Morgunblaðið - 07.11.2016, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hlustaðu á röddina innra með þér
sem segir að tími sé kominn til að slaka á. Ef-
astu ekki um hæfileika þína sem þér eru
gefnir.
20. apríl - 20. maí
Naut Það hefnir sín síðar að stinga höfðinu í
sandinn og halda að öll vandamál séu þar
með úr sögunni. Haltu þínu striki og þá mun
allt fara vel. Hægðu ferðina, það er nægur
tími til að skemmta sér síðar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það vantar ekki mikið upp á að þér
takist að klára það verkefni sem þér hefur
verið falið. Hver er sinnar gæfu smiður. Ekki
fara í fýlu þó að þú fáir þitt ekki fram, þú ert
ekki lengur tveggja ára.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hraðinn í þínu daglega lífi eykst dag
frá degi. Vertu tillitssamari við nágrannan.
Hann er ekki alslæmur þó að þér finnist það.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Leyndarmál gætu verið afhjúpuð fyrir
þig í dag. Einhver manneskja kemur inn í líf
þitt á næstunni sem mun hafa gríðarmikil
áhrif á framvindu ástamálanna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Rifrildi eru einstaklega líkleg. Hvað er
það sem veitir þér gleði í lífinu? Reyndu að
komast að því.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hæfileiki þinn til þess að ná einbeitingu
er aðdáunarverður. Ekki reyna lengur að
ganga í augun á fólki. Þú kannt ekki að meta
leti annarra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Tíminn flýgur svo þú verður að
hafa þig alla/n við til þess að geta staðið við
fyrirætlanir þínar. Verið viss um hvað þið vilj-
ið, þegar á hólminn er komið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Áhrifamiklir félagar birtast í öll-
um stærðum og gerðum. Allt snýst um orð –
þau búa yfir mætti til bölvunar eða blessa. Þú
vilt hafa nóg fyrir stafni og ert líka afar for-
vitin/n.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú geturðu ekki lengur þráast við
að framkvæma það sem þú veist innst inni að
er óhjákvæmilegt. Hafðu ekki áhyggjur og
reyndu bara að slaka á og njóta lífsins.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ráðleggingar þínar geta komið sér
vel fyrir samstarfsmann þinn. Lykillinn að vel-
gengni er ekki flókinn, gerðu meira af því
sem gengur vel.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Frestaðu öllum framkvæmdum með-
an þú ert að gera þínum nánustu grein fyrir
því hvað það sem þú raunverulega vilt.
Leyfðu þér að njóta góða veðursins.
Ég hef alltaf haft gaman af velog létt kveðnum vísum sem
segja sögu og halda uppi spennu í
frásögninni. Pétur Stefánsson yrkir
á Boðnarmiði um draugagang:
Ei er mér í anda rótt,
allar nötra taugar,
að mér sóttu nú í nótt
nokkrir ærsladraugar.
Skelk í bringu skutu mér.
Skalf ég líkt og hrísla,
er þeir riðu húsum hér
hátt, og fóru að sýsla.
Mér fannst ég heyra fótatak
frammi í íbúðinni,
ískur, hvísl og eitthvað brak
sem ógnaði geðró minni.
Upp úr rúmi ofurhljótt
með ímynduðum þótta,
fram í stofu skaust ég skjótt
skjálfandi af ótta.
Engan draug var unnt að sjá,
eftir þessa brýnu.
En kveikt hafði þó einhver á
útvarpstæki mínu.
Inni í minni íbúð hér
er ýmislegt á sveimi
sem ég veit að eflaust er
ekki af þessum heimi.
Limrur Kristjáns Karlssonar
koma alltaf upp í hugann:
Ég festi ekki blíðan blund
fyrir bölvaðri rökfestu um stund.
Loks tókst mér að sofna,
fann samhengi rofna
og símastaur pissaði á hund.
Einn kvenmaður kenndur við Fljót
fór í hvirfilbyl norður í Grjót.
Þar kom upp úr grasi
undir könnunarglasi
hálf kunta, ein tala, fornt spjót.
Einn sægreifi sunnan úr Höfnum
sat á fundi með hröfnum.
Þeir settu sig á hann
þeir sóðuðu á hann
og sendu hann til baka með dröfnum.
Er eitthvað til fallegra en Stína?
Ég undanskil konuna þína
og Þingvallahraun
sem þó er mér raun
loks kvað vera fallegt í Kína.
„Ég er,“ sagði Ásgrímur, „fauti,
því mín eistu eru stærri en í nauti.
Og grimmum hundum
og háðslegum sprundum
ég hef verið þungur í skauti.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af draugagangi og
limrur eftir KK
Í klípu
„ÉG ER AÐ LEITA AÐ SÓFA SEM BREYTIST Í RÚM
MEÐAN ÉG ER Í HONUM, SVO ÉG ÞURFI EKKI AÐ
FARA Á FÆTUR TIL AÐ FARA AÐ SOFA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„GUÐ HJÁLPI ÞÉR!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hjörtu ykkar
tvinnast saman.
MANSTU ÞEGAR ÞÚ KOMST
MEÐ BLÓM HANDA MÉR?
EINMITT...NEI. ER ÉG AÐ
MISSA AF
EINHVERJU?
ÞEGAR
ÉG VAR
STRÁKUR...
ÞAÐ ER EKKI
SVO SLÆMT!
...VAR TVEGGJA
MÍLNA GANGA
Í SKÓLANN!
NEI, EN ÉG GEKK
ÁTTA MÍLUR
TIL AÐ FORÐAST
SKÓLANN!
Svefn-
sófar
Strákarnir á verkstæði Sólningar íKópavogi voru eins og storm-
sveipur þegar Víkverji fór þangað á
laugardagsmorgun til þess að láta
skipta yfir vetrardekk á hans fjalla-
bíl. Þetta voru sennilega pólskir eða
litháískir piltar, harðduglegir fýrar
sem hafa greinilega gaman af vinnu-
törnum. Ekki var annað hægt en
fyllast aðdáun að röskleika þeirra.
Allt gekk upp á örfáum mínútum og
bíllinn er klár í vetrarumferðina.
x x x
Þessa dagana er uppi í Smáralindáhugaverð málverkasýning sem
ber yfirskriftina Poppart. Efnt er til
þessa viðburðar í tilefni af 15 ára af-
mæli verslunarmiðstöðvarinnar sem
er á næstu dögum. Þarna sýna Ingv-
ar Björn, Oddur Eysteinsson og
Hjalti Paríus, sem vinnur stór verk í
stíl Errós sem þekja stóra veggi.
Laust búðarpláss á neðri hæð versl-
unarmiðstöðvarinnar var notað fyrir
sýninguna og það er góð tilbreyting
sjá falleg listaverk á svona stöðum.
x x x
Hjá Eymundsson var forsmekkurað hátíð. Fyrstu jólabækurnar
eru komnar í búðir, Petsamo Arn-
aldar Indriðasonar, CoDex eftir
Sjón og alls konar matreiðslubækur,
ævisögur, fróðleikskver og fleira.
Heimsókn í bókabúð er alltaf
skemmtileg.
x x x
Óvænt og af bragðgæðum erulambakótelettur komnar í tísku
og þykja herramannsmatur. Í
skemmtanalífi landans hafa kótel-
ettukvöldin slegið í gegn og eru fjöl-
sótt. Víkverji var í slíkri veislu aust-
ur í Flóa fyrir nokkrum vikum, þar
sem kokkarnir báru fram heilu trog-
in af röspuðum kótelettum steikum
upp úr smjöri. Meðlætið var líka ein-
falt; kartöflur, sósa, rauðkál og
grænar baunir. Þetta hnossgæti,
sem Víkverji ólst upp við að væri
jólamatur, er nú komið á matseðilinn
á Café Adesso í Smáralind og selst
þar eins og enginn sé morgundag-
urinn. Þetta er skemmtileg þróun.
Maturinn er virkilega góður og kóte-
lettukvöldin mikilvæg því landinn
þarf alls konar skemmtanir og sam-
verustundir nú þegar svart og þrúg-
andi haustmyrkur hellist yfir. víkver-
ji@mbl.is
Víkverji
Sælla er að gefa, en þiggja.
(Post. 20.35)