Morgunblaðið - 24.11.2016, Side 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone Legend
™
Enn snjallara heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
Maður í líki Kens, kærasta leikbrúðunnar Barbie, stóð í
stórum, bleikum kassa á götu í Lausanne í Sviss í gær
til að vekja athygli á slæmum aðbúnaði verkafólks í
leikfangaverksmiðjum í Kína. Mannúðarsamtökin Sol-
idar stóðu fyrir þessu í tilefni af því að þau hófu undir-
skriftasöfnun á netinu sem beinist gegn bandaríska
leikfangafyrirtækinu Mattel. Samtökin hvetja það til að
axla ábyrgð á slæmum aðbúnaði kínversks verkafólks
sem framleiðir leikföng þess, binda enda á „80 stunda
vinnuviku“ og sjá fólkinu fyrir mannsæmandi launum.
Ken vekur athygli á slæmum aðbúnaði verkafólks í Kína
AFP
Fólkið fái mannsæmandi laun
Handskrifað ljóð eftir gyðingastúlk-
una Önnu Frank var selt fyrir jafn-
virði tæpra 17 milljóna króna á upp-
boði í hollensku borginni Haarlem í
gær.
Ónafngreindur maður á netinu
bauð hæst í ljóðið sem fór á mun
hærra verði en sett var á það. Upp-
haflegur verðmiði á ljóðinu var um
3,6 milljónir króna.
Um tuttugu safnarar sátu í saln-
um þar sem uppboðið fór fram á veg-
um uppboðshaldarans Bubb Kuyp-
er. Þar að auki buðu nokkrir í ljóðið
símleiðis og í gegnum netið.
„Á síðustu 40 árum hafa aðeins
fjögur eða fimm skjöl, undirrituð af
stúlkunni, verið boðin upp,“ sagði
Thys Blankevoort, annar af stjórn-
endum Bubb Kuyper.
Ljóðið, sem var tileinkað „Elsku
Cri-cri“, var skrifað á hollensku með
svörtu bleki á hvítt minnisblað sem
hefur upplitast nokkuð með árunum.
Það var undirritað með orðunum:
„Minning, frá Önnu Frank“.
Ljóðið er 12 línur og var skrifað
28. mars 1942, aðeins þremur mán-
uðum áður en Anna og fjölskylda
hennar fóru í felur frá nasistum í
Amsterdamborg.
Dagbókin seld í 30
milljónum eintaka
Dagbók Önnu Frank, sem hún
skrifaði frá júní til ágúst árið 1944,
hefur selst í meira en 30 milljónum
eintaka á 67 tungumálum.
Anna Frank lést í Bergen-Belsen
útrýmingarbúðunum í Þýskalandi
snemma árs 1945, tæpu ári eftir að
nasistar handtóku hana og skömmu
áður en síðari heimsstyrjöldinni
lauk. freyr@mbl.is
Ljóð eftir Önnu
Frank boðið upp
Handskrifað ljóð selt á 17 milljónir
AFP
Ljóðið Skrifað á hollensku með svörtu bleki á hvítt minnisblað.