Morgunblaðið - 07.11.2016, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
Gríptu með úr
næstu verslun
Þjóðlegt, gómsætt og gott
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Komið og skoðið úrvalið
Opið virka daga
10-18
laugardaga
11-15
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Heimsbyggðin fylgist grannt með
Bandaríkjunum þar sem gengið
verður til kosninga á morgun og
stóra spurningin að sjálfsögðu:
„Hver verður næsti forseti Banda-
ríkjanna?“
Allt bendir til þess að það verði
Hillary Clinton skv. nýjustu skoð-
anakönnunum. Þannig mælist hún
með fimm prósentustiga forskot á
Donald Trump í nýjustu stóru könn-
uninni sem ABC og Washington
Post létu vinna fyrir sig og birt var í
gær. Hillary mælist þar með 48 pró-
sent en Trump með 43.
Könnun NBC News og Wall
Street Journal segir Clinton aftur á
móti hafa fjögurra prósentustiga
forskot með 44 prósent á móti 40
prósentum Trumps.
Sé litið til meðaltals stóru skoð-
anakannananna sem gerðar hafa
verið vestanhafs undanfarna viku
mælist Clinton með 1,8 prósentu-
stiga forskot á Trump samkvæmt
Realclearpolitics.com þar sem haldið
er utan um meðaltal kannananna.
Clinton skorar mun betur hjá kon-
um og minnihlutahópum, en Trump
nýtur meiri hylli karla, hvítra kjós-
enda og eldri borgara.
Fyrstu kjörstöðum verður lokað á
miðnætti annað kvöld en þeim síð-
ustu í Alaska klukkan sex að morgni
miðvikudags.
FBI mælir ekki með ákæru
James Comey, forstjóri FBI,
greindi í gærkvöldi frá því að athug-
un stofnunarinnar á tölvupóst-
notkun Clinton hefði ekki leitt í ljós
neitt saknæmt og afstaða FBI um að
mæla ekki með ákæru því óbreytt.
Kosningateymi Clinton fagnaði nið-
urstöðu FBI og sagði það gott að bú-
ið væri að leysa þessi mál.
Clinton hafði í nógu að snúast um
helgina, m.a. með bandarískum ofur-
stjörnum. Í Cleveland fór hún á svið
með einu frægasta pari heims;
Beyoncé og Jay-Z, og á laugardag
var það Katy Perry sem hvatti kjós-
endur í Fíladelfíu til að kjósa Clin-
ton. Í gær heimsótti hún svo Cleve-
land með körfuboltakappanum
LeBron James. Þar að auki voru
tónlistarmennirnir James Taylor og
Jon Bon Jovi á öðrum viðburðum
Clinton í gær.
Í dag kemur hún fram með Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseta í
nokkrum lykilríkjum sem skipt geta
sköpum við úrslit kosninganna.
Trump heimsækir lykilríkin
Trump hefur aftur á móti verið á
miklu ferðalagi og mun heimsækja
nokkur lykilríki til viðbótar í dag.
Fjölmiðlar vestra segja dagskrá
frambjóðenda nú rétt fyrir kosn-
ingar gefa til kynna að mjórra sé á
munum en frambjóðendurnir tveir
hafa gefið í skyn.
Í gær heimsótti Trump t.a.m.
Minnesota, ríki sem hefur ekki verið
hliðhollt repúblikönum um langt
skeið. Vonast Trump eftir því að
stefna hans um að herða á fríversl-
unarsamningum muni ná til kjós-
enda Minnesota og annarra ríkja
efri Miðvesturríkja Bandaríkjanna.
Á laugardag varð uppi fótur og fit
á kosningafundi Trumps í Reno í
Nevada-ríki þegar hrópað var orðið
„byssa“ úr salnum. Trump var færð-
ur samstundis í öruggt skjól af
fulltrúum bandarísku leyniþjónust-
unnar, maður var handtekinn og
leitað var að vopninu. Engin byssa
fannst og sleppti leyniþjónustan
manninum sem var handtekinn.
Enn heldur Clinton forskoti
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fara fram á morgun Clinton heldur forskotinu á Trump
í könnunum gærdagsins FBI sagði í gærkvöldi ekkert saknæmt hafa fundist í tölvupóstum Clinton
AFP
Stórstjarna Fjöldi þekktra einstaklinga hefur á undanförnum dögum komið fram með Hillary Clinton. Á laugardag
hvatti Katy Perry kjósendur til þess að kjósa Clinton og á föstudag komu Beyoncé og Jay-Z fram með Clinton.
AFP
Lokaspretturinn Donald Trump ásamt eiginkonu sinni Melaniu Trump.
Kosningar
» Clinton er með forskot á
Trump í nýjustu könnunum
» Báðir frambjóðendur með
þétta dagskrá um helgina
» Beyoncé, Katy Perry og
fleiri stjörnur með Clinton í
liði
» Fyrstu kjörstöðum lokað á
miðnætti annað kvöld að ís-
lenskum tíma
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, ætlar að vinna áfram að
útgöngu Breta úr Evrópusamband-
inu þrátt fyrir úrskurð Hæstaréttar
Englands og Wales í síðustu viku um
að leggja þurfi útgöngu Breta úr
Evrópusambandinu fyrir þingið.
Þetta kemur fram í grein sem hún
skrifaði í Sunday Telegraph um
helgina, og var það í fyrsta skipti
sem hún tjáði sig um framhaldið eftir
að úrskurður dómstólsins féll.
Í greininni segir May að ríkis-
stjórnin verði að
halda áfram og
þingið eigi að
virða niðurstöðu
þjóðaratkvæða-
greiðslunnar þar
sem rétt tæp 52
prósent kjósenda
vildu úr sam-
bandinu en 48,1
prósent vildi vera áfram í samband-
inu. Kjörsókn var 72,2 prósent.
Í úrskurði dómstólsins sem May
fjallar um í grein sinni segir að bresk
stjórnvöld geti ekki virkjað 50. grein
Lissabonsáttmálans og hafið samn-
inga um útgöngu nema að undan-
gengnu samþykki þingsins.
Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka-
mannaflokks Bretlands, hefur gefið
það út að hann muni kjósa gegn úr-
sögn Breta úr Evrópusambandinu
takist May ekki að tryggja aðgengi
Bretlands að innri markaði Evrópu-
sambandsins.
Í grein May segir hún að svo gæti
virst að verið væri að deila um ferli
og aðferðir, og lagadeilan sé flókin,
en í raun og veru snúist þetta um
grundvallarreglu. Þingið hafi
ákveðið að leggja málið í dóm þjóð-
arinnar og því sé það á ábyrgð
ríkisstjórnarinnar að halda
vinnunni áfram og virða ósk lands-
manna.
Segir May þá sem séu ósammála
niðurstöðunni þurfa að sætta sig við
að þetta sé ákvörðun þjóðarinnar og
hvetur til samstöðu þjóðarinnar.
Vinna eftir vilja þjóðarinnar
Forsætisráðherra Bretlands segir Breta stefna áfram að útgöngu úr ESB
Theresa May
Til átaka kom milli lögreglunnar í
Hong Kong og mótmælenda í gær
þegar hundruð manna komu saman
til þess að mótmæla afskiptasemi
kínverskra stjórnvalda af því hvort
útiloka ætti tvo þingmenn sem
styðja sjálfstæði Hong Kong og
vilja að sjálfsstjórnarhéraðið slíti
sig frá Kína.
Mótmælendur rifu niður grind-
verk sem lögregla setti upp fyrir
utan skrifstofu kínverskra stjórn-
valda í borginni. Mótmælendur
skýldu sér á bak við regnhlífar til
að forðast piparúða lögreglu.
Að minnsta kosti einn mótmæl-
andi var handtekinn, að því er fram
kemur í frétt AFP um málið. Þar
kemur enn fremur fram að mót-
mælin hafi verið friðsamleg í fyrstu
og er áætlað að um 13 þúsund
manns hafi tekið þátt í göngunni í
fyrstu en um fjögur þúsund hafi
haldið mótmælunum áfram.
AFP
Mótmæli Þúsundir manna komu
saman vegna afskipta Kínverja.
Átök vegna
mótmæla í
Hong Kong
Beittu piparúða