Morgunblaðið - 29.11.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2016
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Margir andófsmenn á Kúbu óttast
að dauði Fidels Castro verði til
þess að kúgunin í landinu aukist
en aðrir vona að bróðir hans,
Raúl, komi á umbótum.
Kúbverskir útlagar fögnuðu á
götum Miami í Bandaríkjunum
eftir að skýrt var frá því að Fidel
Castro hefði látist á föstudag, ní-
ræður að aldri. Andófsmenn á
Kúbu héldu hins vegar kyrru fyrir
heima hjá sér og hreyfing, sem
hefur staðið fyrir mótmælum gegn
einræðinu, aflýsti vikulegri kröfu-
göngu. Hún sagðist hafa ákveðið
þetta af virðingu fyrir þeim sem
syrgðu Castro og til að komast hjá
því að einræðisstjórnin sakaði
hana um „ögrun“ og notaði tæki-
færið til að láta til skarar skríða
gegn andófsmönnum.
Hreyfingin nefnist Hvítklæddu
konurnar. Eiginkonur og mæður
75 andófsmanna, sem voru hand-
teknir, stofnuðu hana árið 2003 og
hafa haldið mótmælunum áfram á
hverjum sunnudegi, klæddar hvít-
um fatnaði, þótt andófsmennirnir
hafi verið látnir lausir.
Castro hafði verið einráður í
landinu í tæpa hálfa öld árið 2006
þegar hann veiktist alvarlega og
bróðir hans, Raúl, tók við
stjórnartaumunum. Áður en
Castro dró sig í hlé höfðu tíu for-
setar Bandaríkjanna reynt að
koma honum frá völdum. Einn líf-
varða hans hélt því fram að leyni-
þjónustan CIA hefði ráðgert alls
638 tilraunir til að ráða Castro af
dögum. Svo fór þó að lokum að
hann varð að lúta í lægra haldi
fyrir Elli kerlingu.
Spáir hertu eftirliti
Talið er líklegt að áhrifa Fidels
Castro gæti í mörg ár til viðbótar
því að flokkur hans er enn einráð-
ur og stjórnar flestum þáttum
daglegs lífs með mikilli miðstýr-
ingu, ritskoðun og kúgun.
Berta Soler, leiðtogi Hvít-
klæddu kvennanna, telur að dauði
Fidels Castro hafi lítil áhrif á
stefnu einræðisstjórnarinnar.
„Þetta verður sama Kúba með
einn einræðisherra í stað tveggja.
Einræðisherrann Fidel Castro dó
en einræðisherrann Raúl Castro
er enn við völd,“ hefur fréttaveit-
an AFP eftir Soler.
Eiginmaður hennar, Angel
Moya, vonar að Donald Trump,
verðandi forseti Bandaríkjanna,
taki harðari afstöðu gegn
einræðisstjórninni en Barack
Obama hefur gert. „Við vonum að
nýja stjórnin í Bandaríkjunum að
minnsta kosti fordæmi stjórnina á
Kúbu vegna mannréttindabrota
hennar,“ sagði Moya sem sat í
fangelsi í tæp átta ár fyrir andóf
gegn einræðisstjórninni.
Trump sagði í yfirlýsingu um
dauða Fidels Castro að hann hefði
verið „grimmur einræðisherra“.
Ráðgjafar Trumps sögðu að hann
myndi ná „betri samningi“ við
Kúbustjórn. Þeir gagnrýndu
Obama fyrir að hafa fallist á of
miklar tilslakanir í viðræðunum
við Kúbustjórn, m.a. afnám refsi-
aðgerða, án þess að knýja hana til
að virða mannréttindi og koma á
lýðræði og efnahagsumbótum.
Stefna Trumps í málefnum Kúbu
er þó mjög óljós, eins og í mörg-
um öðrum málum.
Raúl Castro hefur komið á tak-
mörkuðum efnahagsumbótum,
m.a. með því að heimila íbúunum
að reka lítil einkafyrirtæki, svo
sem gistihús og litla veitingastaði,
með ströngum takmörkunum.
Lagðir eru háir skattar á smá-
fyrirtækin til að tryggja að þau
ógni ekki ríkisfyrirtækjum, auk
þess sem þau sæta ýmsum íþyngj-
andi reglugerðum.
Einn kúbversku andófsmann-
anna, José Daniel Ferrer, telur að
umbætur séu óhjákvæmilegar á
Kúbu þótt þær komi ef til vill ekki
strax eftir dauða Fidels Castro. „Í
byrjun verður hert eftirlit og
meiri kúgun en að lokum verður
sá sem tekur við af honum að
koma á frekari efnahags- og lýð-
ræðisumbótum,“ hefur AFP eftir
Ferrer.
Snýst um völd en ekki lífskjör
Julia Sweig, bandarískur sér-
fræðingur í málefnum Kúbu, telur
ólíklegt að Trump geti knúið
einræðisstjórnina til að koma á
umbótum. „Þetta er kúbverska
byltingin. Þeir byrja ekki að fall-
ast á tilslakanir vegna þess eins
að Donald Trump krefst þess,“
hefur The Wall Street Journal eft-
ir Sweig.
Frank Mora, annar Kúbu-
sérfræðingur, tekur í sama streng
og telur að viðbrögð Kúbustjórnar
við kröfum Trumps verði þau að
hún fari í skotgrafirnar til að
verja byltinguna. „Þegar öllu er á
botninn hvolft vilja þeir umfram
allt halda völdunum og tryggja að
stjórnin haldi velli,“ sagði Mora.
„Jafnvel þótt umbætur myndu
stuðla að betri lífskjörum á Kúbu
fallast þeir ekki á þær ef hætta er
á að þær verði til þess að þeir
missi völdin.“
Óttast að kúgunin á Kúbu aukist
Ólíklegt er talið að dauði Fidels Castro verði til þess að einræðisstjórnin slaki á klónni í bráð
Byltingarleiðtoginn var við völd í um hálfa öld og talið er að áhrifa hans gæti í mörg ár til viðbótar
Dwight
Eisenhower
Fidel Castro
1953-1961
John F.
Kennedy
1961-1963
Lyndon
Johnson
1963-1969
Richard
Nixon
1969-1974
Gerald
Ford
1974-1977
Jimmy
Carter
1977-1981
Ronald
Reagan
1981-1989
George
Bush
1989-1993
Bill
Clinton
1993-2000
George
W. Bush
2001-2008
Barack
Obama
2009 - 2016
Demókrati RepúblikaniStóð af sér ellefu Bandaríkjaforseta en ekki ellina
Sá stjórn einræðisherrans
Fulgencio Batista fyrir
vopnum í baráttu hennar
við skæruliða Castros.
Undirbjó innrás í Svína-
flóa. Sleit stjórnmála-
sambandi við Kúbu
í janúar 1961 eftir
byltinguna.
Fyrirskipaði innrásina
í Svínaflóa í apríl 1961.
Setti viðskiptabann á
Kúbu í febrúar 1962
og síðan hafnbann
í október sama ár
vegna deilu um
bækistöðvar fyrir sovésk
kjarnavopn á eyjunni.
Herti viðskiptabannið.
Samþykkti áform CIA um
að ráða Castro af dögum.
Studdi hreyfingar kúb-
verskra andstæðinga
Castros. Reyndi að stöðva
matvæla- og lyfja-
sendingar til Kúbu.
Herti baráttuna gegn
Castro. Heimilaði m.a.
handtöku kúbverskra
sjómanna. Reyndi
einnig að stöðva sölu
á nikkeli frá Kúbu
til Sovétríkjanna og
fylgiríkja þeirra.
Heimilaði fyrstu
heimsókn bandarískra
kaupsýslumanna til
Kúbu eftir byltinguna.
Dró úr viðskipta-
banninu á landið.
Dró frekar úr viðskipta-
banninu. Opnaði banda-
rískt útibú í sendiráði
Sviss í Havana og
Kúbustjórn opnaði
útibú í Washington.
Undirritaði samning
um afmörkun efnahags-
lögsögu landanna.
Herti viðskiptabannið
á Kúbu.
Viðskiptabannið hert
með nýjum lögum.
Herti viðskiptabannið
og jók fjárstuðning
Bandaríkjanna við
andstæðinga Castros.
Takmarkaði rétt
kúbverskra útlaga til að
ferðast til Kúbu og
senda ættingjum sínum
þar peninga.
Afnam takmarkanir á
ferðir og peninga-
sendingar útlaga. Bætti
samskipti ríkjanna og
opnaði sendiráð í Havana
í fyrra. Fór í heimsókn til
Kúbu í mars, fyrstur
sitjandi Bandaríkjaforseta
frá árinu 1928.
Framfylgdi lögum um
hert viðskiptabann
þegar efnahagur Kúbu
hrundi vegna falls
Sovétríkjanna. Undir-
ritaði nýjan samning um
innflytjendur frá Kúbu.
Studdi andstæðinga
Castros.
Vandaðir mínifræsarar og
brennipennar í úrvali
Fræsari
200 stk
Verð 14.760 Brennipenni
Verð 6.980
Fræsari lítill
Verð 9.980
Tilvalin jólagjöf
fyrir handverks-
manninn
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Her einræðisstjórnarinnar í Sýr-
landi hefur náð norðausturhluta
Aleppo á sitt vald og virðist allt
stefna í að uppreisnarmenn missi
öll yfirráðasvæði sín í borginni.
Mannréttindahreyfingin Syrian
Observatory for Human Rights
segir að sveitir uppreisnarmanna
hafi misst yfirráð yfir um þriðj-
ungi svæða sinna í austurhluta
Aleppo og sýrlenski herinn sæki
fram af miklum þunga.
Sýrlenski stjórnarherinn hefur
náð hverfunum Sakhur, Hayd-
ariya og Sheikh Khodr á sitt vald
og hersveitir Kúrda hafa náð
Sheikh Fares-hverfinu úr hönd-
um uppreisnarmanna. Þetta er
mesti ósigur uppreisnarmann-
anna frá því að þeir náðu austur-
hluta borgarinnar á sitt vald árið
2012.
Þúsundir íbúa hafa flúið átökin
og ástandið er skelfilegt í austur-
hlutanum, að sögn hjálp-
arsamtakanna Hvítu hjálmanna.
„Fólk sefur á götunum, hefur
ekkert að borða og drekka,“
sagði talsmaður samtakanna.
Misstu stóran hluta Aleppo
AFP
Eyðilegging Sýrlenskir hermenn aka
um hverfi sem þeir náðu á sitt vald.
Lögreglan í Ohio í Bandaríkjunum
skaut í gær til bana árásarmann
eftir að sá veittist að hópi fólks á
skólasvæði Ohio-háskóla.
Er maðurinn sagður hafa ekið
bifreið sinni inn í hóp fólks áður en
hann réðst að nærstöddum með
hnífi með þeim afleiðingum að níu
særðust, þar af einn lífshættulega.
„Hann steig út úr bifreiðinni og
notaði kjöthníf gegn vegfar-
endum,“ sagði Craig Stone, lög-
reglustjóri háskólalögreglunnar, á
blaðamannafundi í kjölfar ódæð-
isins. „Það tók lögreglumann innan
við mínútu að mæta á svæðið. Hann
veittist að árásarmanninum og
eyddi ógninni,“ bætti hann við.
Í fyrstu var óttast að um skotárás
væri að ræða og að árásarmenn
kynnu að vera fleiri en einn, en sá
grunur reyndist ekki réttur.
BANDARÍKIN
Maður réðst á fólk á skólalóð Ohio-háskóla