Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason Blaðamenn Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is, Ásgeir Ingvars- son ai@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók RAX T íu töffarastig á hvern þann sem veit hvað orðið hér að ofan þýðir. Einhver? Þetta svip- mikla orð er nafnorð úr ítölsku og merkir „að vera áhyggjulaus, afslappaður og slétt sama“. Zero f*cks given, þannig lagað. Hér er ekki átt við einstakling sem lifir í tillitsleysi og sið- blindu gagnvart öðru fólki heldur er hugtakið lífs- stílstengt og fangar anda þess sem er sáttur í eigin skinni, setur sér eigin markmið og lifir sínu lífi án þess að hafa miklar áhyggjur af því hvað öðrum kann að finnast. Það er eitthvað sem við karlmenn ættum flestir að tileinka okkur. Okkur er alveg óhætt að fara í gegn- um lífið á okkar eigin forsendum; þær eru ekki verri en þær sem aðrir vilja kannski setja okkur. Ég heyrði á tal tveggja karlmanna, á svipuðu reki og ég, í búningsklefa sundlaugar í Hafnarfirði fyrir nokkr- um vikum. Annar spurði hinn hvort hann væri með rakakrem með sér. „Nei, ég tek það ekki með mér í sund, ég fæ mér bara heima, sko. Maður fílar ekki að maka þessu framan í sig á almannafæri.“ Merkilegt nokk. Sjálfur fékk ég fagurrauða wingtip-skó að gjöf fyr- ir fáeinum árum og hef notað þá mikið og uppskorið hrós enda virkilega fallegir. Ég fékk samt eitt sinn hrós hlaðið hálfgerðri undrun yfir því að ég skyldi fást til að klæðast rauðum skóm – eins og það væri stórmál og ég væri nú bara ansi hreint duglegur að leggja í þenn- an fótabúnað, ha? Í þessu fyrsta tölublaði af sérblaðinu M Herrar er sleginn tónn fyrir framhaldið. Í þessu blaði verður lögð áhersla á að hitta menn sem gera hlutina á sínum for- sendum og við fjöllum um hluti sem teljast til stíls frek- ar en tísku. Tímalaust er svo miklu áhugaverðara en tímabundið, þó sjálfsagt sé enginn okkar algerlega laus við dynti tískunnar á hverjum tíma. Aðalatriðið er að karlmenn hiki ekki við að fara í sérverslun til að kaupa sér pönnu (sjá bls. 20) eða veigri sér við að nota raka- krem á almannafæri (nýtt og spennandi á bls. 4), eða séu smeykir við að fara í hot yoga (sjá bls. 22) svo dæmi sé tekið. Þá bendum við sérstaklega á miðopnu- viðtalið við landsliðsmanninn Alfreð Finnbogason en þar er á ferðinni afar vandað eintak sem hefur sett sér persónuleg markmið án þess að láta raddirnar í um- hverfinu hafa of mikil áhrif á sig. Lífið er bara of stutt til að lifa því eftir forskrift frá öðrum. Það er tímabært að hleypa nú smá me- nefreghismo í lífið og tilveruna. Þú hefur rétt til þess eins og við hinir, ókei? Byrjaðu á því að manna þig upp í að fá þér raka- krem og berðu það framan í þig næst þegar þú ferð í sund. Líttu á það sem manndómsraun. Morgunblaðið/RAX „Menefreghismo“ Jón Agnar Ólason Lífsgæða5a Hér á eftir fara nokkrir hlutir, af ýmsum toga, sem ljóst þykir að munu auka lífsgæði les- enda. Þið þakkið okkur bara fyrir seinna. Allir sem einhvern tímann hafa mundað myndavél hafa óskað þess innst inni að þeir væru að nota Leica-vél; og allir sem taka myndir á stafrænar vélar og snjall- síma í dag óska þess innst inni að afrakst- urinn væri ekki allur gleymdur og graf- inn inni á flökkurum og fartölvum. Nú í nóvember kemur ný vél á markaðinn sem felur í sér svarið við framangreindum at- riðum því þýsku séníin hjá Leica hafa sent frá sér „instant“ myndavél að nafni Sofort. Nafnið merkið „undireins“ á þýsku og vísar til þess að vélin prentar myndir samstundis, eins og gömlu Polaroid-vélarnar. Hér fara því indælis nos- talgía og þýsk verkfræði í einum og sama ómót- stæðilega pakkanum. Leica Sofort er með átta mismunandi stillingum (macro, bulb, automatic, self-timer, party/portrait, action, double exposure og selfie) og einfaldleikinn er í fyrirrúmi í þágu þess göfuga markmiðs að hægt sé að fanga mómentin og gera þau að minn- ingum með sjarmerandi hætti sem ratar strax í myndaalbúmið. Hámarkshraði vélarinnar er 1/400 og hámarks ISO er 800. So- fort er allt í allt hámark hipsterakrúttmennsku og gæti vel slegið í gegn, nú þegar analog-heimurinn skorar stafrænuna á hólm á sífellt fleiri vígstöðvum. Aðspurðir segja þeir hjá Beco, sem er umboðsaðili Leica á Íslandi, að ekki sé víst að þeir flytji vélina inn að sinni, en hún kostar $300 í Bandaríkjunum og er fá- anleg í skemmtilega gamaldags litum, appelsínugulum, mintugrænum og hlýjum hvítum. Leica myndavél sem fyllir albúmin fljótt og vell Ævisaga Franks Si- natra eftir banda- ríska rithöfundinn James Kaplan er ómenguð snilld og stendur upp úr mý- grút slíkra bóka sem gefnar hafa verið út um Bláskjá gamla gegnum tíðina. Sagan er í tveim bindum, The Voice sem segir frá upphafi ferilsins og endalokunum sem næstum urðu, og The Chairman segir frá endurkomunni og risi Si- natra til æðstu laga skemmtanaiðnaðarins, og hvor bók er um 900 blaðsíður af ómengaðri skemmtun, bransasögum og dramatík af öllu tagi. Margir af þekktustu skemmti- kröftum 20. aldarinnar koma við sögu í misjafnlega krass- andi frásögnum sem eru afrakstur lygilegrar heimilda- vinnu. Yfir öllu gnæfir sjálf Röddin, mesti skemmtikraftur síðustu aldar og þó víðar væri litið, breyskur, örlátur, hefnigjarn, bakteríuhræddur, snillingur, gallagripur og goðsögn. Það er ekki fyrir alla að halda dagbók frá degi til dags, en hvað með að halda bjórdagbók? Nei, hér er ekki verið að hvetja til dagdrykkju og með- fylgjandi dagbókarfærslna held- ur er um að ræða stórsniðuga bók frá minnisbókasnillingunum hjá Moleskine. Nú þegar hand- verksbjórinn tröllríður bjór- heiminum og áhugamenn eru sí- fellt að bragða ný og ný afbrigði er gráupplagt að halda skrá yfir þá bjóra sem þú bragðar, punkta niður lit, froðuhausinn, fyllinguna og alla bragð- tónana sem koma upp í hugann þegar dreypt er á. Þú gleymir síður öllum góða bjórnum sem þú bragðar, forð- ast suma en leggur aðra á minnið til að eiga við þá endur- fundi seinna meir. Þetta er sérstaklega þægilegt þegar þú ert á ferðalagi erlendis og rambar á lítt þekktan bjór sem reynist unaður og munaður. Ekki viltu gleyma honum? Þeir sem séð hafa kvikmyndina Arrival eftir leikstjórann Denis Villeneuve vita sem er að hún er meistaraverk. Þeir vita sömu- leiðis að tónlist Jóhanns Jó- hannssonar er ekki minna meist- araverk, magnþrungin og dáleiðandi. Myndin segir frá dul- arfullri komu 12 geimskipa til jarðar í óþekktum tilgangi og óvissan og ógnin sem stigmagn- ast myndina í gegn er ekki síst tilkomin vegna frábærrar tón- listar Jóhanns „okkar“ sem hef- ur sent hverja meistaralegu kvikmyndatónlistina frá sér á fætur annarri undanfarin miss- eri, að því marki að það er hætt að vera frétt þó hann sé til- nefndur til Óskarsverðlauna fyr- ir vinnu sína. Það segir sína sögu að Deutsche Grammophon gefur snilldina út. Bravó, Jó- hann. Arrival – tónlist eftir Jóhann Jóhannsson Og í beinu framhaldi af bjór- dagbókinni góðu, gerið ykkur far um að komast í tæri við ameríska handverksbjóra af IPA-stofninum, því þeir eru mikið dýrindi. Hand- verksbjórmenningin ríður húsum í bruggheiminum vestanhafs um þessar mundir og maður má ekki líta af Bandaríkjamönnum án þess að nýtt snilldarbrugghús skjóti upp kollinum. New Belgium er eitt þessara brugghúsa og þar á bæ kunna menn að brugga snilldargóðan bjór. Til marks um það er meðal ann- ars hinn bráðferski Citradelic Tangerine IPA-bjór sem er brimandi ferskur og yndislega humlasúr í senn. Svona sæl- gæti sötrar maður í rólegheitunum og helst í góðum fé- lagsskap sem kann jafn vel að meta þessi lífsgæði. Amerískir IPA-bjórar Frank Sinatra: The Voice / The Chairman Moleskine bjórdagbók

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.