Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 21
Umræða 17Vikublað 7.–9. júlí 2015 Það hentar mér ekki Mig vantar lík fyrir myndbandsinnsetningu Öllu er snúið á versta veg Sigmar Guðmundsson hættir sem ritstjóri Kastljóss. – visir.is Snorri Ásmundsson óskar eftir líki í listaverk. – DVElín Hirst furðar sig á umræðuhefðinni á Alþingi. – eyjan.is Myndin Göngubrú í Laugardal Það jafnast ekkert á við göngutúr á góðviðrisdegi. mynd Þormar ViGnir GunnarSSon Sólskin í kortunum Þ að er gott að búa á Íslandi. Við getum búið hvar sem er, á stað þar sem veðrið er betra, þar sem vextir eru lægri, ávextir ódýrari og mannlífið fjölbreyttara. En við veljum að búa hér. Veðrið mætti reyndar vera betra. Þakklætið er vanmetið Vextir mættu eða ættu öllu heldur að vera lægri. Við þurfum virkilega að vinna að umbótum á húsnæðiskerf­ inu og það væri óskandi að neytenda­ lán væru ekki verðtryggð. En við meg­ um ekki gleyma að þakka fyrir það sem við höfum og það sem vel er gert því að þakklætið er vanmetið. Bjart­ sýnin ein og sér leysir þó ekki verk­ efnin. Við þurfum að vera einbeitt og samstíga við úrlausn þeirra. Sóknin er hafin Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunn­ laugssonar setti á oddinn að komið yrði til móts við skuldsett heimili og lagði fram aðgerðaáætlun í tíu liðum sumarið 2013. Ein af þessum tíu að­ gerðum var að leiðrétta stökkbreytt húsnæðislán heimilanna. Leið­ réttingin var sanngjörn jafnræðisað­ gerð sem þjóðin sjálf valdi að farið yrði í í kosningunum 2013. Óveðursskýin yfir landinu eru á hröðu undanhaldi. Það glittir víða í heiðan himin og sólargeislar eiga greiðari aðgang að landinu en áður. Aðgerðaáætlun um afnám hafta er einn af þessum sólargeislum. Al­ menn ánægja ríkir með áætlunina. Aðgerðirnar eru forsenda þess að hægt sé að afnema fjármagnshöft og fjármunir sem myndast vegna stöð­ ugleikaskilyrða eða skatts verða nýtt­ ir til að greiða niður skuldir ríkissjóðs sem kemur okkur öllum til góða. Uppbygging heilbrigðiskerfisins er annað stórverkefni sem ríkisstjórn­ in hefur lagt ríka áherslu á. Ríkis­ framlög til Landspítalans hafa aldrei verið hærri og árlegt fé til tækjakaupa á Land spítalanum hefur fimmfaldast frá árinu 2012. Framlög til annarra heilbrigðisstofnana hafa einnig verið aukin. Endurskoðun á almanna­ tryggingakerfinu stendur yfir og er komin langt á veg. aukinn jöfnuður Þessa dagana reyna forystumenn nokkurra flokka að telja almenningi trú um að hér á landi ríki ójöfnuður og halda því fram að ójöfnuður hafi aukist í tíð núverandi ríkisstjórnar. Þessar fullyrðingar forystumannanna eru rangar. Það rétta er að ójöfnuður hefur ekki aukist, hann hefur minnk­ að í stjórnartíð ríkisstjórnar Sigmund­ ar Davíðs Gunnlaugssonar. Einhver vill halda því fram að þeir tekjuhærri hafi lækkað í launum og því hafi jöfn­ uður í samfélaginu aukist. En það er ekki raunin. Þeir sem hafa lágar tekj­ ur og millitekjur, hafa hækkað í laun­ um og þeir sem hærri hafa tekjurnar hafa staðið í stað. Þessar upplýsingar eru settar fram á greinargóðan hátt á heimasíðu Hagstofunnar (www. hagstofan.is). Þær koma fram í frétt sem birtist þann 5. júní sl. undir yfir­ skriftinni „Dreifing tekna jafnari en áður“. Samkvæmt nýlegri skýrslu Vel­ ferðarvaktarinnar kemur einnig fram að Ísland er nú með þriðja mesta jöfnuð í tekjuskiptingu og minnsta fátækt af þjóðum OECD. Verðbólgan hefur verið lítil sem engin um langt skeið og kaupmáttur launa mælist nú hærri en nokkru sinni fyrr. Höfum þessar staðreyndir í huga. Vinna, vöxtur, velferð Að þessu sögðu þá held ég að flestir geti verið sammála um að árang­ ur ríkis stjórnarinnar er bara nokkuð góður þegar horft er á heildar­ myndina. Hún er augljóslega á réttri leið. Þrátt fyrir ágætt ástand eigum við þó að sækja fram af enn meiri krafti til að skapa réttlátara samfélag og gera það án þess að veikja hvatann til að vinna og skapa ný verðmæti. Eitt og eitt þungbúið ský sveimar þó enn yfir höfðum okkar. Breytingar á húsnæðiskerfinu eru til dæmis orðn­ ar mjög aðkallandi. Markmið okkar er að tryggja möguleika allra á að búa við öryggi og tryggja jafnræði í aðgangi að íbúðalánum óháð bú­ setu. Því miður tókst ekki að klára þau frumvörp sem unnið hefur ver­ ið að í velferðarráðuneytinu síðustu tvö árin en ég geri ráð fyrir að frum­ vörpin og afrakstur þeirra birtist okk­ ur strax á haustdögum. Góðir hlutir gerast hægt, en viljinn er svo sannar­ lega fyrir hendi. Annað verkefni sem er orðið mjög aðkallandi er afnám verðtryggingar. Sérfræðinganefnd um afnám verð­ tryggingar á neytendalánum hefur skilað niðurstöðu í samræmi við stjórnarsáttmálann og ríkisstjórnin hefur samþykkt að unnin verði frum­ vörp á þeim grundvelli. Hagvöxtur aldrei meiri Frá því að ný ríkisstjórn Sigmundar Davíðs tók við hefur hagvöxtur á Ís­ landi verið einn sá mesti í Evrópu. Ríkið er hætt að safna skuldum sem skapar tækifæri til frekari fjár­ festinga í innviðum samfélagsins. Verkefnin framundan eru fjölmörg. Við viljum gera gott betra. Bjartsýni og jákvæðni er undirstaða þess að okkur takist að skapa betra samfélag fyrir okkur öll. n SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm. Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. KOMDU ROTÞRÓNNI Í LAG MEÐ SEPT-O-AID UMHVER FISVÆN VARA F RÁ KEM I Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun; sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður. Silja dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins Kjallari „Að þessu sögðu þá held ég að flestir geti verið sam- mála um að árangur ríkis stjórnarinnar er bara nokkuð góður þegar horft er á heildarmyndina. Hún er augljóslega á réttri leið. Mest lesið á DV.is 1 Eftirsóttustu bólfélagar Íslands DV leitaði til nokkurra álitsgjafa um það hvaða Íslendingar væru álitlegustu bólfélagarnir um þessar mundir. Lesið: 52.366 2 Myndband af handtök-unni við Bryggjuvör Sjónarvottur tók myndband af hand- töku sem átti sér stað við Bryggjuvör í Kópa- vogi, miðvikudaginn 24. júní síðastliðinn. Á myndbandinu má sjá þegar ungur maður er borinn á börum inn í lögreglubif- reið eftir að hafa átt í samskiptum við lögregluna. Lesið: 34.694 3 3.Alvarleg árás á Akureyri – fórnarlamb illa útleikið Lögreglan á Akur- eyri rannsakar líkamsárás í heimahúsi eftir að maður var stunginn með hnífi. Lesið: 28.170

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.