Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 24.11.2016, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2016 ✝ J. SigríðurElentínusdóttir fæddist í Keflavík 29. september 1939 í Keflavík. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. nóv- ember 2016. Foreldrar henn- ar voru Margrét Hansína Sverr- isdóttir frá Norð- firði, f. 20. janúar 1911, d. 18. júlí 1947, og Elent- ínus Júlíusson frá Keflavík, f. 2. október 1905, d. 13. janúar 1977. Systkini: Sverrir, f. 10. ágúst 1937, d. 23. ágúst 1991, Svanhildur, f. 31. mars 1942, og Margeir, f. 9. október 1954. Seinni kona Elentínusar, móðir Margeirs, var Þuríður Þórð- ardóttir, f. 8. júlí 1916 á Eski- þeirra er Viktor Breki, f. 3. mars 2010. Eiginkona Sigurðar er Rachel Parker, f. 23. febrúar 1971. Börn þeirra eru Noah, f. 25. nóvember 1991, Anna, f. 15. janúar 1995, Leah, f. 24. febr- úar 1998. Hinn 31. desember 1987 gift- ist Sigríður eftirlifandi eig- inmanni sínum Hauki Reyni Ís- akssyni, f. 3. júní 1931. Dóttir Hauks er Ingunn Hildur, f. 5. mars 1969. Sambýlismaður Ing- unnar er Þröstur Þorbjörnsson, f. 10. júní 1962. Sigríður og Haukur bjuggu sér heimili í Kópavogi. Að loknu skyldunámi fór Sigríður að vinna á símstöð- inni í Keflavík og síðar á sím- stöðinni á Keflavíkurflugvelli, lengst af sem vaktstjóri. Eftir að hún flutti í Kópavog vann hún m.a. við gæslu barna á leikskólanum Kópasteini og við umönnun heimilisfólks á Hrafn- istu í Laugarási, Reykjavík. Útför Sigríðar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 24. nóv- ember 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. firði, d. 24. október 1985. Dóttir henn- ar er Guðrún Hrönn Krist- insdóttir, f. 27. jan- úar 1945. Fyrri eiginmaður Sigríð- ar var Harry Hopkin Witt, f. 16. september 1939. Sonur þeirra er Sigurður Sverrir, f. 24. apríl 1965. Sonur Sigurðar er Arnar, f. 25. janúar 1988. Móðir hans er Margrét Guðmundsdóttir, f. 16. september 1968. Dætur Mar- grétar og ömmustelpur Sigríð- ar eru Eydís Arnarsdóttir, f. 10. janúar 1993, og Alexandra Arnarsdóttir, f. 3. júlí 1998. Kona Arnars er Inga Ingadótt- ir, f. 16. febrúar 1984. Sonur Elsku besta amma Sigga. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig. Þú mættir á fótboltaleikina mína til að styðja mig og ég gleymi því ekki þegar þú ætlaðir að storma inn á völlinn þegar þú sást að ég hafði slasað mig. Svona varstu, amma mín, alltaf til taks og tilbúin að stökkva til ef eitthvað bjátaði á. Þegar ég var veik og mér leið ekki vel þá fékk ég að koma til þín í heimsókn. Við bök- uðum saman og þú hughreystir mig. Mér leið alltaf svo vel hjá þér. Ég minnist þess, þegar ég mætti oft með prjónadótið til þín. Það er óhætt að segja að prjónaskapur hafi ekki verið mín sterkasta hlið. Lykkjuföll alls staðar og allt kom- ið í klessu, ég orðin pirruð á því að ekkert gekk upp en á einhvern hátt tókst þér alltaf að laga þetta fyrir mig og bjarga þessu. Svo kláraðir þú bara restina fyrir mig. Þú kunnir sannarlega að hjálpa manni og koma manni í gott skap. Þú kenndir mér hvað það þýðir að trúa og hversu mikilvægt það er. Þú kenndir mér svo margar fallegar bænir sem ég fer reglu- lega með fyrir svefninn og þegar mér líður illa. Þú verður alltaf stór partur af mér og minningar um þig mun ég varðveita í hjarta mínu alla ævi. Ég mun sakna þín ótrú- lega mikið en ég veit að þér líður vel og ert á góðum stað. Hvíldu í friði, elsku amma mín. Eydís Arnarsdóttir. Elsku amma mín. Mér er tregt tungu að hræra þegar ég minnist þín. Á stundum sem þessari er margt sem sækir á hugann, minningar um þig koma upp á yfirborðið, allt frá barnæsku minni. Það var margt sem ég lærði af þér. Það varst þú sem kenndir mér að reima skóna mína þegar ég var hjá þér og afa Hauki á Ás- braut. Það varst þú sem kenndir mér faðirvorið. Þú sást til þess að ég lærði bænina í snatri og svo var kannað í næstu gistingu hvort ég kynni ekki bænina ennþá. Það var svo margt sem við gerðum saman. Ferðalög okkar til Ameríku. Allar okkar ferðir í sund og berjamó, ferðin til Þórsmerkur og síðan öll hin ævintýrin. Líkt og þegar við vorum nærri búin að missa af lest- inni. Í hamaganginum dast þú á malbikið. Lýsandi fyrir karakter þinn, léstu fallið ekki stoppa þig heldur stóðstu strax upp, blóðug á hnjánum og greipst í höndina á mér og tryggðir að við náðum lest- inni. Þú gerðir allt til þess að skemmta mér, kenndir mér lífs- kúnstir og gafst mér ráð. Þú áttir það til að segja: „Það má ekki líta af þessum dreng í eina mínútu.“ Og tuttugu og fimm árum síðar hafði ekkert breyst þegar þú sagðir það sama um son minn Viktor Breka og leist ekki af hon- um í eina sekúndu. Þú varst svo hjartahlý og skemmtileg. Á fullorðinsárum breyttist það ekki hve sérlega gott það var að eiga „ömmu Siggu“ að. Þegar ég sótti nám vestanhafs fyrir áratug skrifaðir þú mér stundum bréf upp á gamla mátann. Þú varst aldrei mikið fyrir tölvur enda sagðirðu sjálf í einu bréfi til mín: „Elsku drengurinn minn, þú átt nú aldeilis gamaldags ömmu sem skrifar bara bréf, engin tölva. Einu skipt- in sem ég kem nálægt því apparati er þegar ég þurrka af og þá kvikn- ar óvart á henni.“ Í öðru bréfi lýs- irðu sjálfri þér skemmtilega: „Ég hef alltaf verið fljótfær og svolítið á undan sjálfri mér,“ eftir að hafa fengið til baka bréf sem þú sendir óvart vestur á Ísafjörð, en bréfið átti upphaflega að fara til Amer- íku. Þegar ég flutti aftur til Íslands komstu reglulega færandi hendi í heimsókn með nýtínd ber, heima- bakað brauð eða nýprjónaða flík. Á mínu heimili eru hvorki meira né minna en sjö lopapeysur sem þú hefur prjónað á okkur og við er- um bara þrjú talsins. Í janúar bæt- um við, Inga Þóra, við fjórða fjöl- skyldumeðlimnum – þínum öðrum langömmudreng. Minningarnar um þig eru margar og þeim verður aldrei komið öllum fyrir hér. Staðreynd- in er sú að raunveruleikinn blasir við. Ég á erfitt með að kyngja því að ég komi aldrei til með að sjá þig aftur á þessari jörð. Það veitir mér þó hugarró að vita að nú ertu kom- in á betri stað og að núna líður þér vel. Það mun alltaf lifa í minningu minni hversu vel þú fagnaðir komu minni. Ég er þakklátur fyrir allar þær yndislegu stundir sem ég átti með þér. Og allar þær minningar sem ég á um þig, varðveiti ég í hjarta mínu alla ævi. Ég finn fyrir nálægð þinni og veit að nú hef ég verndarengil, sterkari en nokkru sinni fyrr. Takk fyrir allt og ég kveð þig með sömu orðum og þú varst vön að kveðja mig með: „Guð geymi þig drengurinn minn!“ Guð geymi þig, amma mín. Arnar Sigurðsson. Í dag kveð ég Sigríði systur mína sem var svo samofin tilveru minni að vart leið sá dagur að við töluðum ekki saman. Sigga ólst upp í Keflavík, fyrstu árin í for- eldrahúsum, en fimm ára var hún tekin í fóstur af Láru föðursystur okkar og manni hennar Helga Jónssyni. Naut hún þar mikillar ástúðar. Átta ára missti hún móð- ur sína og síðar sama ár veiktist Lára af lömunarveiki og átti hún í þeim veikindum í mörg ár og náði sér aldrei fyllilega. Föðuramma okkar, Sigríður Sverrína, breiddi þá væng sinn yfir telpuna, tók hana að sér og vildi Sigga hvergi annars staðar vera. Amma inn- rætti nöfnu sinni lífsgildi sín, heið- arleika, sannsögli, hjálpsemi og vinnusemi og tileinkaði Sigga sér þessar dyggðir í ríkum mæli. Sig- ríður amma var mjög trúuð og kenndi telpunni bænir og vers og ólst Sigga upp við ást ömmu á séra Hallgrími. Voru Passíusálmarnir og önnur kver Hallgríms alltaf inn- an seilingar á náttborðinu. Amma, Elli pabbi og Sigga sóttu stíft sunnudagsmessur. Þeim leið vel undir messugjörðinni og ræðum séra Eiríks. „Ertu nú komin aftur, Sigríður mín?“ sagði Eyjólfur meðhjálpari þegar amma birtist með telpuna í síðdegismessunni á hátíðardegi, eftir að hafa verið við morgunmessu. Sigga var myndarleg kona, glaðvær og skemmtileg, dökk á brún og brá og bar höfuðið hátt. Hún var skaprík, hreinskilin og hrifnæm, hafði ríka réttlætiskennd og sagði hiklaust skoðanir sínar. Rúmlega tvítug fluttist hún til Bandaríkjanna, giftist og bjó þar í fjögur ár. Hún sneri heim með lít- inn yndislegan drenghnokka, sem vann hug og hjarta allra. Sigga lagði hart að sér til þess að eignast eigin íbúð og komu mæðginin sér fyrir nálægt Láru og Helga sem tóku miklu ástfóstri við Sigurð Sverri. Kom hann þeim í sonar stað, líkt og þau höfðu tekið að sér móður hans forðum. Tæplega fimmtug kynntist Sigga Hauki Ís- akssyni. Það varð henni til mikillar gæfu því hann veitti henni kær- komna kjölfestu og öryggi. Sigga og Haukur nutu lífsins, ferðuðust víða og stunduðu félagsstarf eldri borgara í Kópavogi. Í Skammadal í Mosfellssveit áttu þau lítið garð- hús. Þar ræktaði Haukur kartöflur og grænmeti og Sigga mín sat úti í sólinni og prjónaði. Við hjónin eignuðumst lítið garðhýsi við hlið þeirra og þar nutum við öll sam- vista í kyrrðinni. Sigga var einstaklega kirkju- rækin. Hún byrjaði hvern dag á að horfa til kirkjunnar sinnar, fór með bænir og bað fyrir hópnum sínum. Gott var að vita af slíkum fyrir- bænum og munu þær lifa með okk- ur. Fyrir nokkrum árum fór að bera á einkennum heilabilunar hjá Siggu og greindist hún með Lewy- sjúkdóminn skömmu síðar, sem reyndist vægðarlaus. Þau hjón tókust á við breyttar aðstæður með jafnaðargeði og annaðist Haukur konu sína af mikilli ástúð þar til yfir lauk. Sigríður lést á Landspítalanum í Fossvogi, deild A-7. Þar naut hún einstakrar umönnunar og erum við afar þakklát fyrir það. Þá sjávarbylgjan blá borðinu skellur á, þín hægri hönd oss haldi og hjálpi með guðdóms valdi. Jesús mér fylgi í friði með fögru engla liði. (H.P.) Við kveðjum systur mína og mágkonu og biðjum henni guðs- blessunar. Svanhildur Elentínusdóttir, Einar Hjaltested. Meira: mbl.is/minningar Elskuleg æskuvinkona mín hún Sigga er nú fallin frá. Margs er að minnast eftir langa og einstaklega góða vináttu. Við kynntumst í gegnum for- eldra okkar sem voru vinafólk en feður okkar höfðu verið vinir frá bernsku og var sú vinátta bæði fal- leg og einstök. Við bjuggum nálægt hvor ann- arri í gamla bænum í Keflavík og Sigga kom iðulega við hjá mér á morgnana og vorum við svo sam- ferða í skólann. Eftir skóla var gott að fara heim með Siggu í rólegheit- in hjá ömmu hennar. Amma hennar var trúuð kona og lét okkur læra Biblíusögurnar utan að. Sigga var ekki í neinum vandræðum með það. Sigga var alla tíð trúuð, hjálpaði trúin henni mikið á erfiðum tímum. Sömuleiðis var Sigga skemmtileg, henni fylgdi ávallt hlátur og gleði. Það eru engar ýkjur að segja að í kringum okkur hafi aldrei nokkurn tíma verið lognmolla. Leiðir okkar skildi um tíma þeg- ar Sigga flutti til Bandaríkjanna og ég til Húsavíkur. Við skiluðum okkur þó báðar aftur til Keflavík- ur. Þá endurnýjuðum við auðvitað vinskapinn, sem hefur haldist alla tíð síðan og verið okkur svo dýr- mætur. Elsku Sigga mín, nú get ég yljað mér við skemmtilegu minningarn- ar okkar. Við gátum endalaust hlegið þegar við rifjuðum upp ým- islegt það sem við brölluðum á uppvaxtarárunum. Til að mynda má nefna það þegar við vorum að stelast til að reykja og földum síg- aretturnar undir steini niðri í fjöru. Ég get varla lýst því hversu mikil vonbrigðin voru þegar við náðum svo í þær og komumst að því að þær voru allar hundblautar og ónýtar. Á síðustu 20 árum höfum við báðar búið á höfuðborgarsvæðinu. Þá hittumst við reglulega og fórum í bæinn. Við fórum gjarnan á kaffi- hús, rifjuðum upp gamlar minning- ar og það skemmtilegasta sem við höfðum verið að bardúsa. Annað og leiðinlegra létum við eiga sig. Það er ótal margt sem við höfum gert saman. Við fórum líka saman til Portoroz í sólarlandaferð en það vildi þannig til að veðrið var ekkert sérstakt. Þegar við komum heim kvartaði Sigga yfir því við Kidda Dan sem seldi okkur ferðina. Þetta fannst okkur nú fyndið seinna meir. Ekki má gleyma ferðunum okk- ar á Ljósanótt en við fórum alltaf saman í árgangagönguna. Því mið- ur var gangan á síðasta ári sú síð- asta sem við fórum saman í og ég gerði mér grein fyrir því. Sigga var góð manneskja og traust vinkona sem alltaf var hægt leita til og aldrei kom upp ósætti á milli okkar. Ég er þakklát fyrir að hafa átt þessa dýrmætu vináttu í öll þessi ár og þakka innilega fyrir allar samverustundirnar. Við kveðjumst að sinni, kæra vinkona, og hittumst svo glaðar og kátar þegar minn tími kemur. Elsku Haukur, Siggi og aðrir aðstandendur, ég sendi ykkur innilegar samúðarkveðjur. Bára Erna Ólafsdóttir. Þegar maður er lítill og heim- urinn stór skiptir öllu máli að til- veran sé í föstum skorðum. Reglu- legar helgarferðir til ættingjanna í Keflavík voru alltaf mikið til- hlökkunarefni. Það var ekki síst vegna heimsókna til Siggu frænku þar sem á móti manni tók hlýja og glaðlyndi. Það kom fyrir að við systkinin fengum að gista og nú þegar Sigga er horfin á braut rifj- ast upp minningar um gleðina sem fylgdi þessum stundum. Sigga var systir mömmu og náin vinátta þeirra gerði það að verkum að nærvera hennar var órjúfanleg- ur hluti æsku minnar. Börnin mín hafa í seinni tíð notið þess að hitta Siggu frænku heima hjá ömmu sinni og afa eða uppi í Skammadal. Í gegnum þau samskipti upplifði ég aftur þessa einlægu gleði og kímni- gáfu sem var svo rík í fari Siggu. Fyrir það er ég þakklátur. Góðu, hláturmildu frænku minnar verður sárt saknað. Elsku Haukur og Siggi frændi. Hugur minn er hjá ykkur. Einar Kristinn og fjölskylda. J. Sigríður Elentínusdóttir Eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, SÓLVEIG AÐALBJÖRG SVEINSDÓTTIR kennari, frá Víkingavatni, lézt á heimili sínu 15. nóvember. Útför fer fram frá Háteigskirkju föstudag 25. nóvember klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á MND-félagið. . Ágúst H. Bjarnason Hákon Ágústsson Þóra Kristín Bjarnadóttir Björn Víkingur Ágústsson Vigdís Tinna Hákonardóttir Sólveig Freyja Hákonardóttir Ástkær móðir okkar, BERGLJÓT SIGURÐARDÓTTIR, sem lést þriðjudaginn 8. nóvember, verður jarðsett frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. nóvember klukkan 13. . Sigurður Sigfússon, Kristján Sigfússon og aðrir vandamenn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HILDA FANNÝ NISSEN, Skúlagötu 40a, lést 21. nóvember. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjartavernd. . Elísa Björk Sigurðardóttir, Sigríður Ósk Sigurðardóttir, Þráinn Alfreðsson, Kristín Bjartmarsdóttir, Brynjar Kristjánsson, Hilda Ríkharðsdóttir, Axel Karlsson, Kristján Bjartur Brynjarsson, Tinna Bergdís Brynjarsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, FINNBOGI F. ARNDAL, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi sunnudaginn 20. nóvember 2016. . Hjördís Stefánsdóttir Arndal, Stefán F. Arndal, Þórdís Eiríksdóttir, Hreinn F. Arndal, Ingibjörg Snorradóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÞÓRÐARSON, Fossvegi 6, Selfossi, andaðist á Fossheimum 21. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Andrea Tryggvadóttir, Ólafía Sigurðardóttir, Kristján T. Sigurðsson, Hringur Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARGRÉT SIGURJÓNSDÓTTIR (Maggý), Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, áður Brimhólabraut 5, lést mánudaginn 21. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Elías Gunnlaugsson, Hjördís Elíasdóttir, Hannes Thorarensen, Björk Elíasdóttir, Stefán Örn Jónsson, Viðar Elíasson, Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.