Morgunblaðið - 07.11.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
FELST
AÐGERÐALEYSI ÞITT
Í AÐ SAMÞYKKJA
KYNFERÐISOFBELDI?
Í fréttum mbl.is sagði í gær aðkomin væri út bók þar sem rakið
væri að Hillary Clinton væri skyld
Hollande, forseta Frakklands.
Forsetinn er númeð minnsta
stuðning sem nokk-
ur forseti hefur haft
á þessum tíma for-
setatíðar sinnar.
Svo ekkert skalfullyrt um hvort
frúin muni hampa
skyldleikanum.
En þessi frásögnminnir á sanna
litla smásögu:
Fyrir áratugum sat borgar-fulltrúi Sjálfstæðisflokksins við
borð í Kökuhúsinu við Austurvöll og
drakk kaffi með vini sínum Jónasi
Guðmundssyni, stýrimanni, rithöf-
undi og málara.
Þar kom að Eysteinn Jónsson,fyrrverandi formaður Fram-
sóknarflokksins og ráðherra til
margra ára.
Hann ávarpaði borgarfulltrúannmeð nafni og sagðist telja sig
vita fyrir víst að þeir tveir væru all-
skyldir.
Áður en borgarfulltrúinn gatsvarað sagði stýrimaðurinn:
Ég tek hundraðkall frá hvorumykkar fyrir að segja ekki
nokkrum manni frá þessu.“
Eysteinn snerist á hæli og hafðiekki fleiri orð um frændsem-
ina.
STAKSTEINAR
Jónas
Guðmundsson
Satt má kyrrt liggja
Eysteinn
Jónsson
7. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:33 16:51
ÍSAFJÖRÐUR 9:53 16:41
SIGLUFJÖRÐUR 9:37 16:23
DJÚPIVOGUR 9:06 16:17
Veður víða um heim 6.11., kl. 18.00
Reykjavík 9 alskýjað
Bolungarvík 12 alskýjað
Akureyri 9 skýjað
Nuuk -1 skýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 9 skýjað
Kaupmannahöfn 2 skúrir
Stokkhólmur -2 skýjað
Helsinki -5 snjókoma
Lúxemborg 3 skýjað
Brussel 5 skúrir
Dublin 7 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 5 skúrir
París 5 léttskýjað
Amsterdam 7 skúrir
Hamborg 5 skýjað
Berlín 6 skúrir
Vín 7 rigning
Moskva -3 snjóél
Algarve 19 léttskýjað
Madríd 10 skýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 18 þrumuveður
Aþena 19 léttskýjað
Winnipeg 9 léttskýjað
Montreal 6 léttskýjað
New York 13 heiðskírt
Chicago 16 heiðskírt
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL.12 Í DAG
Tvær af þremur
þyrlum Land-
helgisgæslunnar
eru ekki í notk-
un, önnur vegna
bilunar en hin er
í reglubundinni
skoðun eftir 500
flugtíma. Þriðja
þyrlan aðstoðaði
við leit að
rjúpnaskytt-
unum tveimur á Snæfellsnesi í
fyrrinótt. Hún var hins vegar ekki
send aftur út í gærmorgun, þar sem
skyggni var afar lélegt og þyrlan
hefði ekki komið að neinu gagni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni bilaði önnur
þyrlan á æfingu síðastliðinn föstu-
dag. Búið er að panta varahluti í
hana og gert er ráð fyrir að hún
komist í lag í dag.
Gæslan með eina
þyrlu í notkun
Gæslan Tvær af
þremur í notkun.
Samtökin Hugarafl vilja að stofnað-
ur verði vinnuhópur sérfræðinga
sem hafi það markmið að minnka
lyfjanotkun vegna geðraskana um
50% á næstu fimm árum. Sami hópur
myndi einnig setja reglur um lyfja-
gjöf auk þess sem notendur fengju
skýrar upplýsingar um virkni og
aukaáhrif lyfjanna.
Hugarafl sendi frá sér ályktun
þessa vegna fréttar í Morgunblaðinu
fyrir helgina um Norðurlandamet
Íslendinga í lyfjanotkun. Þar segir
að í engu norrænu landanna séu örv-
andi lyf eins og rítalín og önnur þeim
skyldi notuð í sama mæli og hér. Þá
er Ísland hæst í notkun örvandi svo
og róandi og kvíðastillandi lyfja sem
og svefn- og flogaveikilyfja, en þau
eru öll ávanabindandi.
Um mikla geðlyfjanotkun segir
Hugarafl að hún hafi áhrif á færni og
þátttöku fólks í samfélaginu og geti
hamlað bata. Reynslan sé líka sú að
lyf sem vinna eigi á geðsjúkdómum
og röskunum þeim skyldum séu
gjarnan notuð í of miklu magni og yf-
ir of langan tíma.
„Hér teljum við mannréttindi vera
brotin og tilgangur með ofnotkun
þessara lyfja óljós í lækningaskyni.
Læknastéttin ber hér mikla ábyrgð
sem ekki er nægjanlegt eftirlit með
frá stjórnvöldum,“ segir í ályktun
Hugarafls. Er þar bent á að t.d. í
Finnlandi þurfi þriðjungur fólks sem
veikist af geðrofi ekki á lyfjum að
halda, enda sé viðeigandi meðferð til
staðar. Talar Hugarafl fyrir slíkum
úrræðum í ályktun sinni og kallar
þar eftir umræðu eða aðgerðum af
hálfu stjórnvalda. sbs@mbl.is
Geðlyfjanotkun minnki um helming
Morgunblaðið/Kristinn
Geðlyf Notkunin eykst en Hugarafl
vill að þróunin verði í hina áttina.