okkur á réttri leið til
baka en þegar við komum að þver-
hníptu bjargi og háum fossi sem við
höfðum ekki séð vissum við að leiðin
væri ekki rétt. Snerum því við en
komum aftur í landslag sem við
þekktum ekki áður og héldum því aft-
ur til baka,“ segir Valdimar.
Þegar hér var komið sögu var orð-
ið dimmt og ákváðu frændurnir þá að
láta fyrir berast undir háum steini.
„Við héldum um hvorn annan til þess
að halda hita og sofnuðum aldrei,“
segir Valdimar. Rétt fyrir klukkan
eitt um nóttina urðu þeir Daði Rúnar
varir við þegar þyrla frá Landhelgis-
gæslunni flaug yfir og ætluðu að þá
myndu þeir finnast með hitamynda-
vél, sem ekki tókst. „Við höfðum
slökkt á símunum til að spara raf-
hlöðurnar. Okkar feill var sá að halda
að eigi að síður næði þyrlan að nema
boð frá símanum. Síðar um nóttina
heyrðum við líka hundgá og töldum
okkur sjá björgunarsveitarmenn í
nokkurri fjarlægð, en samt svo langt
frá að við hefðum aldrei náð til þeirra
og þokan var líka alveg svört,“ segir
Valdimar.
Einstakar hetjur
Það var svo um klukkan tíu í gær-
morgun, þegar bjart var orðið, sem
frændurnir komust í gott farsíma-
samband og gátu gert viðvart. Þá
voru þeir í hlíðum Gráborgar, ofan
Hestdala sem ganga inn af Kolgrafa-
firði norðanvert á Snæfellsnesinu.
Þangað fór björgunarsveitarfólk, en
alls um 200 manns komu að aðgerð-
um, sem voru erfiðar á alla lund.
„Við vorum alveg búnir á því,
blautir og hraktir. Björgunarsveitar-
mennirnir, þessar einstöku hetjur,
komu okkar strax í skjól, voru með
þurr og hlý föt og fylgdu okkur svo til
byggða,“ segir Valdimar, sem ásamt
Daða Rúnari var í skoðun og til eftir-
lits á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi
þegar Morgunblaðið ræddi við hann í
gærkvöldi.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Stjórnstöð Um 200 björgunarsveitarmenn komu að aðgerðum á Snæfellsnesi, sem voru um margt mjög erfiðar.
Vorum blautir, hraktir
og alveg búnir á því
Rjúpnaskyttur týndar í sólarhring á fjöllum á Snæfellsnesi
Leit að rjúpnaskyttum
KO
LG
RA
FA
FJÖ
RÐ
UR
Slitvindastaðir
í Staðarsveit:
Leggja af stað
að morgni 5. nóv.
Gráborg ofan
Hestadala:
Finnast um
kl. 14 6. nóv.
×
×
Lo
ft
m
yn
di
re
hf
.
Valdimar Gunnar
Sigurðsson
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Samninganefndir Félags grunn-
skólakennara og Sambands
sveitarfélaga munu hittast á fundi
í dag.
Ólafur Loftsson, formaður Fé-
lags grunnskólakennara, segir að
samninganefndin hafi nýtt helgina
til funda með baklandi sínu. „Við
höldum svo til fundarins og sjáum
hvað við komumst langt með
þetta. Við erum með ákveðið efni í
höndunum og það eru öll efni til
að ná þessu saman á fundinum,“
segir Ólafur.
Kennarar hafa í tvígang fellt
kjarasamning við Samband ís-
lenskra sveitar-
félaga.
Fyrst felldu
þeir samning
sem samninga-
nefnd Félags
grunnskóla-
kennara bar
undir atkvæði
þeirra í byrjun
júní með ríflega
72% greiddra atkvæða.
Í seinna skiptið var samningur
felldur í byrjun september. Þá
greiddu rúmlega 57% atkvæði
gegn samningnum. jonth@mbl.is
Ólafur Loftsson
Segir að öll efni standi til
að ná samningi í dag