Morgunblaðið - 07.11.2016, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Inga Mekkin Beck, höfundurSkóladraugsins, tileinkarbróður sínum bókina meðþessum orðum: „Fyrir Hans
Ágúst, sem kom alltaf til bjargar í
martröðum og kvaldi mig í vöku,
eins og aðeins stór bróðir getur.
Hann hrelldi mig með marg-
víslegum hætti, en þó ekki
draugasögum,“ segir Inga Mekk-
in, sem í síðasta mánuði bar sigur
úr býtum fyrir Skóladrauginn í
samkeppninni um Íslensku barna-
bókaverðlaunin 2016.
Best er að láta samskipti
systkinanna liggja á milli hluta og
spyrja frekar hvort hún hafi trúað
á drauga og kannski verið hrædd
við þá?
„Ég trúði statt og stöðugt á
drauga þegar ég var yngri.“ svar-
ar hún. „Myrkrið allt um kring
heima í sveitinni á veturna ýtti
undir ímyndunaraflið og stundum
varð ég hræddari við það heldur
en sjálfa draugana. Svo var heldur
ekki einleikið með skrifstofustól
sem pabbi átti og ískraði í, ég
heyrði brakið oft þótt enginn væri
í honum. Pabbi hafði reyndar þá
kenningu að afabróðir hans væri
að gera vart við sig.“
Trúir á Skóladrauginn
Þótt Inga Mekkin sjái Reyð-
arfjörð fyrir sér sem sögusviðið,
kveðst hún hafa kappkostað að
lýsa öllu þannig að lesendur gætu
í huganum staðsett atburði í sínu
þorpi, bæ eða borg. Sjálf fluttist
hún í ljósadýrðina í Reykjavík fyr-
Skóladraugurinn á
ábyrgð skólastjórans
Myrkrið allt um kring í sveitinni fyrir austan ýtti undir ímyndunarafl
Ingu Mekkinar Beck þegar hún var krakki og stundum var hún hrædd-
ari við það en sjálfa draugana. Núna trúir hún bara á einn draug,
Skóladrauginn, sem færði henni Íslensku barnabókaverðlaunin 2016.
Þótt sagan sé á léttum nótum veit hún um einn eða tvo sem fellt hafa tár.
Með stóra bróður Inga Mekkin ásamt Hans Ágústi, stóra bróður sínum. Á
gelgjuskeiðinu reyndi mjög á vináttu þeirra systkina.
Grunnskólinn á Reyðarfirði Inga Mekkin sá gamla grunnskólann sinn fyrir
sér sem sögusvið Skóladraugsins þegar hún skrifaði söguna.
Áhugafólki um prjón og hekl ætti að
þykja fengur í að geta sótt sér ókeyp-
is uppskriftir á netið. Gústa, hönn-
unar- og framleiðsluhús fyrir prjón
og hekl, býður upp fjölda uppskrifta
að peysum, húfum, vettlingum og
öðrum flíkum fyrir konur, karla og
börn á vefsíðu sinni www.gusta.is.
Einungis þarf að skrá sig sem not-
anda á síðuna til að fá aðgang og þá
er ekkert að vanbúnaði að skoða úr-
valið og taka upp prjónana. Vefsíðan
er einkar aðgengileg og hægt að
þysja inn á myndirnar til að gaum-
gæfa mynstur og snið betur.
Uppskriftirnar miðast við MOSA
mjúkull, sem fyrirtækið framleiðir og
er blanda af íslenskri ull og alpakka
frá Perú. Stofnandi Gústu er Ágústa
Þóra Jónsdóttir, höfundur tveggja
prjónabóka sem hafa komið út á Ís-
landi og í Noregi, og flestra upp-
skriftanna á gusta.is. Notendur eru
hvattir til að deila myndum af flíkum
sem þeir hafa prjónað eftir uppskrift-
unum gegnum Facebook og/eða á
Instagram.
Vefsíðan www.gusta.is
Geimkallar Unisex Uppskrift að þessari mynstruðu peysu, sem ætluð er jafnt
konum sem körlum, er gefin upp í mörgum stærðum.
Ókeypis prjónauppskriftir
Sólveig Magnúsdóttir þverflautuleik-
ari heldur útskriftartónleikana sína
frá Listaháskóla Íslands í Salnum í
Kópavogi kl. 20 í kvöld, mánudaginn
7. nóvember. Á efnisskránni eru
verk eftir J.S. Bach, F. Devienne, C.
Nielsen og Þorkel Sigurbjörnsson.
Kristján Karl Bragason leikur á pí-
anó.
Sólveig hóf nám við Skóla-
hljómsveit Kópavogs níu ára. Haust-
ið 2009 byrjaði hún í Tónlistarskóla
Kópavogs og lauk þaðan framhalds-
prófi árið 2013 og hóf sama ár nám
við Listaháskóla Íslands. Veturinn
2015-16 stundaði hún skiptinám við
Norges Musikkhøgskole í Osló. Sól-
veig hefur spilað
með ýmsum
hljómsveitum og
kammerhópum,
s.s. Ungsveit Sin-
fóníuhljómsveitar
Íslands, Ungsveit
Noregs, Sinfón-
íuhljómsveit unga
fólksins, Sinfón-
íuhljómsveit
Norðurlands, Sin-
fóníuhljómsveit tónlistarskólanna,
Nordic Harmony, Blásarasveit
Reykjavíkur og Íslenska flautukórn-
um.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis.
Endilega …
… hlýðið á útskriftartónleika
Sólveig
Magnúsdóttir
Íslendingar eru yfirleitt við öllu bún-
ir eftir að vetur konungur gengur í
garð. Þótt víða hafi verið ómunatíð
hafa trúlega flestir komið vetr-
arbörðum undir bílana sína og þeir
skynsömu hafa mannbroddana til-
tæka til að verða ekki hált á svellinu
þegar þar að kemur. Mannbrodd-
arnir fást í ýmsum útgáfum, yfirleitt
gerðir úr gúmmíböndum með áföst-
um járnbroddum sem smeygt er yfir
skótauið.
Áður fyrr þegar menn notuðust
helst við sína tvo jafnfljótu voru
mannbroddar jafnvel enn meira
þarfaþing. Búnaðurinn var vitaskuld
allt öðru vísi en nú tíðkast. Á vef
Þjóðminjasafnsins skrifar Lilja
Árnadóttir eftirfarandi fróðleik um
mannbrodda, sem eru gripur nóv-
embermánaðar þetta árið:
„Þetta eru lítil járnstykki, oft þrí-
hyrningslaga með broddi niður úr
hverri álmu. Nokkrir slíkir mann-
broddar hafa fundist við forn-
leifauppgröft og eru dæmi um það
meðal gripa sem fundist hafa í
Þjórsárdal. Broddarnir hafa verið
Gripur nóvembermánaðar á Þjóðminjasafninu
Mannbroddar fyrir þá sem vilja
vera sterkari á svellinu
Morgunblaðið/Kristinn
Vetrarfærð Mörgum getur orðið hált á svellinu á veturna.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Föst lág söluþóknun - Allt innifalið
399.990
Verðmat - Gagnaöflun - Fagljósmyndun - Sýningar
Opin hús - Eftirfylgni við kaupendur - Skjalagerð
Lárus Óskarsson
Lögg. fasteignasali
823-5050
Ólafur Sævarsson
Nemi til löggildingar
820 - 0303
Anna Teitsdóttir
Nemi til löggildingar
787-7800