Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2015, Síða 4
Vikublað 15. desember 20154 Fréttir
D
anska verkfræðistofan
COWI neitar að hafa unnið
útreikninga um loftmeng
un kísilmálmverksmiðju
United Silicon í Helguvík,
þvert á fullyrðingar íslenska fyrir
tækisins. Í bréfi sem COWI sendi
Skipulagsstofnun í febrúar, og DV
hefur undir höndum, var farið fram
á að nafn og merki danska fyrirtæk
isins yrðu fjarlægð úr minnisblaði
United Silicon um loftdreifiútreikn
inga verksmiðjunnar. Skipulags
stofnun féllst á það en dregur
niðurstöðurnar ekki í efa. Magnús
Garðarsson, stjórnarmaður og einn
eigenda United Sili con, fullyrðir að
útreikningarnir komi frá COWI.
„Við skiljum ekki af hverju COWI
sendi þetta bréf enda gerði fyrrver
andi starfsmaður þess útreikning
ana,“ segir Magnús.
Tvö ár liðu
United Silicon skilaði minnis
blaðinu inn til Skipulagsstofnun
ar í febrúar 2013. Í því var fullyrt að
COWI hefði unnið mengunarspána
og minnisblaðið auðkennt með
merki dönsku verkfræðistofunnar.
Niðurstöður útreikninganna
sýna dreifingu helstu mengunar
efna sem koma til með að mynd
ast við framleiðslu United Silicon.
Samkvæmt þeim á styrkur efn
anna, eins og brennisteinsdíoxíðs
og nituroxíðs, að vera undir leyfi
legum mörkum. Þremur mánuð
um síðar, þann 10. maí 2013, gaf
Skipulagsstofnun út álit sitt um mat
á umhverfisáhrifum 100.000 tonna
framleiðslu United Silicon á kísil
málmi. Umhverfisstofnun gaf síðan
út starfsleyfi fyrir rekstrinum í júlí
2014.
Þann 18. febrúar 2015, tveim
ur árum eftir að minnisblaðinu var
skilað inn, barst Skipulagsstofnun
bréfið frá Julie Ramhøj Meisner,
aðstoðarforstjóra COWI. Julie segir
þar að athygli fyrirtækisins hafi
verið vakin á að skjalið sé auðkennt
með merki COWI. Ekkert bendi
þó til þess að útreikningarnir hafi
verið unnir af starfsmönnum fyrir
tækisins og bætir hún við að vinn
an sé ekki í samræmi við gæðavott
unarkerfi þess. Í ljósi þess krafðist
hún að minnisblaðið yrði fjarlægt
af vefsíðu Skipulagsstofnunar eða
nafn og merki fyrirtækisins afmáð
úr skjalinu.
Skipulagsstofnun tók minnis
blaðið í kjölfarið út af síðunni og
setti í þess stað aðra útgáfu af því
sem innihélt ekki nafn COWI.
Skjalið sem nú er aðgengilegt á vef
stofnunarinnar er að öðru leyti ná
kvæmlega eins, með sömu niður
stöðum, og er enn dagsett 14. febr
úar 2013.
Vann hjá COWI
Daginn eftir að starfsmenn
Skipulagsstofnunar fengu bréf
COWI barst þeim skýrsla frá
danska ráðgjafarfyrirtækinu Force
Technology. Sú skýrsla innihélt
meðal annars sannprófanir á út
reikningum United Silicon frá 2013
og var unnin að beiðni íslenska
fyrir tækisins. Samkvæmt henni eru
útreikningarnir í minnisblaðinu
byggðir á réttum forsendum og fela
í sér allar nauðsynlegar breytur.
„Það var aldrei nokkur sem ef
aðist um að þeir útreikningar sem
voru settir fram væru réttir en COWI
sagði að þeir væru ekki frá fyrirtæk
inu komnir og gengst eingöngu við
skýrslu sem United lagði fram um
hávaðaútreikninga verksmiðjunnar,“
segir Sigurður Ásbjörnsson, sér
fræðingur hjá Skipulagsstofnun.
Samkvæmt Sigurði taldi stofnunin
mestu máli skipta að staðfest væri
að umhverfismat verksmiðjunn
ar byggði á áreiðanlegum líkönum
og að þeim hefði verið beitt á réttan
hátt. Því skipti ekki máli hvort upp
hafleg umfjöllun og mengunarspáin
væru með eða án merkis COWI.
Sigurður vísar máli sínu til
stuðnings í sérfræðiálit Sig
urðar Magnúsar Garðarsson
ar, prófessors við umhverfis og
byggingarverkfræðideild Háskóla
Íslands. Prófessorinn var fenginn
til að vinna álit sitt þegar United
Silicon gerði athugasemdir við loft
dreifiútreikninga Thorsil ehf., sem
stefnir einnig að byggingu kísil
málmverksmiðju í Helguvík. Sér
fræðiálitið byggði á skýrslum sem
lágu til grundvallar umhverfismati
vegna álvers Norður áls í Helguvík,
Thorsil og United Silicon og skilaði
Sigurður því 11. febrúar 2015.
„Meginniðurstaðan var sú að
það væru engin gögn sem bentu til
þess að menn væru að vanreikna
mengunarspár sem er það sem
mestu máli skipti fyrir okkur,“ seg
ir Sigurður, starfsmaður Skipulags
stofnunar.
Magnús Garðarsson tekur undir
með Sigurði, segir skýrslu Force
Techonology hafa staðfest fyrri út
reikninga, en vill að öðru leyti ekki
tjá sig um bréf COWI. Magnús er
fyrrverandi starfsmaður dönsku
verkfræðistofunnar og vann hjá
henni til ársins 2009. Höfuðstöðvar
fyrirtækisins eru í Kongens Lyngby,
rétt norður af Kaupmannahöfn, og
hjá því starfa sex þúsund manns. n
Sver af sér mengunarspá
fyrir kísilver í Helguvík
n COWI kannast ekki við útreikninga United Silicon n Minnisblaði breytt
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Skóflustungan Framkvæmdir við fyrsta áfanga kísilverksmiðju United Silicon standa
nú yfir. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra tóku fyrstu skóflustungu að verksmiðjunni í ágúst 2014.
„Við skiljum ekki af
hverju COWI sendi
þetta bréf enda gerði
fyrrverandi starfsmaður
þess útreikningana.
Helguvík Framleiðsla United Silicon á að hefjast næsta vor en eigendur fyrirtækisins stefna að stærstu kísilmálmverksmiðju í heimi. Mynd SIGTryGGur ArI
Hluthafi Magnús Garðarsson, starfandi
stjórnarmaður og einn eigenda United
Silicon hf., er fyrrverandi starfsmaður COWI.
Plankaparket
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Þýsk gæði!