Morgunblaðið - 24.11.2016, Síða 14

Morgunblaðið - 24.11.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við teljum að þessi hús geti hentað mjög fjölbreyttum hópi. Ungt fólk, sem er að kaupa sína fyrstu íbúð, er einn markhópurinn og ferðaþjónust- an er annar, svo dæmi séu tekin. Við höfum fengið mjög góðar við- tökur,“ segir Berta Gunnars- dóttir, fram- kvæmdastjóri og einn eigenda fyrirtækisins Modulus, sem byrjað er að flytja inn einingarhús úr timbri frá verksmiðju í Lettlandi. Koma húsin hingað fullbúin að inn- an sem utan, ásamt t.d. eldhústækj- um, blöndunartækjum og raftækjum. Kaupendur geta látið hanna húsin að vild, valið klæðningar, liti, lögun þaks og fleira, en stærð hverrar einingar takmarkast við 40 fermetra. Hægt er síðan að raða þeim saman eftir þörf- um hvers og eins. Afhendingartími, frá því að hús hefur verið pantað, er þrír til sex mánuðir. Húsin, sem fyrirtækið nefnir módúla, eru fram- leidd í verksmiðju í eigu Byko í Val- miera í Lettlandi. Þaðan eru þau flutt fullbúin með skipi að höfn í Reykja- vík. Að sögn Bertu er mælt með því að kaupandinn sé búinn að ganga frá undirstöðum áður en húsin eru færð á endanlegan stað. Hægt er að nota svipaðar undirstöður og undir sól- palla, t.d. forsteyptar súlur. Á áfangastað þarf kaupandinn að tengja rafmagn og vatn. Að öðru leyti teljast húsin fullbúin. Berta segir húsin standast allar kröfur hér á landi, eins og byggingareglugerðir. Tvö hús voru nýlega sett niður við Seljaveg/Mýrargötu í Reykjavík, þar sem einn eigenda Modulus er að reisa íbúðir. Þar hafa starfsmenn verktak- ans dvalið í góðu yfirlæti. Modulus hefur að undanförnu ver- ið í viðræðum við sveitarfélög, bæði vegna skipulagsmála og einnig með þann möguleika að koma upp litlum leiguíbúðum í tilefni af átaksverkefni Íbúðalánasjóðs og fleiri aðila. Þá hafa samningar tekist við ferðaþjónustu- fyrirtæki um kaup á nokkrum húsum. Góð reynsla í Svíþjóð „Við erum á byrjunarstigi að kynna þessa lausn á húsnæðismark- aðnum. Í dag er ekki gert ráð fyrir smáhýsum í deiliskipulagi; af þeim sökum fyrst og fremst erum við í við- ræðum við sveitarfélögin,“ segir Berta, en húsin hafa verið framleidd á markað í Svíþjóð undanfarin tvö ár og góð reynsla fengist þar. Eins og áður segir geta kaupendur látið hanna húsin eftir eigin þörfum en hver eining er bundin af ákveðnum lengdum til að hægt sé að flytja þau á milli staða. Þannig er hæðin fjórir metrar, breiddin fjórir metrar og lengdin 12 metrar. Hingað komin getur hver 40 fermetra eining kostað um 10 milljónir, fer allt eftir efnisvali, og er þá allt innifalið nema lóðarkostnaður og frágangur á lóð ásamt vinnu við tengingu fráveitu, rafmagns og vatns. Flutningur á hús- unum til landsins er t.d. innifalinn, en að sögn Bertu náðust hagstæðir samningar um flutninginn. Koma þau með timburflutningaskipi sem er í flutningum hingað fyrir Byko. Tilbúin hús frá Lettlandi Morgunblaðið/Ófeigur Einingarhús Fyrstu húsin frá Modulus standa við Seljaveg. Ljósmynd/Modulus Fullbúin Svona geta húsin litið út að innan, með tilbúnum innréttingum. Berta Gunnarsdóttir Modulus er lítið fjölskyldufyrirtæki í eigu Iðunnar Jónsdóttur og barna hennar, Bertu Gunnarsdóttur og Jakobs Helga Bjarnasonar. Iðunn er dóttir Jóns Helga Guðmundssonar, sem jafnan hefur verið kenndur við Byko. Á vefsíðunni Modulus.is segir m.a. að eigendur fyrirtækisins hafi fjöl- breytta reynslu tengda byggingariðnaði og þá sér í lagi öllu er varðar framleiðslu á timbri, en móðurfélag Byko, Norvik, hefur rekið timburverk- smiðju í Lettlandi í allnokkur ár. Eigendur tengjast Jóni í Byko MODULUS LÍTIÐ FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI  Fyrirtækið Modulus flytur inn einingarhús frá verksmiðju Byko í Lettlandi  Koma fullbúin til landsins að innan sem utan  Viðtökur hafa verið góðar Falsaðir 10.000 króna seðlar voru notaðir til að greiða fyrir veitingar á mat- sölustað í mið- borg Reykjavík- ur í síðustu viku og er málið til rannsóknar hjá Lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu. Fyrr í mánuðinum kom annað slíkt mál á borð lögreglu, en þá var karlmaður handtekinn eftir að hafa ætlað að greiða fyrir við- skipti á bensínstöð í austurborg- inni með fölsuðum 10.000 króna seðli. Þar leiddi árvekni starfs- manns til handtökunnar. Lögreglan beinir þeim til- mælum til afgreiðslufólks að vera á varðbergi vegna þessa og eru þeir sem eru í afgreiðslustörfum hvattir til að kynna sér helstu ör- yggisþætti íslenskra peninga- seðla. Ef fólk verður vart við falsaðan seðil skal kalla til lögreglu í gegnum 112, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu frá lög- reglu. Greiddu með fölsuðum seðlum Seðill Jónas Hall- grímsson á 10.000 kr seðlinum. Vinnumálastofnun opnaði 21. nóv- ember síðastliðinn Greiðslustofu húsnæðisbóta og upplýsinga- og umsóknarvefinn www.husbot.is þar sem leigjendur geta sótt um húsnæðisbætur samkvæmt nýjum lögum um húsnæðisbætur sem taka gildi 1. janúar 2017. Í frétt á vefsíðu Velferðarráðu- neytisins segir að lög um húsnæðis- bætur, sem voru samþykkt á Al- þingi síðastliðið sumar, taki gildi 1. janúar næstkomandi. Á sama tíma falla úr gildi lög um húsaleigu- bætur og hlutverk sveitarfélaganna varðandi útgreiðslu húsnæðisstuðn- ings til leigjenda flyst til Greiðslu- stofu húsnæðisbóta. Markmið laga um húsnæðisbætur er að lækka húsnæðiskostnað efna- minni leigjenda og draga úr að- stöðumun á húsnæðismarkaðnum. Vinnumálastofnun annast fram- kvæmd húsnæðisbótakerfisins. Nú hægt að sækja um húsnæðisbætur alvöru grillaður kjúklingur Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585 Opið alla daga kl. 11-22 Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening? ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.