Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 6
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Hillur í úrvali – Spænskar gæðavörur Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Bostik/Heydi K11 þéttimúr kr.4.290 Versatile 5 hillur 192x100x40cm,150kg 9.592 Stabil 5 hillur 176x90x40cm, 176kg 6.392 Arakit 4hillur 150x75x30 40kg 2.312 Premium 5 hillur 180x90x40, 65kg 5.592 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016 BAKSVIÐ Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Línur virðast ekki hafa skýrst mikið um helgina hvað varðar myndun nýrrar ríkisstjórnar. Þreifingar voru þó í gangi á milli manna alla helgina og mikil samtöl í allar áttir, án þess að nokkuð kæmi út úr þeim sem hönd er á festandi, a.m.k. ekki í bili. Svo virðist sem þeir Bjarni Bene- diktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, og Óttarr Proppé, for- maður Bjartrar framtíðar, haldi spil- unum þétt að sér, því þingmenn þess- ara flokka, sem rætt var við í gær, virtust ekki hafa neina skýra mynd af því sem formennirnir hafi verið að ræða sín á milli yfir helgina. Morg- unblaðið hefur heimildir fyrir því að Bjarni Benediktsson og Óttarr Proppé hafi áhyggjur af því hversu þingmeirihlutinn væri naumur ef þeir mynduðu ríkisstjórn með Viðreisn, eða 32 þingmenn alls. En þar sem Viðreisn má ekki heyra minnst á að fá Framsóknarflokkinn að borðinu virð- ist Framsókn hvergi standa til boða að taka þátt í ríkisstjórnarsamstarfi. Viðmælendur í gær voru sammála um að heldur hefði róast milli flokka, hvað varðaði ágreining, og nú væru menn farnir að opna á að gefa eitt- hvað eftir af sínum ýtrustu kröfum. Þetta eigi við um Sjálfstæðisflokk, VG, Viðreisn og Bjarta framtíð, þann- ig að menn séu að opna sig gagnvart hugmyndum sem áður voru óhugs- andi. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem rætt var við í gær, virtust telja að viðræður hefðu eitthvað mjakast í átt að niðurstöðu, en töldu jafnframt að enn stæðu út af sömu mál og sigldu fyrri viðræðum þeirra í strand. Þar segja þeir að hæst beri ágreining í Evrópusambandsmálinu og sjávarút- vegsmálum. Þetta mun eiga bæði við um Viðreisn og VG. Enn sami ágreiningurinn Sjálfstæðisflokkurinn bauð upp á það í fyrri viðræðum við Viðreisn og Bjarta framtíð að Evrópumálin færu beint til þingsins og enginn flokkanna þriggja yrði bundinn af neinu fyrir- fram í þeim efnum. Viðreisn gerði, samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins, kröfu um að Sjálfstæðisflokkur- inn lofaði stuðningi við þeirra tillögur í Evrópumálum og fengu synjun við slíku. Þá mun Viðreisn hafa viljað fá loforð Sjálfstæðisflokksins um hjá- setu, þegar tillaga þeirra í Evrópu- málum kæmi til kasta þingsins og fengu aftur synjun. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í gær, að ef formlegar viðræður við Viðreisn og Bjarta framtíð yrðu niðurstaðan, þyrftu flokkarnir að komast að málamiðlun í sjávarútvegs- málum. Hún gæti verið í því fólgin að niðurstaðan yrði sú að farin yrði upp- boðsleið á hluta kvótans. Það þýddi umtalsverða kerfisbreytingu, sem vonlaust væri að fullvinna í stjórn- arsáttmála. Því taldi hann að rétt væri að færustu sérfræðingar yrðu skipaðir af flokkunum þremur til þess að útfæra og vinna slíka kerfisbreyt- ingu, sem m.a. yrði þannig úr garði gerð, að það væru girðingar í kerf- isbreytingunum sem kæmu í veg fyr- ir að þeir stærstu í útgerðinni gætu keypt þann kvóta sem yrði boðinn upp. „Í þessum efnum er því lykil- atriði að traust ríki á milli flokkanna, þannig að enginn efist um að ráðast eigi í einhverjar kerfisbreytingar,“ sagði þingmaðurinn. Vilja frið um sjávarútveginn „Við erum margir á þingi sem vilj- um að einhverju leyti koma til móts við þessar óskir í þjóðfélaginu að hluti kvóta verði boðinn upp árlega. Það er einfaldlega löngu kominn tími á það að búa til frið um þennan mikilvæga atvinnuveg. Sjálfstæðisflokkurinn þarf bara að vera tilbúinn að klippa að einhverju leyti á naflastrenginn við útgerðina,“ sagði þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Ákveðnir stuðningsmenn Vinstri grænna voru í gær þeirrar skoðunar að ekki væri útséð um það hvort Sjálfstæðisflokkur og VG gætu náð saman. Þeir sem rætt var við töldu að það gæti verið flötur á því að ná sam- an við Sjálfstæðisflokkinn, með því að fá Samfylkinguna til liðs við Sjálf- stæðisflokk og VG. Þeir töldu að mun lengra væri í að hægt yrði að ná sam- an með Viðreisn og Sjálfstæðisflokki. „Það ber miklu meira á milli VG og Viðreisnar en okkar og Sjálfstæðis- flokksins, en ég veit ekki hvað gerist,“ sagði forystumaður í VG í gær. Landsbyggð – höfuðborg Líkt og kom fram í fréttaskýringu hér í Morgunblaðinu á laugardag er fullyrt að skiptar skoðanir séu innan VG um hvort rétt sé að efna til rík- isstjórnarsamstarfs við Sjálfstæðis- flokkinn. Grófa skiptingin í þeim af- stöðumun er sögð vera sú að þingmenn flokksins í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi eru sagðir and- vígir, en flestir þingmenn lands- byggðarinnar vilji láta reyna á slíkan möguleika. Ekki mun þó eining innan þessa hóps um það hvort þriðji flokk- urinn í slíku samstarfi ætti að vera Framsóknarflokkurinn eða Samfylk- ingin. Tækist að ná Sjálfstæðisflokki, VG og Framsókn saman í stjórn, hefði hún tryggan þingmeirihluta að baki sér, eða 39 þingmenn. Ef Sam- fylkingin færi aftur með hinum flokk- unum tveimur, væru 34 þingmenn að baki stjórninni. Verði engar frekari fréttir af málum í dag, telja ákveðnir þingmenn sem rætt var við í gær, að einhverra tíðinda megi búast við frá Bessastöðum í dag. Formenn halda spilum þétt að sér  Búist við að hinar pólitísku línur muni eitthvað skýrast í dag  Lykilatriði að traust myndist milli hugsanlegra samstarfsflokka  Telja að hægt sé að ná sátt um ákveðnar kerfisbreytingar í sjávarútvegi Morgunblaðið/Árni Sæberg Önnur umferð? Spurning hvort flokksformennirnir þrír, Óttarr, Benedikt og Bjarni, hefji aðra umræðu viðræðna. Erla Rún Guðmundsdóttir erlarun@mbl.is Ísbjarnarstytta eftir listamanninn Guðmund frá Miðdal fannst nýver- ið í dánarbúi en að sögn Guð- mundar Einarssonar, sonarsonar listamannsins, vissu afkomendur hans ekki af styttunni. Segir Guð- mundur að fjölskyldan hafi kann- ast við form styttunnar en ekki vitað af eintakinu sem um ræðir. Styttan er af tveimur ísbjarnar- húnum en tvær stórar samskonar styttur voru gerðar eftir pöntun frá Blönduósi. „Í kringum 1960 kemur pöntun til afa um að búa til tvo húna og það er þessi litla stytta, bara í stækkaðri mynd. Þeir eru búnir til og settir fyrir utan sjúkrahúsið. Þá er einhver óheppinn bílstjóri sem bakkar á aðra þeirra og ekki nóg með það því það kemur svo mikið fát á hann að hann keyrir líka á hina.“ Að sögn Guðmundar var Yngvi Guðmundsson, sonur listamanns- ins, fenginn til að gera við stytt- urnar. „Þær eru núna í inngangi apóteksins á Blönduósi. Yngvi segir að þær séu í fínu standi.“ Þá segir Guðmundur að stytturnar séu mjög fallegar en að vissu leyti ólíkar öðrum verkum afa síns. „Það er eitthvað við þetta form. Þetta er svolítið ólíkt afa.“ Vita af einni annarri styttu Guðmundur segist ekki hafa vit- að af litlu styttunum en að Yngvi hafi þó gert við eina slíka fyrir nokkrum árum. „Yngvi man eftir einni svona lítilli styttu sem hann gerði við en þessi er alveg heil svo það er ekki sama styttan.“ Þá seg- ir hann hvorki mót né kjarna fyrir mótagerð hafa fundist í Listvina- húsinu sem Guðmundur eldri stofnaði árið 1927 og er enn starf- andi í dag. „Faðir minn rak List- vinahúsið í fimmtíu ár og fram- leiddi úr þessum mótum á sínum tíma.“ Húnastyttan verður seld á upp- boði hjá Gallerí Fold á þriðjudag- inn næsta og segir Tryggvi Páll Friðriksson, einn eigenda gallerís- ins, líklegt að hún verði metin á um 3-400 þúsund krónur. Fágæt ísbjarnastytta  Húnastytta eftir Guðmund frá Miðdal  Fjölskyldan vissi ekki af tilvist hennar  Verður seld á uppboði í næstu viku Morgunblaðið/RAX Staðfest Guðmundur Einarsson skoðaði ísbjarnastyttuna í Gallerí Fold í gær og staðfesti þar að hún væri eftir afa sinn, Guðmund frá Miðdal. Veitingahúsakeðja Jamies Oliver, Jamie’s Italian, opnar stað á Hótel Borg í apríl eða maí árið 2017. Rekstur veitingastaðarins verður í höndum Finna Karlssonar og Jóns Hauks Baldvinssonar. Jamie’s Italian-staðirnir hafa not- ið mikilla vinsælda um allan heim og eru í miklum vexti. Nú þegar eru 42 veitingastaðir í Bretlandi og um 25 aðrir víðsvegar um heiminn. Hver og einn staður hefur sitt eigið auð- kenni og eigin hönnunarstíl og mun Jamie’s Italian á Íslandi heiðra Hótel Borg í sinni nálg- un. „Þegar við opnum dyrnar munum við bera fram einfaldan og hagkvæman ítalskan mat fyrir alla fjölskylduna, sem er gerður úr bestu mögulegu hráefnum sem við komumst í. Ég get ekki beðið eft- ir að opna á Íslandi,“ segir Jamie Oliver í tilkynningu. Jamie Oliver-staður opnaður á Borginni Jamie Oliver

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.