Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 10
VIÐTAL Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Píratar ætla að halda félagsfund ann- að kvöld þar sem lögð verður fram tillaga um að breyta samþykkt flokksins á reglum um þingmennsku og að gegna ráðherraembætti á sama tíma. Samkvæmt fréttum eru skiptar skoðanir innan grasrótar Pírata um málið. Ef allir ráðherrar, segjum 10, ákvæðu að kalla inn fyrir sig vara- mann, gæti sú staða komið upp að 73 einstaklingar sætu þingfund í einu. Væri það framkvæmanlegt? „Í þingsalnum eru nú 56 sæti, auk sætis forseta og ráðherra sem eru 10. Samtals gætu því að óbreyttu 67 þingmenn og ráðherrar setið í þing- salnum á þingfundi. Það skortir því 6 sæti á að tölunni 73 sé náð,“ segir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. „Ráðuneyti eru 8 og það mætti hugsa sér að í utanþingsstjórn sætu aðeins 8 ráðherrar, en þá skortir enn sæti fyrir 4 þingmenn. Stundum hafa verið sett upp aukasæti fyrir framan fremstu skeifu, þau eru tvö, eitt hvor- um megin. Þá yrði enn að finna sæti fyrir tvo þingmenn, og sennilegt er að það tækist, en þröngt yrði í þing- salnum,“ segir Helgi. Hefur komið til tals að færa fundi Alþingis í annað húsnæði? „Það hefur verið rætt nokkrum sinnum að stefna bæri að því til fram- tíðar að byggja nýjan þingsal, sal sem væri þægilegri, rýmri og gæti veitt öllu fólki, t.d. fötluðu, fullkomna að- stöðu, bæði sem þingmönnum, ráð- herrum og þingforsetum, svo og að allir kæmust án vandkvæða í ræðu- stól. Þetta hefur verið rætt í tengslum við byggingaráform þings- ins nokkrum sinnum á sl. 30 árum. Það hefur líka verið nefnt að nauð- synlegt væri að á Alþingisreitnum væri salur þar sem þingið gæti haldið fundi í viðurlögum ef framkvæmdir væru í aðalþingsalnum, t.d. í kringum embættistöku forseta Íslands. En því verður jafnframt að halda til haga að margir, kannski flestir, telja að þing- salurinn í Alþingishúsinu hafi unnið sér þá hefð, og þann stað í þjóðarsál- inni, að hann verði aldrei færður það- an,“ svarar Helgi. Myndi þetta kalla á frekari við- búnað af hálfu þingsins, t.d. varðandi skrifstofuhald? „Ráðherrar hafa ekki skrifstofur í þinginu, og það breytir miklu. Vana- lega er skrifstofum ekki ráðstafað til þingmanna og þingflokka að loknum kosningum fyrr en ljóst er hvernig ríkisstjórn er saman sett. Þannig er ástandið einmitt núna, nýkjörnir þingmenn hafa ekki fengið skrif- stofur enn þá. Það yrði mikil breyting ef sjá þyrfti 10 fleiri þingmönnum fyrir skrifstofum. En það ætti að tak- ast,“ svarar Helgi. Hefur kostnaðarauki vegna þessa fyrirkomulags verið reiknaður út? „Öllu þessu fylgdi aukinn kostn- aður. Þessi breyting, að ráðherrar væru ekki jafnframt þingmenn eins og almenn venja hefur verið í okkar stjórnskipan, þýddi í raun 10 nýja þingmenn, stjórnarþingmenn, því að ráðherrar eiga samkvæmt embætt- isstöðu sinni sæti á Alþingi og njóta því bæði þingfararkaups og ráð- herraálags. Aðeins það eitt þýddi a.m.k. 200 m.kr. í aukaútgjöld á ári. En þá er ekki annar kostnaður talinn, eins og skrifstofukostnaður og önnur útgjöld af starfi fleiri þingmanna. Þess vegna hefur oft verið nefnt að samhliða breytingu af þessu tagi, að ráðherrar séu ekki jafnframt þing- menn, eins og er t.d. í Noregi og Sví- þjóð, þá sé þingmönnum fækkað eitt- hvað. Hugmyndin með þessu er að þannig fáist hreinni línur, skýrari skil milli framkvæmdavalds og löggjaf- arvalds. En engum hefur þó dottið í hug að ráðherrar eigi ekki aðgang að Alþingi, en þannig var það upp- haflega í Noregi, og gafst ekki vel. Þar þykir þessi skipan heppileg, sér- staklega fyrir nefndastarfið, allir þingmenn sitja í einni nefnd, nefnd- asæti jafnmörg þingmannatölunni og nefndirnar hafa því meira svigrúm, frjálsari tíma,“ svarar Helgi. Þingsalurinn myndi „springa“  Ekki yrði nægur fjöldi sæta í sal Alþingis ef allir ráðherrar kölluðu inn varamenn  Ef 10 varamenn tækju sæti á Alþingi þýddi það að lágmarki 200 milljóna króna aukaútgjöld á ári Morgunblaðið/Kristinn Úr þingsal Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, í ræðustól. Að baki henni eru Einar Kristinn Guðfinns- son, forseti Alþingis, og Helgi Bernódusson skrifstofustjóri. Salurinn rúmar ekki stóraukinn fjölda þingmanna. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Gullsmiðir CARAT eru sérfræðingar í trúlofunar, giftingarhringum og demantsskartgripum CARAT Haukur gullsmiður O Hátúni 6a O s. 577 7740 O carat.is Gull, hvítagull, rauðagull, rósagull, platína, með eða án demanta. „Þingmaður getur, meðan hann gegnir ráð- herraembætti, ákveðið að sitja á Alþingi ein- ungis samkvæmt embættisstöðu sinni sem ráðherra, sbr. 51. gr. stjórnarskrárinnar, og tekur varamaður hans þá sæti á Alþingi. Til- kynnir ráðherra forseta ákvörðun sína með bréfi sem forseti kynnir þinginu. Varaþing- maður, sem tekur sæti á Alþingi samkvæmt þessari málsgrein, nýtur allra sömu réttinda meðan hann situr á Alþingi eins og þeir al- þingismenn sem eiga þar fast sæti.“ Svo sagði m.a. í frumvarpi sem Valgerður Bjarnadóttir. fyrrverandi þingmaður Sam- fylkingarinnar. flutti í mars 2010 ásamt 18 öðrum þingmönnum úr sex flokkum. Val- gerður lagði þetta sama frumvarp fram á sjö þingum en það náði aldrei fram að ganga. Það var álit flutningsmanna að skýrari að- skilnaður löggjafarvaldsins og fram- kvæmdavaldsins myndi styðja við vandaðri vinnubrögð við löggjafarstörfin. Aðrir bentu á þann galla að hið breytta fyrirkomulag myndi styrkja stöðu ríkisstjórnarmeirihlut- ans verulega á kostnað stjórnarandstöðu. Frumvarpið náði aldrei fram að ganga FRUMVARP UM INNKÖLLUN VARAMANNS FLUTT Á SJÖ ÞINGUM Valgerður Bjarnadóttir Héraðsdómur Reykjaness hefur úr- skurðað að erlendur karlmaður skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa rænt fjög- ur apótek á síðastliðnum tveimur mánuðum. Samkvæmt úrskurði dómsins, sem féll í gær, sætir maðurinn varð- haldi fram til 30. nóvember næst- komandi. Áður hafði hann verið úr- skurðaður í varðhald fram til dagsins í gær, 23.nóvember. Jón Halldór Sigurðsson, lög- reglufulltrúi hjá lögreglunni á Suð- urnesjum, segir í samtali við mbl.is að rannsókn málsins miði vel. Á grundvelli rannsóknarhagsmuna hafi lögreglan óskað eftir áfram- haldandi gæsluvarðhaldi yfir manninum. Áfram í varðhaldi vegna apóteksrána

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.