Mosfellsblaðið - 01.03.1999, Qupperneq 3
c
k_y unnudaginn 28. febrúar s.l.
veitti Guðmundur Bjarnason
landbúnaðarráðherra Jóni M.
Guðmundssyni og konu hans,
Málfríði Bjarnadóttur að Reykj-
um í Mosfellsbæ Landbúnaðar-
verðlaunin árið 1999. Þetta gerð-
ist á Búnaðarþingi og fengu
hjónin þennan virðingarvott
fyrir myndarlegan frumherja-
búskap og fyrir foringjastörf
Jóns í félagsmálum, síðan ekki
síst fyrir að halda uppi reisn
bænda og búskapar í jaðri ört
vaxandi þéttbýlis og vera virtir
tengiliðir milli sveitamenningar
og aðfluttra í nýtt þéttbýli.
Hjónin
Málfríður
Bjamadóttir
og Jón M.
Guðmundsson.
að Reykjum í Mosfellssveit
Fyrstu kynni
Málfríður ólst upp í Hafnarfirði og
gekk í Flensborg, hún mundi eftir unga
mannirium frá Reykjum í Mosfells-
sveit þar, en hann vissi aldrei af henni
í sinni skólagöngu í Flensborg, enda
varla von, þar sem hún var 11 ára í 1.
bekk og hann í 3. bekk. - Síðar hittust
þau og kynntust, trúlofuðu sig árið
1951 og giftust 26. október sama ár og
þá fluttist hún til hans að Reykjum. Þau
eignuðust fimm böm og eiga sautján
bamaböm. Hún er menntuð lyfjafræð-
ingur frá háskóla í Kaupmannahöfn,
en hann útskrifaðist sem búfræðingur
frá Hvanneyri og tók síðan framhalds-
nám í háskóla í Bandaríkjunum árin
1945 til 1947.
Bylting í búskaparhátt-
um
Jón tók við búskap að Reykjum 1947
og eignaðist allan reksturinn 1961. Árið
1960 fór hann í söngferðalag með
Karlakór Reykjavíkur til Bandaríkj-
anna og Kanada. Hann varð eftir í
Bandaríkjunum og þáði boð Banda-
ríkjastjómar um framhaldsnám í fugla-
rækt sér að kostnaðarlausu. - Á þeim
tíma borðuðu íslendingar ekki hænsna-
kjöt og höfðu hænsnin aðeins til varps.
Er heim kom hófst undirbúningur við
að byggja útungunarstöð , sláturhús og
hús til uppeldis fyrir kjúklinga. Hann
fékk til þess lán hjá Framkvæmda-
banka Islands, hjá Benjamín Eiríks-
syni, sem hafði trú á þessu. - Þar með
fór af stað fyrsta uppeldisstöð fyrir
holdakjúklinga á Islandi og var þetta
mesti viðburðurinn í sögu Reykjabús-
ins, þegar framleiðsla hófst á holda-
kjúklingum 1961 af sérstöku kjötkyni,
sem verpti lítið en safnaði holdum.
Reykjabúið er eina búið á Islandi sem
náð hefur vemlegum og frábæmm ár-
angri í kalkúnarækt hér á landi. - Búið
hóf kalkúnaeldið í smáum stíl árið
1950, eldi og sala jókst verulega 1970
og enn betur 1980, en nú er framleiðsl-
an 100 tonn á ári og þessi gæðafram-
leiðsla hefur staðist allar innlendar og
erlendar kröfur.
Markaðssetningin
Aðalvandinn var að markaðssetja
vöm, sem var nánast óþekkt á íslandi.
Til að ná fótfestu fékk Jón vini sína,
ýmsa kaupmenn til að hafa þetta á
boðstólum. Ötulastir manna vom Þor-
valdur Guðmundsson í Sfld og Fisk,
sem var duglegur við að kaupa og
dreifa, en hinn var sr. Halldór Gröndal,
sem þá var veitingastjóri í Nausti.
Hann auglýsti upp "körfukjúkling"sem
náði miklum vinsældum. Sala á
kjúklingum jókst vemlega og þessi
matvara náði fótfestu á markaði lands-
manna.
Stórt heimili
Gegn um tíðina vom flestir starfs-
menn búsins í húsnæði og fæði að
Reykjum, þannig að Málfríður hafði í
mat oft frá 12 til 20 manns. Má því rétt
ímynda sér álagið á húsfreyjunni á
Reykjum, sem sá um sín fímm böm og
vinsælan bónda, sem starfaði að sveit-
arstjómarmálum með öllu öðm og síðan
hafði hún heilt mötuneyti þar ofaná, en
Málfríður vann einnig um tíðina í apó-
teki, enda menntuð til þeirra starfa.
Málfríður hefur lagt hönd á plóginn
svo um hefur munað við uppbyggingu
og framgang búsins að Reykjum.
Tveir synir þeirra Málfríðar og Jóns
hafa stýrt búinu síðustu fimm árin, þeir
Guðmundur og Jón Magnús, báðir há-
skólagengnir, annar í Skotlandi en
hinn í Bandaríkjunum og ferst þeim
vel úr hendi búreksturinn. Með þess-
um orðum em kvödd að sinni sæmdar-
hjónin að Reykjum í Mosfellssveit.
A myndinni mú sjú nýja hönnun ú kafteins-
slólum eða skipherrastólum, enda einn
skipstjóri búinn að kaupa fyrsta stólinn.
Vörusýning
í Iijama
Vömsýning frá Húsgagnavinnu-
stofunni ehf., Álafossvegi 18c,
var opnuð í Kjama þann 18. mars
s.l. og verður til mánaðamóta. Eftir
það tekur hún þátt í Handverks- og
hönnunarsýningu sem verður í
Laugardalshöll þann 22. - 25. apríl
n.k.. Einnig er rætt um að fara í nær-
liggjandi byggðarlög með þessa
sýningu. Eigendur eru Aðalsteinn
Sigurgeirsson, Lea Bjömsdóttir og
Guðrún Haraldsdóttir.
llndirskriflir
aflientar
heilbrigðisráð-
herra
Þann 24. febrúar s.l.var Ingibjörgu
Pálmadóttur heilbrigðisráðheira, afhentar
yfir 2000 undirskriftir til stuðnings lækn-
um og starfsfólki Heilsugæslu Mosfells-
umdæmis. Allmargt fólk var viðstatt
þessa athöfn ásamt sjónvarps- og blaða-
mönnum. Á myndinni er Berglind Hilm-
arsdóttir fyrir hönd undirbúningsnefndar
að afhenda heilbrigðisráðherra undir-
skriftimar í heilbrigðisráðuneytinu.
Mosfcllsblaðið Q