Morgunblaðið - 18.11.2016, Síða 16

Morgunblaðið - 18.11.2016, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 verið endurhönnuð til að bæta aksturseiginleikana og stýrisbúnaðurinn uppfærður svo að auðveldara sé að hafa stjórn á skrímslinu þegar ekið er á miklum hraða. Hvernig er svo að aka á svona brjálæðislega kröftug- um og dýrum bíl? Ofursportbílar í dag eru flestir til- tölulega þægilegir í akstri og yfirleitt hægt að ýta á hnapp sem mildar fjöðrun og dempar hávaðann svo að innanbæjarakstur verður léttari. Sama gildir með Aventador SuperVeloce og útheimtir bíllinn ekki svo mikla vinnu eða fimi hvort heldur á sveitavegum eða hraðbraut. Þetta er breiður bíll og fyrirferðarmikill og útsýni ökumanns til hægri mjög tak- markað, en það eru hlutir sem maður venst. Vænghurðirnar eru ekki bara til þess gerðar að vekja meiri athygli þegar stigið er út úr bílnum, heldur koma að miklu gagni í þröng- um bílastæðum. Kraftar í kögglum Eitt finnur maður samt strax og sest er upp bílinn: að hann er nánast ekkert nema vöðvarnir. Allt er hart og stórt viðkomu og ef ýtt er fast á bensingjöfina slengist líkaminn afturábak á meðan drunurnar úr vélinni heyrast langa leið. Adrenalínið frussast út í blóðrásina og munnurinn fær á sig svip sem er blanda af breiðu brosi og skelf- ingu. Ítalirnir eiga til frasa sem lýsir þessari upplifun ágætlega: „Mamma mia!“ Annað kemur á óvart: þar sem Aventadorinn er stærri bíll þá er meira pláss fyrir farangur en í Hurac- áninum. Lamborghini gefur ekki upp tölur um stærð farangursrýmis en framskottið virðist töluvert stærra í Aventadornum og þá er stór sylla á bak við sæti far- þega og ökumanns þar sem mætti rúma tvær töskur í handfarangursstærð, ef ske kynni að hendast þurfi út á flugvöll í snatri. Hvor er svo betri? Litli Lambóinn eða sá stóri? Ef ég þyrfti að velja myndi ég líklega kaupa mér Hura- cán. Sá litli er þægilegri að sitja í og yrði fyrir vikið meira notaður. Verst að hann skuli ekki vera með vænghurðir eins og stóri bróðir: það er svo skemmti- leg sýndarmennska að geta sveifla hurðunum upp. Fleira kemur til: Á meðan vélin í Aventador SV drynur þá hefur Huracáninn hljóð sem minnir á köflum á tryllingslegt hvæs sem fær hárin til að rísa. Að innan er vélarhljóðið skemmtilegra í Huracáninum, en að utan er hljóðið í Aventa- dor SV betra, algjört konfekt fyrir eyrun. Gleði, bros og „selfies“ Og talandi um drunurnar: Við hjónin fundum stórt plan í Modena til að leika okkur á og þó langt væri í næstu hús þá bergmáluðu djúpar drunurnar langar leiðir og löðuðu að hóp af unglingum og tvo verkamenn sem lögðu pall- bílnum sínum í kanti plansins og ákváðu að nú gæti vinnan beðið. Allur skarinn fylgdist með þennan klukkutíma sem við spönuðum um planið og mynd- uðum bílinn, og einlæg gleðin skein úr andlitunum þegar ég leyfði þeim að taka mynd af sér við hlið þessa draumabíls. Þarna eru einhverjir galdrar á ferð, sem eru engu líkir, og sem orð fá ekki lýst. Sýndarmennska Eins og það sé ekki nógu mikið á mann mænt í þessum bíl, þá setur það punktinn yfir i-ið að hafa á honum vænghurðir. Manni líður eins og rokkstjörnu á áfangastað. Harka Þó sætin séu ekki óþægileg þá fer maður að finna fyrir þeim eftir einn eða tvo tíma undir stýri. Þetta er bíll fyrir kapp- akstursbrautir frekar en þjóðvegi og hefur verið strípaður niður til að fækka kílóunum eins og frekast er unnt. Stjórnborð Rauða lokið yfir start-takkanum minnir á hvað er verið að leysa úr læðingi. Kraftar Risastórar keramíkbremsur þarf til að hafa einhverja stjórn á ofur öflugri vélinni. Það mætti halda að eitthvað grunsamlegt væri í kranavatn- inu í Modena, því á tiltölulega litlum radíus í kringum þessa borg í norðurhluta Ítalíu er að finna fjölda sportbílaframleið- enda. Lamborghini er með verk- smiðju sína og höfðustöðvar í smábænum Sant’Agata Bolog- nese, mitt á milli Modena og Bologna, á meðan Ferrari er í Maranello, í suðvesturátt. Mase- rati hefur bækistöðvar sínar í hjarta Modena og Pagani er ör- stuttan bíltúr í burtu, til suðaust- urs en mótorhjólaframleiðand- inn Ducati á heima í Bologna. Hvernig stendur á að allir þessir framleiðendur mergjaðra bíla og mótorhjóla hafa orðið til á svona litlum reit? Skýringin liggur í því að Mo- dena er í miðju landbún- aðarhéraði, þar sem flatir akr- arnir teygja sig eins langt og augað eygir. Upp úr landbún- aðinum spratt traktorafram- leiðsla, og fylgdi starfi bóndans að kunna að eiga við vélar. Ítalir eru ekki þekktir fyrir skort á keppnisskapi og var aðeins tímaspursmál að þeir færu að nota vélaþekkinguna til að smíða hraðskreiða bíla og keppa sín á milli á beinum sveitavegunum. Þannig liggja rætur Lamborg- hini í traktoraframleiðslu, og má meira að segja finna þrjá Lam- borghini-traktora á Íslandi. Er fræg sagan af því þegar Ferruc- cio Lamborghini, sem þá var orðinn nokkuð auðugur iðnjöf- ur, viðraði nokkrar aðfinnslur við Enzo Ferrari og kom með tillögur að því hvernig hann gæti bætt hjá sér bílana og þjónustað kaupendur betur. Enzo hér um bil móðgaðist við þetta og lét góð ráð Ferruccio sem vind um eyru þjóta. Og hvað gerði þá Ferruccio? – Jú, hann afréð að hefja einfaldlega framleiðslu á sínum eigin bílum, eftir eigin höfði. Alla tíð síðan hafa Ferrari og Lamborghini átt í vinsamlegri samkeppni sín á milli um að framleiða hinn eina sanna ítalska ofursportbíl. Af hverju varð Modena að mekku hraðafíkla?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.