Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Auður Albertsdóttir audura@mbl.is Þegar flugstöð Leifs Eiríkssonar var opnuð árið 1986 var hún 20.000 fermetrar en á næsta ári verður hún rúmlega 70.000 fermetrar. Mesta stækkunin hefur orðið síð- ustu ár, en á næsta ári munu 17.112 fermetrar hafa verið byggðir frá árinu 2012 og 17.225 fermetrar endurgerðir. Þetta kom fram á fundi Isavia í gær þar sem farið var yfir farþega- spá næsta árs, framkvæmdir og fjárfestingar. Í erindi sínu fór Guð- mundur Daði Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri tækni- og eignasviðs Keflavíkurflugvallar, yfir þær fram- kvæmdir á flugvellinum sem áætl- aðar eru á næsta ári. Hafa byggt á við nýjan Landspítala Framkvæmdir á Keflavíkurflug- velli frá árinu 2012 og út árið 2017 munu nema samtals um 43 millj- örðum. Þrátt fyrir það þarf meira til og nú eru stórframkvæmdir í undir- búningi á flugvellinum en nokkur ár munu líða áður en þær miklu stækkanir sem unnið er að verða teknar að fullu í notkun. Sagði Guðmundur uppbygging- una geta verið erfiða vegna gríð- arlegrar fjölgunar farþega um flug- völlinn en þrátt fyrir það hefðu orðið miklar breytingar á flugvell- inum síðustu ár. „Það er oft talað um að við séum ekki að gera nóg en það er fínt að benda á hvað hefur verið gert síðustu fimm ár,“ sagði Guðmundur Daði. Til þess að setja hlutina í samhengi benti hann á að gert væri ráð fyrir því að nýr Land- spítali kostaði 45,6 milljarða. „Við erum því í raun búin að byggja nýj- an Landspítala síðustu ár.“ Stækka suðurbyggingu um 7.000 fermetra Fyrsti hluti framkvæmda á næsta ári snýr að tveimur viðbótastæðum sem eru nú í byggingu. Stæðin rúma tvær breiðþotur eða þrjár al- mennar flugvélar. Sagði Guðmund- ur að þegar kæmi að fjárfestingum á flugvöllum væru stæði fyrir flug- vélar fyrsta grundvallaratriðið. Nýju stæðin verða þjónustuð með rútum frá byggingunni og verða tilbúin í byrjun júní. Sagði Guð- mundur Daði að þau ættu að auka afköst og minnka biðtíma flugvéla í kringum flugstöðina. Stærsta framkvæmdin sem stendur nú yfir á flugvellinum er stækkun suðurbyggingar og er hún sú stærsta síðustu fimm árin. Stækka á bygginguna til norðurs um 7.000 fermetra á þremur hæð- um auk hlaðturns. Þá verður bið- svæði fyrir farþega aukið, flæði við landamæri breytt og landamærasal- ur tvöfaldaður. Sætum á setusvæðum verður fjölgað um rúmlega 650 og núver- andi veitingasvæði stækkað úr 229 fermetrum í 740. Fríhöfnin verður stækkuð úr 509 fermetrum í 835. Þarf að vera sjálfbærari Þá benti Guðmundur á að atvinnuleysi á Suðurnesjum og landinu öllu væri í lágmarki og m.a. þess vegna þyrfti að skoða hvernig hægt væri að gera flugstöðina sjálf- bærari. Til stendur að koma upp sjálfvirku landamæraeftirliti og sjálfvirku bakkakerfi og aðgangi í vopnaleit. 43 milljarða framkvæmdir  Gera ráð fyrir 8,75 milljónum farþega á næsta ári  17.112 fermetrar nýbyggðir og 17.225 fermetrar endurgerðir  Tvöfalda landamærasalinn og stækka fríhöfnina  Vilja gera flugstöðina sjálfbærari Eftirlit Landamærasalurinn í suðurbyggingu verður tvöfaldaður og flæði við landamæri breytt. Stækkun Sætum verður fjölgað um 650 og veitinga- svæði stækkað úr 229 fermetrum í 740. Gert er ráð fyrir því að 8,75 milljónir farþega fari um flugvöllinn á næsta ári. Vöxturinn á bæði við um farþega til og frá landinu sem og skiptifarþega sem einungis millilenda hér á leið sinni yfir Atlantshafið. Að mati Isavia eru ánægjulegustu teiknin sem sjást í spánni sá árangur sem hefur orðið í því að fjölga ferðamönnum yfir vetrartímann. Allt stefnir í að árið 2016 muni enda í 6,8 milljónum farþega, sem er 40,3% fjölg- un frá fyrra ári. Þótt prósentuaukningin sé mun minni árið 2017 en 2016 eykst farþegafjöldinn nánast jafn mikið, um tvær milljónir á milli ára. Það er einmitt sá fjöldi sem fór um Keflavíkur- flugvöll allt árið 2010. Á næsta ári verða skipti- farþegar í fyrsta sinn fleiri en komu- eða brottfarar- farþegar. Isavia spáir því að skiptifarþegar verði um 3,1 milljón, komufarþegar um 2,8 milljónir og brottfarar- farþegar einnig. 28,3% aukn- ing milli ára FARÞEGASPÁ ISAVIA 2017 Vitað er um staðfest berklasmit milli hælisleitenda sem hýstir hafa verið í búsetuúrræðum á vegum Útlend- ingastofnunar. Tilfellin eru hins veg- ar sögð heyra til undantekninga þar sem öllum hælisleitendum er gert að gangast undir læknisskoðun til að kanna hvort viðkomandi sé haldinn smitsjúkdómi eða öðrum sjúkdómi sem veita þarf meðferð við. „Þeir sem eru með berkla eða aðra smitsjúkdóma eiga að finnast mjög fljótt og fá þá í kjölfarið viðeig- andi meðferð. Það getur hins vegar alltaf gerst að einhverjir komist í gegnum netið, en það er í algerum undantekningum,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og bætir við að læknisskoðunin sé gerð skömmu eftir komuna til landsins. Förum vel yfir 1.000 manns Aðspurður segir hann helst vera leitað að HIV, lifrarbólgu og berkl- um í læknisskoðuninni. „Þetta eru svona helstu sjúkdómar sem við leit- um að til að koma í veg fyrir smit.“ Þórhildur Ósk Hagalín, upplýs- ingafulltrúi Útlendingastofnunar, segir að unnið sé „eins hratt og hægt er“ til að koma öllum í læknisskoðun sem fyrst. „Við fáum hins vegar stundum 40 manns á dag. Í síðasta mánuði fengum við yfir 200 manns hingað til lands og í þessum mánuði höfum við nú þegar fengið yfir 200 manns – öll þjónusta tefst samhliða þessu,“ segir hún. Upphaflega var því spáð að í ár myndu koma hingað um 600 til 1.000 hælisleitendur. Nú er ljóst að endan- leg tala verður nokkuð hærri. Berklasmit í hópi hælisleitenda  Öllum hælisleitendum er gert að gangast undir læknisskoðun  Berklasmit í búsetuúrræðum sögð heyra til undantekninga  Komuspáin fyrir árið sprungin Morgunblaðið/Kristinn Stjórnsýsla Mikill fjöldi hælisleit- enda hefur komið hingað til lands. Skotreyn, Skot- veiðifélag Reykjavíkur og nágrennis, hyggst nk. laug- ardag halda styrktarmót fyrir Lands- björg á skotvelli félagsins á Álfs- nesi í þakklæt- isskyni fyrir að bjarga lífum veiðimanna. Í tilkynningu frá Skotreyn segir að fyrirkomulag mótsins verði frá- brugðið hefðbundnu mótshaldi í leirdúfuskotfimi. Svæðið verður opið frá kl 10 - 16 og aðeins verða skotnar tíu dúfur á völlum 1, 2 og 3, eða alls 30 dúfur. Þátttakendur geta mætt hvenær sem er yfir daginn, þeir fá afhent skorblað og úrslit verða birt á net- inu. Engin verðlaun verða í boði, enda tilgangurinn að safna pen- ingum til að styrkja Landsbjörg, að því er fram kemur í tilkynning- unni. Landsbjörg Skot- menn þakka fyrir sig. Skotmenn styrkja Landsbjörg Afmælisfundur Samráðsvettvangs trúfélaga verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag kl. 17-19, en vett- vangurinn var stofnaður hinn 24. nóvember 2006 og er því tíu ára í dag. Á fundinum flytur Hilmar Örn Hilmarsson tónlist, kórinn Litróf syngur og ungmenni frá Filipps- eyjum sýna dans. Einnig heldur Sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslu- biskup í Skálholti, erindi um gildi trúar í nútímasamfélagi. Aðild að samráðsvettvanginum eiga flest trúfélög sem starfa hér á landi og er markmiðið að stuðla að umburðarlyndi og virðingu. Fundurinn er öllum opinn. Samráðsvettvangur trúfélaga er tíu ára ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR HREINAN JARÐHITAKÍSIL *Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf. Nánari upplýsingar má finna á www.geosilica.is GeoSilica kísilvatnið fæst í Heilsuhúsinu, öllum helstu apótekum og í Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind og Hagkaup Garðabæ. ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR „Ég mjaðmargrindarbrotnaði illa fyrir tíu mánuðum, ég hef verið að taka kísilinn ykkar núna í u.þ.b. 8 mánuði og eftir tveggja til þriggja mánaða inntöku varð ég strax vör við mikinn mun. Í dag finn ég varla fyrir því að hafa brotnað.“ • Styrkir bandvefinn* • Stuðlar að þéttleika í beinum* • Styrkir hár og neglur* • Stuðlar að betri myndun kollagens fyrir sléttari og fallegri húð* linisB Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Krónan, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Samkaup, Sunnubúðin er komið aftur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.