Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016
Elsku afi okkar,
nú ertu fallinn frá,
þín verður sárt
saknað. Minning-
arnar eru svo margar, elsku afi,
eins og Svöluhraunið birtist okk-
ur ljóslifandi þar sem við borð-
uðum afakex (sem við kölluðum)
og dýfðum í kaffi til að vera alveg
eins og þú. Þú gantaðist með okk-
ur, alltaf svo fullur af gáska og
góðlátlegri stríðni. Jólin hátíð-
legu sem við áttum alltaf með þér
og ömmu eru okkur svo minnis-
stæð. Eins og þegar búið var að
opna alla jólapakkana og öllum
pappír var sturtað á stofugólfið í
eina risa hrúgu og fengum við
barnabörnin að taka dýfu í papp-
írinn og vakti það mikla kátínu og
fögnuð okkar allra. Við gátum
alltaf leitað til þín afi með allt,
umhyggja þín var ómetanleg og
litar allar æskuminningar okkar
fallegum ljóma.
Nú hefur það því miður gerst
að vond frétt til manns berst
Kær vinur er horfinn okkur frá
því lífsklukkan hans hætti að slá
Rita vil ég niður hvað hann var okkur
kær
afi minn góði sem guð nú fær.
Gísli Hvanndal
Jónsson
✝ Gísli HvanndalJónsson fædd-
ist 3. desember
1929. Hann lést 12.
nóvember 2016.
Útför Gísla
Hvanndal fór fram
21. nóvember 2016.
Hann gerði svo mikið,
hann gerði svo margt
og því miður get ég ekki
nefnt það allt.
Að tala við hann var svo
gaman
á þeim stundum sem við
eyddum saman.
Hann var svo góður, hann
var svo klár
æ,hvað þessi söknuður er
sár.
En eitt er þó víst
og það á við mig ekki síst
að ég sakna hans svo mikið, ég sakna
hans svo sárt
hann var mér góður afi, það er klárt
En alltaf í huga mínum verður hann
afi minn góði sem ég ann
í himnaríki fer hann nú
þar verður hann glaður, það er mín trú.
Því þar getur hann vakið yfir okkur dag
og nótt
svo við getum sofið vært og rótt
hann mun ávallt okkur vernda,
vináttu og hlýju mun hann okkur senda.
Elsku afi, Guð mun þig geyma
yfir okkur muntu sveima
en eitt vil ég þó að þú vitir nú
að okkar allra besti afi, það varst þú.
(Katrín Ruth)
Elsku afi okkar, við kveðjum
þig með söknuði, ástarþakkir fyr-
ir allt. Elskum þig af öllu hjarta.
Þínar afastelpur,
Linda Marín, Jóna Dís
og Sandra Líf.
✝ Sveinbjörg Hall-dórsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 9.
ágúst 1962. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Skógarbæ 21.
nóvember 2016.
Foreldrar Svein-
bjargar voru Halldór
Þórðarson, f. 6. des-
ember 1931, d. 26.
janúar 1998, og Jó-
hanna Eðvaldsdóttir,
f. 31. ágúst 1933.
Systkini Sveinbjargar eru
Erla, f. 17. febrúar 1956, Kristín,
f. 27. febrúar 1958, og Edda, f. 21.
nóvember 1964. Hálfsystkini
Sveinbjargar eru Sverrir Þór, f.
2. maí 1956, d. 11. desember
2015, og María Vala, f. 21. ágúst
1956.
Eftirlifandi eiginmaður Svein-
bjargar er Dagbjartur Pálsson, f.
3. ágúst 1959. Foreldrar hans eru
Páll Dagbjartsson, f.
30. júlí 1932, og Guð-
rún Magnúsdóttir, f.
27. ágúst 1936. Svein-
björg og Dagbjartur
eiga þrjú börn: 1) Jó-
hanna Dagbjarts-
dóttir, f. 18. sept-
ember 1983, gift
Valbirni I. Valbjörns-
syni, f. 22. júní 1980.
Synir þeirra eru Ísak
Máni, f. 6. júní 2009,
Hilmir Þór, f. 9. febrúar 2014, og
Alex Orri, f. 4. júní 2016. 2) Guð-
rún, f. 7. desember 1990. 3) Páll, f.
27. júlí 1992. Sveinbjörg og Dag-
bjartur bjuggu í Þorlákshöfn á
árunum 1985 til 1998 er þau flutt-
ust í Logafold 173 í Reykjavík.
Síðustu 6 árin dvaldi Sveinbjörg á
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ.
Útför Sveinbjargar fer fram
frá Seljakirkju í Reykjavík í dag,
29. nóvember 2016, klukkan 15.
Það kemur alltaf sá tími að við
þurfum öll að kveðja. Sú kveðja
ber oft með sér von um að sjást
aftur. Við ætlum að trúa því að við
gerum það, þegar við kveðjum nú
Sveinu, systur okkar, með söknuð
í hjarta, en jafnframt með létti.
Léttirinn er yfir því að hún þurfi
ekki lengur sjálf að sakna eða
kveðja.
Björt og blíð og hláturmild.
Ákveðin á sinn hátt, gjafmild og
fordómalaus.
Við systur, Sister Sledge, eins
og við köllum okkur, eigum góðar
minningar úr sumarbústaðaferð-
um, útilegum, humarmatarboð-
um, dansi, glaðværð og hlátri. Við
héldum allar að við myndum eld-
ast saman, ætluðum að vera á
kaffihúsum, í sumarbústað, labba
niður Laugaveginn, kíkja í búðir
og hvað eina sem eldri konur hafa
svo sem fyrir stafni. En það var
sko langt í það. Þangað til ætl-
uðum við nefnilega að gera ná-
kvæmlega það sama hvort eð er.
Það hefur svo sem ekki allt gengið
eftir- og ekkert við því að gera
nema að halda í minningu um
góða samveru, góða nánd og
gæsku. – Þegar við kveðjum
Sveinu núna er hugur okkar hjá
fjölskyldu hennar. Í minningu
hennar höldum við áfram þessari
góðu samveru.
Elsku Sveina – hvíl þú í friði.
Erla, Kristín (Stína)
og Edda.
Við sitjum hér þrjár í tveimur
heimsálfum og rifjum upp gamla
tíma. Við vorum fjórar en erum
nú þrjár, því Sveina hefur kvatt.
Frá unglingsaldri höfum við verið
vinkonur.
Við munum ljóshærðu stelpuna
í Hólmgarði. Við munum hand-
boltastelpuna í Víkingi sem varð
Íslandsmeistari undir stjórn Bog-
dans. Við munum rúntana niður
Laugaveg á lánsbíl og bensínið
skyldi sko klárast áður en bílnum
var skilað. Við munum bíóferðir
og hlátrasköll. Við munum barna-
píukvöldin og líka þau sem mæður
okkar vissu ekki af. Við munum
helgarnar á Hallærisplaninu. Við
munum heimsókn til Strassborg-
ar og diskó. Við munum Strang-
lers-tónleika þar sem hún var í
hópi unglinga sem var fyrir utan
og hljómsveitin neitaði að spila
fyrr en þessum hópi var hleypt
inn, sem var svo gert. Við munum
þegar hún kynnti okkur Janis
Joplin. Við munum Þjóðhátíð og
göngu upp Þrengslin af því að bíll-
inn bilaði. Við munum Sigtún og
Hollívúdd og sæta stráka. Við
munum söguna um verkstjórann
á Stokkseyri sem kunni sitt fag og
fór ekki í manngreinarálit þegar
hún rak tvær bónusdrottningar
þegar ormur fannst í pönnu
þeirra trekk í trekk sama daginn.
Hún hafði ekki hugmynd um að
hún var að reka oddvita hrepps-
nefndar sveitarinnar heim þann
daginn. Við munum verbúðarlíf á
Höfn og böllin þar. Við munum til-
hugalífið og Hjónagarða. Við
munum brúðkaup og hrísgrjónum
dreift í svítu á Hótel Sögu.
En svo urðum við fullorðnar og
eignuðumst börn og buru.
Samverustundir urðu færri
eins og gengur og gerist. Sumar
bjuggu í Bandaríkjunum, aðrar á
Höfn, eða Akureyri, Ísafirði og
Þorlákshöfn. En við héldum sam-
bandi þegar við gátum.
Við munum heimsóknir til
Þorlákshafnar. Við munum heim-
sókn til Ísafjarðar í sól og sumaryl
og líkti hún bænum við þorp í Suð-
ur-Evrópu, þannig var veðrið og
stemningin. Við munum Amer-
íkuferð. Fertugsafmælisgjöfin frá
okkur til okkar, að heimsækja vin-
konu í Kaliforníu, tók okkur fimm
ár að uppfylla. Hollywood,
stjörnugatan og merkið í baksýn,
Palm Springs, þar sem hitinn fór
yfir 104 á Fahrenheit, Lake Ar-
rowhead, þar sem fórum á slóðir
Al Capone og Riverside þar sem
Alli stjanaði við okkur. Allt var
þetta draumi líkast.
Og svo tók þessi óþolandi sjúk-
dómur völdin. Þá komum við sam-
an til að rifja upp gamla tíma og
mikið hlegið.
Innilegar samúðarkveðjur
sendum við börnum, eiginmanni
og Jóhönnu móður Sveinu.
Elsku Sveina, minningin um
góða vinkonu lifir.
Þínar vinkonur
Þóra Björg Thoroddsen,
Herdís Jóhannsdóttir og
Guðrún Sigurðardóttir.
Elsku yndislega Sveina mín,
loksins fékkstu hina langþráðu
hvíld.
Við höfum verið samferða í
gegnum lífið síðastliðin 30 ár.
Leiðir okkar lágu saman í gegn-
um mennina okkar sem eru bræð-
ur, við urðum strax miklar vin-
konur og náðum vel saman.
Sveina mín var yndisleg mann-
eskja, falleg, skemmtileg með ein-
dæmum og alltaf í góðu skapi,
enginn gat komið mér til að hlæja
eins mikið og hún.
Það var alltaf gott að koma til
Dadda og Sveinu, bæði til Þor-
lákshafnar og seinna í Grafarvog-
inn þar sem við nutum góðra veit-
inga á fallegu heimili þeirra.
Margar ferðir fóru við saman
bæði innan- og utanlands með
börnum okkar og án þeirra, minn-
isstæðust er þó án efa ferðin okk-
ar Sveinu á Tinu Turner-tón-
leikana árið 2000, ógleymanleg
ferð í alla staði „Simply the best“.
Elsku Sveina mín, takk fyrir
allt, þú gafst mér svo mikið,
kenndir mér að meta lífið og
njóta, ég mun aldrei gleyma þér.
Ég hugga mig við það að nú líð-
ur þér vel hjá Guði og ert laus við
allar þjáningar.
Megi allir Guðs englar vaka yf-
ir þér og vernda, sofðu rótt um
alla tíð.
Elsku Daddi, Jóhanna, Gulla,
Palli og Jóhanna eldri, minningin
um Sveinu lifir í hjörtum okkar
Magga um ókomna tíð.
Ykkar
Arna Steinsen.
Í fyrri viku bárust fréttir af því
að frænka okkar Sveina, Svein-
björg Halldórsdóttir, hefði lotið í
lægra haldi fyrir sjúkdómi sem
hvorki hún né læknavísindin gátu
brotið á bak aftur. Sveina hafði
háð hetjulega baráttu fyrir heil-
brigði, velferð og lífi sínu um ára-
bil og fjölskylda hennar staðið
þétt við bakið á henni, ekki hvað
síst móðir hennar og föðursystir
okkar, Jóhanna. Við höfum dáðst
að þeim báðum í vanmætti okkar
af hliðarlínunni og óskað þess
besta, en þótt tímaglas Sveinu
tæmdist hægt þá kom að því að öll
kornin lentu í neðra glasinu og því
varð ekki við snúið.
Við minnumst Sveinu sem
atorkumikillar ungrar konu sem
geislaði af. Hávaxin, grönn, bros-
mild og björt yfirlitum birtist hún
reglulega á Austurlandinu þar
sem við ólumst upp og dillandi
hlátur fylgdi henni. Hún og systur
hennar voru jafnöldrur okkar
systra og við fylgdumst með
námsvali Sveinu, starfsvali henn-
ar í fiskvinnslu, ákafa hennar sem
íþróttakonu, makavali og barn-
eignum. Við hlógum dátt að sög-
um hennar frá árunum þegar hún
vann sem verkstjóri í frystihúsum
og samglöddumst yfir áföngum
og hamingjuríkum tímum. En við
höfum líka tárfellt yfir bakslagi í
baráttunni við hrörnun líkamans
og vitum að það á við um fleiri.
Við sendum Dagbjarti og börn-
um Sveinu, Jóhönnu og systrum
hennar ásamt öðrum aðstandend-
um hugheilar samúðarkveðjur.
Hólmfríður, Olga og Arna.
Sveinbjörg
Halldórsdóttir
✝ Valdís fæddist íHrísey 4. ágúst
1929. Hún lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 15. október 2016.
Foreldrar hennar
voru María Guðrún
Árnadóttir f. 9.12.
1896, d. 8.10. 1986,
og Stefán Jón Valde-
marsson, f. 9.2.
1898, d. 13.2. 1986.
Systkini hennar
voru Elsa, f. 8.12. 1927, Björgvin,
f. 24.11. 1930, d. 16.12. 1979,
Brynjar, f. 24.12. 1937, d. 28.6.
2013, Selma, f. 10.12. 1939.
Árið 1951 hóf Valdís búskap
með eftirlifandi eiginmanni sínum
Andrési Jóni Bergmann Ásgeirs-
syni, f. 23.12. 1931. Foreldrar
Jóns voru Ásgeir Andrésson, f.
13.3. 1889, d. 18.9. 1954, og Ingi-
björg Jónsdóttir, 14.9. 1892, d.
25.9. 1956.
Valdís og Jón eignuðust 10
börn: Ásgeir Ingi, f. 20.12. 1952,
Guðný, f. 11.4. 1954, Þorgeir, f.
12.7. 1955, Svandís, f. 16.2. 1957,
Andrés, f. 28.1. 1959,
Logi, f. 13.3. 1960, d.
16.3. 2014, Lísa María,
f. 17.7. 1962, Olga, f.
18.1. 1964, Fanný
María, f. 5.11. 1967,
Jón, f. 17.4. 1971, d.
7.8. 2000. Fyrir átti
Jón soninn Hafstein, f.
27.2. 1950, d. 31.8.
2003.
Barna- og barna-
börn Valdísar og Jóns
eru orðin 58 talsins.
Valdís ólst upp í Lambhaga í
Hrísey. Um tvítugt fór hún til Ak-
ureyrar í Húsmæðraskólann.
Leið hennar lá síðar til Flateyjar
á Skjálfanda þar sem hún kynnt-
ist eiginmanni sínum Jóni og hófu
þau búskap í Reykjavík sama ár.
Ásamt því að sinna stóru heimili
tók hún að sér hin ýmsu störf í
gegnum árin, handverkskona var
hún mikil. Síðustu árin bjuggu
þau í Hafnarfirði.
Útför Valdísar fór fram frá
Hafnarfjarðarkirkju 24. október
2016.
Elsku Denna.
Í þessum fáu orðum langar
okkur að þakka þér samfylgdina.
Einnig að þakka þér hversu gott
og gaman var að koma í heim-
sókn til þín. Það er svo ljúft að
minnast þess hve gaman var að
spjalla við þig og hlæja með þér.
Fá að skoða allt það fallega sem
þú varst búin að gera í höndun-
um, því þú varst einstaklega list-
ræn. Þú varst líka dugnaðarfork-
ur eins og Lambhagasystkinin öll
frá Hrísey.
Við fjölskyldan vottum Jóni
þínum, börnunum ykkar og fjöl-
skyldum þeirra okkar innilegustu
samúð. Með kærri þökk fyrir allt
og allt.
Systir þín,
Elsa Jónsdóttir og
fjölskylda.
Valdís Guðbjörg
Jónsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARÍA FRANKLÍN,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
lést 22. nóvember. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju 1. desember klukkan 13.30.
.
Guðný Franklín, Hreiðar Aðalsteinsson,
Valgerður Franklín, Jóhann Sigurjónsson,
Auður Franklín,
Jónas Franklín,
Erla Franklín og ömmubörnin öll.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu vegna fráfalls og útfarar
SIGRÍÐAR RÓSU BJÖRGVINSDÓTTUR,
áður til heimilis að Grashaga 10,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til Kvenfélags Selfoss og
starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
.
Kristín Ólafsdóttir, Helgi Garðarsson,
Björgvin Ólafsson,
Magnús F. Ólafsson, Rut Bjarnadóttir,
Þórir Ólafsson, Helga Guðmundsdóttir,
Ólafur Jökull Ólafsson, Astrid Bleeker,
Guðný Ólafsdóttir,
Þengill Ólafsson, Margrét Ýr Flygenring,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
INGVELDAR L. GRÖNDAL,
Hvassaleiti 58, Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
.
Lúðvík H. Gröndal, Kristbjörg Konráðsdóttir,
Sigurbjörg H. Gröndal, Ólafur Haukur Ólafsson,
Hallgrímur H. Gröndal, Sólveig Fanný Magnúsdóttir,
Þorvaldur H. Gröndal, Lára Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær frænka okkar,
SIGRÍÐUR ÞORKELSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 26.
nóvember 2016. Útförin fer fram frá
Laugarneskirkju föstudaginn 2. desember
klukkan 15. Fyrir hönd aðstandenda,
.
Kristín S. Pétursdóttir,
Kristjana Björg Sveinsdóttir,
Petra Steinunn Sveinsdóttir.
Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi,
BÖRKUR HELGI SIGURÐSSON
viðgerðarmaður,
lést á heimili sínu, Hverfisgötu 117, 12.
nóvember 2016. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík 1. desember klukkan
13. Blóm og kransar afþökkuð, þeim sem vildu minnast hans er
bent á minningarsjóð Geðhjálpar.
.
Ingólfur Torfason,
Ellert Helgi Sigurðsson, Díana Ármannsdóttir,
Hlynur Helgi Sigurðsson, Sari Maarit Cedergren,
Auður Herdís Sigurðardóttir
og systkinabörn.