Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 44
FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 329. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Búið að slíta stjórnarviðræðum
2. Bar ekki þunga bílsins
3. Staðan tugum milljarða þrengri
4. Frítekjumark lækkar um 84 þúsund
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveiting Andakt flytur þjóð-
lög og sveitatónlist í bland á hádeg-
istónleikum í tónleikaröðinni Á ljúf-
um nótum í Fríkirkjunni í Reykjavík í
dag kl. 12. Andakt skipa Ágústa Sig-
rún Ágústsdótir, Haraldur V. Svein-
björnsson og Sváfnir Sigurðarson.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Andakt í Fríkirkjunni
Kristín Ómars-
dóttir tekur á
móti Auði Övu
Ólafsdóttur og
Sigurbjörgu
Þrastardóttur í
Gunnarshúsi í dag
kl. 17.30. Auður
og Sigurbjörg lesa
úr bókunum Ör og
Óttaslegni trompetleikarinn og aðrar
sögur. Þess á milli mun Kristín spyrja
þær spurninga sem einungis dýra-
læknar kunna rétt svör við. Sjálf mun
Kristín lesa brot úr bókmenntum
framtíðarinnar. Dagskráin tekur um
klukkustund og er aðgangur ókeypis.
Stríð og friður í
Gunnarshúsi
Sverrir Jakobsson, prófessor í
miðaldasögu við Háskóla Íslands,
flytur fyrirlestur um gerendur í pólit-
ísku rými Sturlungaaldar í Lögbergi í
HÍ í dag klukkan 16.30.
Þar beinir hann sjón-
um sínum að því
hvernig ástir og
ættartengsl blönd-
uðust inn í pólitíska
refskák og blóðs-
úthellingar. Aðgangur
er ókeypis.
Gerendur í pólitísku
rými Sturlungaaldar
Á föstudag Vestlæg átt 10-18 m/s um landið austanvert, mun
hægari vindur vestantil. Dálítil él norðanlands. Stöku skúrir eða él
á Vesturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi sunnan- og suðvestanátt með rign-
ingu, 10-18 m/s um hádegi og talsverð rigning. Úrkomuminna NA-
og A-lands.
VEÐUR
Aron Jóhannsson, lands-
liðsmaður Bandaríkjanna í
knattspyrnu, kveðst sakna
Jürgens Klinsmann, sem
var rekinn úr starfi sem
landsliðsþjálfari, enda hafi
Klinsmann haft trú á honum
og fengið hann til að spila
fyrir Bandaríkin. Aron
kveðst fullviss um að fá
tækifæri hjá nýjum þjálfara,
Bruce Arena, ef hann verði
nægilega góður til að eiga
skilið að vera valinn. »1
Aron saknar Jürg-
ens Klinsmann
„Ég spilaði líka fyrir sænska lands-
liðið en þar var ekki sama stemning
og í íslenska landsliðinu. Það var
mikið skemmtilegra að spila fyrir Ís-
land, því hér voru allir eins og eitt lið.
Menn hlógu, borðuðu og skemmtu
sér saman. Ég kann mjög vel við
það,“ segir Andrée Michelsson,
sænsk/íslenskur táningur sem sló í
gegn með körfubolta-
liði Snæfells á dög-
unum. »4
Miklu skemmtilegra að
spila fyrir Ísland
Kvennalandsliðið í körfuknattleik
tryggði sér þriðja sætið í riðli sínum í
undankeppni Evrópumótsins þegar
það hafði betur gegn Portúgal, 65:54,
í lokaleik sínum í riðlakeppninni, en
leikurinn fór fram í Laugardalshöll-
inni í gærkvöld þar sem Ísland gerði
út um leikinn í fjórða leikhluta. Ís-
lenska liðið vann tvo leiki í riðlinum
en tapaði fjórum leikjum. »3
Kvennalandsliðið varð í
þriðja sæti
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Það er minna um að eldri kettirnir
fái heimili og það er alltaf gleðilegt
þegar köttur sem við höldum að eigi
minna tækifæri en aðrir fær heimili.
Stundum kemur fólk inn og segir
„ég ætla að fá þann kött sem hefur
verið hérna lengst“ og þá erum við
hvað ánægðust,“ segir Halldóra
Björk Ragnarsdóttir, rekstarstjóri
Kattholts, sem heldur árlegan jóla-
basar á laugardag til styrktar starf-
seminni. ,,Nú síðast kom hingað
strákur sem valdi kött sem hafði
haldið sig til hlés. Ég hafði hugsað
mér að þetta yrði fínn hesthúsa-
köttur en svo eftir að ég lýsti hon-
um sagði strákurinn að þetta væri
nákvæmlega kötturinn sem hann
væri að leita að,“ segir Halldóra.
Þetta sé lýsandi dæmi um það
hvernig sumir eigendur og kettir
eigi vel saman.
Flestir fá heimili
Hún segir að kettir teljist gamlir
frá sex ára aldri. ,,Þeir eru kannski
ekki hér í mörg ár. Þetta eru kettir
sem finnast á vergangi. Þeir eru
kannski í þrjá mánuði hér í ein-
hverjum tilvikum,“ segir hún.
Alla jafna er hafist handa við að
finna köttum nýtt heimili eftir viku-
dvöl í Kattholti. „Sumir eru sóttir
og aðrir ekki og ef ekki þá förum við
í heimilisleitina. Það finnst heimili
fyrir flestalla. Algengast er að kett-
ir komi til okkar á sumrin og þá er
fólk uppteknara en á veturna og
óhjákvæmilega þurfa einhverjir
kettir að fara,“ segir Halldóra. Hún
segir dæmi um að kettir hitti eig-
endur sína mörgum árum eftir að
þeir týnist. Dæmi séu um að kettir
hafi komist til eigenda sinna fjórum
og sjö árum eftir að þeir týndust.
„Það getur verið ótrúlegt að sjá við-
brögðin í dýrunum, sem þekkja
jafnvel rödd eigandans löngu síðar.
Í þeim tilvikum er jafnvel önnur
fjölskylda búin að taka köttinn að
sér en svo týnist hann aftur og end-
ar hér og upprunalegi eigandinn
finnst eftir að örmerkið er skann-
að,“ segir Halldóra.
Bjóða frekar gjafabréf
Hún segir að dæmi séu þess að
fólk komi í Kattholt með það fyrir
sjónum að gefa ketti í jólagjöf. Hall-
dóra segir þó þvertekið fyrir það.
„Við bjóðum frekar gjafabréf. Svo
kemur viðkomandi í rólegheitum á
nýju ári þegar allt jólastússið er
yfirstaðið og kisan velur sér eiganda
frekar en öfugt. Þannig virkar
þetta,“ segir Halldóra.
Engar kisur í jólapakkann
Kattholt heldur
árlegan jólabasar
sinn um helgina
Morgunblaðið/Ófeigur
Hver vill eiga mig? Kattholt heldur basar á laugardag sem er liður í fjáröflun starfseminnar.
Basarinn fer fram á laugardaginn og stendur frá 11-16. Á basarnum verða til
sölu jólakort, jólapappír og merkimiðar, bolir, handverk, innkaupapokar,
jólabakkelsi og jólaskraut, ásamt glæsilegu dagatali fyrir árið 2017 og
mörgu fleiru. Allur ágóði fer til styrktar óskilakisunum og í Sjúkrasjóðinn
Nótt.
Sex starfsmenn eru hjá Kattholti í hlutastarfi, en opið er alla daga vik-
unnar frá 8-17 í miðri viku og hluta úr degi um helgar. Halldóra segir að hún
hafi tengst köttum alla ævi og því hafi hún „þvælst“ inn í þennan starfsvett-
vang. „Við gefum þeim að borða alla daga, líka á jóladag og gamlársdag. Þá
þarf að sinna þeim líka. Maður vill bara köttum vel,“ segir Halldóra.
Vill bara köttum vel
JÓLABASAR KATTHOLTS Á LAUGARDAG 11-16