Morgunblaðið - 18.11.2016, Síða 12
Þ
að að leggja íþróttir fyrir
sig að atvinnu krefst
ekki bara fágætra hæfi-
leika heldur líka ákveð-
inna fórna, enda geta at-
vinnumenn í íþróttum
sjaldnast látið eftir sér sama slaka líf-
ernið og við hin. Mér lék fyrst forvitni
á að heyra hvernig þetta horfir við Al-
freð og hvort hann muni ef til vill eftir
fyrsta skiptinu þegar hann ákvað að
fórna einhverju fyrir boltann? Var það
skólaball? Bjórkvöld með vinunum?
Eitthvað annað?
Alfreð kímir við. „Ég man nú ekki
eftir einhverju sérstöku í upphafi.
Þetta er bara ákvörðun sem maður
tekur.“
„Ef ég legg kannski aðeins harðar
að mér“
„Aðdragandinn var kannski öðru-
vísi hjá mér en mörgum öðrum því ég
hélt áfram í menntaskóla og kláraði
hann áður en ég fór út í atvinnu-
mennskuna. Mig langaði alltaf gegn-
um yngri flokkana að verða atvinnu-
maður en það var aðeins seinna sem
sjálf ákvörðunin var endanlega tekin.
Ég var kominn upp í 2. flokk þegar ég
leit í kringum mig og sagði við sjálfan
mig að ef ég legði aðeins meira á mig
og lifði aðeins heilsusamlegra líferni
þá ætti ég alveg séns á því að fara í at-
vinnumennskuna. Ég sá bestu leik-
mennina í mínum flokki í kringum mig
fara út, einn af öðrum, og var á þess-
um tíma að æfa með Jóhanni Berg,
Gylfa [Þór Sigurðssyni], Viktori
Unnari [Illugasyni] og fleiri hjá
Breiðabliki sem voru að fara utan. Það
má segja að þeir hafi „inspirerað“ mig
í að leggja harðar að mér og fylgja
dæmi þeirra eftir. Ég settist niður
með foreldrum mínum og sagði þeim
frá því sem ég ætlaði mér. Ég setti
mér skýr markmið fyrir framtíðina og
með hverju árinu færðist ég nær þeim,
þangað til þeim var náð.“
The rest is history, eins og einhver
sagði.
Alfreð skimar út um gluggann og
virðir fyrir sér óárennilegt íslenskt
haustveður meðan hann rifjar upp. „Í
þessu sambandi finnst mér eiginlega
of neikvætt að tala um einhverjar
fórnir, því það þarf að horfa á hvað
maður fær með þessari ákvörðun,
miklu frekar en hverju maður missir
af. Þú færð að upplifa ýmislegt sem
aðrir fá ekki, eins og að spila fyrir
landsliðið, spila á stærstu og flottustu
völlum heims, spila gegn mörgum af
bestu leikmönnum heims. Þetta eru
bara æskudraumar sem rætast sem
er ómetanlegt. Þannig hugsa ég
þetta. Ég sé þetta ekki sem fórnir.“
Út í atvinnumennskuna
Það má segja að það sem Alfreð
lagði á sig hafi skilað sér til baka og
rúmlega það. 20 ára að aldri skoraði
hann 13 mörk í 18 leikjum fyrir
Breiðablik, liðið varð bikarmeistari
og Alfreð var valinn efnilegasti leik-
maðurinn það árið í Úrvalsdeildinni.
Ári síðar, tímabilið 2010, varð Alfreð
markakóngur með 14 mörk, var kjör-
inn besti leikmaður ársins af leik-
mönnum deildarinnar og hjálpaði
Blikum að landa fyrsta Íslandsmeist-
aratitli félagsins.
Í kjölfarið rættist draumurinn og
Alfreð skrifaði undir hjá belgíska
stórliðinu Lokeren. Ári síðar hafði
hann vistaskipti og hélt til Hollands
til að leika með úrvalsdeildarliði Hee-
renveen, undir stjórn hollensku goð-
sagnarinnar Marco Van Basten, og
þar sló hann í gegn svo um munaði.
Tímabilið 2013-14 varð hann marka-
kóngur hollensku úrvalsdeildarinnar,
Eredivisie, langmarkahæstur með
hvorki fleiri né færri en 29 mörk, heil-
um fimm mörkum meira en næsti
maður sem var hinn ítalski Graziano
Pellè hjá Feyenoord, síðar hjá South-
ampton í Englandi.
Hugur atvinnumanna stefnir sífellt
hærra en var ekki freistandi að
staldra við hjá Heerenveen, þar sem
honum gekk svo glimrandi vel?
Alfreð brosir út í annað. Sjálfsagt
er þessi þankagangur honum fram-
andi, að setjast að innan þæg-
indarammans.
„Það komu strax tilboð í mig eftir
fyrsta árið hjá Heerenveen ekkert af
því var nógu gott til að Heerenveen
samþykkti þau. Mig langaði líka að
sanna mig tvö ár í röð. Eftir smáflakk
árin á undan vildi ég líka smástöð-
ugleika í ferilinn, ekki ósvipað því
sem ég hugsaði þegar ég skrifaði
undir hjá Augsburg. Þó að maður
stefni alltaf eitthvað þá er líka gott að
vera á góðum stað, geta notið sín við
að spila fótbolta og vera ekki of upp-
tekinn af því hvað gerist næst. Maður
kemst heldur ekkert áfram nema
maður standi sig þar sem maður er
staddur í dag.“
Undir leiðsögn Van Basten
Þeir sem þekkja til greinarhöf-
undar vita sem er að hann er gríð-
arlegur aðdáandi áðurnefnds Marco
van Basten, síðan hann var stjörnu-
framherji ítalska stórliðsins AC Mil-
an og um leið hollenska landsliðsins.
Á árunum 1988-1992 var hann óum-
deilanlega besti leikmaður heims og
hlaut þá fleiri verðlaun en hægt er að
telja upp hér, meðal annars þrenn
Ballon d’Or. Það verður ekki hjá því
komist að spyrja Alfreð út í þjálf-
arann Van Basten.
„Hann var mjög þægilegur stjóri og
ég kunni mjög vel við hann,“ segir Al-
freð. „Ég gleymi því ekki að á fyrstu
æfingunni hjá honum vorum við að
tala um pressu og hvernig ætti að
bregðast við henni á vellinum. Hann
sagði mér að hann tryði ekki á að hafa
of margar reglur fyrir framherjann,
ég yrði bara að spila eftir mínu innsæi.
Ef ég gerði eitthvað vitlaust þá mynd-
um við bara tala um það þegar þar að
kæmi og leysa það. Flestir þjálfarar
sem ég hef haft hafa mjög fastmótaðar
hugmyndir um leikstíl en hann þekkti
þetta frá eigin reynslu sem spilandi
framherji – og var auðvitað yfirnátt-
úrulegt talent – og spilaði alltaf eftir
sínu innsæi. Það virkaði vel fyrir hann
og virkaði líka ágætlega fyrir mig
meðan ég lék undir hans stjórn. Við
áttum alltaf mjög góð samskipti, innan
vallar sem utan, og um leið mjög gott
samstarf enda hefur mér gengið best
með þjálfurum sem ég hef getað átt
hreinskilin samskipti við.“
Þegar á móti blæs í boltanum
Það kemur lítt á óvart að ýmis lið í
álfunni hafi gefið Íslendingnum knáa
auga eftir hamfaratímabilið ’13-’14 og
Núið og
framtíðin
í huga
atvinnu-
mannsins
Alfreð Finnbogason hefur verið fastamaður í ís-
lenska fótboltalandsliðinu um árabil meðfram at-
vinnumennsku þar sem hann hefur leikið í nokkrum af
sterkustu deildum Evrópu, meðal annars Real Socie-
dad í Primera Division á Spáni og nú í þýsku úrvals-
deildinni, Bundesliga, með liði Augsburg. M Herrar
hitti Alfreð yfir kaffibolla og ræddi boltann, bransann,
erfiða andstæðinga og hugarfarið sem þarf til að
komast áfram á fótboltavellinum.
Jón Agnar Ólason | jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
AFP
HERRAVIÐTALIÐ
Markahrókur Finnbogason fagnar
marki gegn Tyrkjum á Laugardals-
velli nú í haust.
Meistaradeildin Alfreð skorar
eitt af sínum eftirminnilegri mörk-
um með Olympiakos gegn Ars-
enal þann 15. september 2015.
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016