Morgunblaðið - 07.11.2016, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2016
Það er alltaf nóg að gera í bæði stórum og litlum verkefnum semmaður er að takast á við,“ segir Una Steinsdóttir, fram-kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka, en hún á 50
ára afmæli í dag.
„Eitt af þeim verkefnum sem standa upp úr þessa stundina er að
sameina þrjú útibú í Norðurturninum en það eru útibúin í Garðabæ,
Kópavogi og í Mjóddinni og við stefnum á að opna nýtt og glæsilegt
útibú þar í desember. Svo erum við að flytja höfuðstöðvar okkar af
Kirkjusandi í Norðurturn. Útibúið á Kirkjusandi mun flytjast og sam-
einast útibúinu á Suðurlandsbraut og fá nýtt nafn sem er Laugardalur.
Það er alltaf nóg að gera á stóru heimili.“
Áhugamál Unu eru margvísleg, t.d. að sækja menningartengda við-
burði og er hún nýbúin að sjá óperuna Évgení Onegin eftir Tsjaíkovskí.
„Það var mikil veisla bæði fyrir eyrað og augað. Ég hef mikinn áhuga á
klassískri tónlist og myndi vilja gera miklu meira af því að sækja tón-
leika. Það er frábært að eiga svona stórbrotið menningarhús eins og
Hörpuna og ótrúlegt hversu blómlegt listalíf við búum við hér á Íslandi.
Ég hef líka afskaplega gaman af því að elda góðan mat og sæki mikið
í að vera í bústaðnum okkar í Borgarnesi en fyrst og fremst hef ég
gaman af því að vera með fjölskyldunni og stórum hóp góðra vina. Síð-
an er ég lent í því eins og margir á þessum aldri að vera algjörlega dott-
in í golfið og er að vinna upp mörg töpuð ár í spilamennskunni. Næstu
50 árin ætla ég að spila mikið þessa skemmtilegu íþrótt sem hefur dálít-
ið heltekið mann.“
Una hélt afmælisboð heima hjá sér um helgina, „en í kvöld ætla ég að
skella mér í bústaðinn minn og svo er að sjálfsögðu golfferð fram und-
an.“
Eiginmaður Unu er Reynir Valbergsson, fjármálastjóri Öryggis-
miðstöðvarinnar, og tvíburadætur þeirra eru Sóley og Stefanía, sem
stunda nám við Háskóla Íslands.
Fjölskyldan Við útskrift Unu í AMP-stjórnendanámi í fyrra í IESE-
viðskiptaháskólanum í Barcelona.
Á fullu við að vinna
upp töpuð ár í golfinu
Una Steinsdóttir er fimmtug í dag
F
innur Torfi fæddist á
Sólvöllum á Flateyri
7.11. 1936 og ólst þar
upp. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MA 1956,
stundaði nám í íslenskum fræðum
við HÍ 1958-61, lauk cand.phil.-prófi
1958 og fyrrihlutaprófi í íslensku
vorið 1960, sótti námskeið fyrir ís-
lenskukennara 1965, lauk prófi í upp-
eldis- og kennslufræði við HÍ 1971,
dvaldi viðnám í Hardanger folkehög-
skole og víðar í Noregi 1973, stund-
aði nám í lögfræði við HÍ frá 1980,
lauk embættisprófi þaðan 1985 og
stundaði framhaldsnám við Institutt
for privatrett við Oslóarháskóla
1985-86.
Finnur Torfi var kennari við Hér-
aðsskólann á Núpi í Dýrafirði,
stundakennari við Víghólaskóla í
Kópavogi, við Héraðsskólann í Skóg-
um undir Eyjafjöllum, við Hagaskóla
í Reykjavík, var kennari við Mennta-
skólann á Ísafirði og stundakennari
við Gagnfræðaskólann á Ísafirði, við
Gagnfræðaskólann í Garðabæ,
stundaði sjómennsku 1974-76, var
útbreiðslustjóri Þjóðviljans, blaða-
maður við Sjómannablaðið Víking
1978-80, var settur fulltrúi hjá
bæjarfógetanum í Hafnarfirði,
Garðabæ og á Seltjarnarnesi og
sýslumanninum í Kjósarsýslu 1986-
90, settur héraðsdómari við sama
embætti 1990, skipaður héraðsdóm-
ari þar 1991, héraðsdómari við Hér-
aðsdóm Reykjaness 1992 og síðan
dómstjóri í Borgarnesi þar til hann
lét af störfum fyrir aldurssakir 2003.
Finnur Torfi sinnti ýmsum störf-
um fyrir Æskulýðsfylkinguna í
Reykjavík og síðar fyrir Alþýðu-
bandalagið. Þá var hann landvörður
Finnur Torfi Hjörleifsson, skáld og fyrrv. hérðasdómari – 80 ára
Með afkomendum Finnur Torfi með börnum, barnabörnum og langafabörnum á Reykjum í Fnjóskadal 2014.
Dómstjóri og róttækur
náttúruverndarsinni
Veiðimaðurinn Hér er Finnur Torfi
í essinu sínu við Hítarvatn.
Sara Sif Kristinsdóttir og Eydís Eik Sigurðardóttir tíndu ber í Þingahverfi með
dyggri aðstoð Elísabetar Sunnu Scheving og Andreu Elínar Ólafsdóttur og gáfu
Rauða krossinum á Íslandi ágóðann af sölunni. Þær söfnuðu 13.050 kr.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is