Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 18
Vikublað 7.–9. júlí 20152 Grillsumarið - Kynningarblað
Ekta sunnlenskt beikon, svína-
kótelettur og skinkur á grillið
Framleiða allt sem hugurinn girnist úr svíni
Angus-, Limosin- og Galloway-
steikur frá fjölskyldubúi
Leggja áherslu á gott kjöt og góð samskipti við viðskiptavini
O
rmsstaðir eru fjölskyldu
rekið svínabú skammt frá
Sólheimum í Grímsnesi.
Búið hefur verið starfandi
yfir 30 ár. Guðný Tómas
dóttir sér um búskapinn ásamt
eigin manni sínum Jóni Þorkeli Jó
hannssyni, en Guðný tók við af for
eldrum sínum. Þau Guðný og Jón
Þorkell framleiða allt sem hugur
inn girnist úr svíni meðal annars
gómsætar kótelettur, hnakka
sneiðar, „pulled pork“, skinkur og
beikon. Þér gefst einnig kostur á að
sérpanta hálfan skrokk eða heilan
og láta útbúa fyrir þig hvað sem þig
dreymir um. Þau eru óhrædd við að
koma með nýjungar. „Við erum með
grillbeikon sem er þykkara skorið
og er búið að vera mjög
vinsælt, svo erum við
með sveitaskin
ku. Fullkom lega
hrein skinka, engu
vatni bætt við,
bara æðislegt á
grillið eða í ofn
inn eða hvað sem
er,“ segir Guðný í
samtali við DV.
Svínunum er
slátrað í sláturhúsi
Sláturfélags Suðurlands
sem getið hafa sér gott orð
fyrir góða og vandaða vöru. Við tekur
kjötvinnslan Krás á Selfossi þar sem
starfa útlærðir kjötiðnaðarmeistarar
og kjötiðnaðarmenn. Að mati Orms
staða eru þeir með þeim bestu
í vinnslu á svínakjöti. Verslun
in er svo heima á hlaði og er tilval
ið að kíkja í heimsókn, hægt er að
klappa úti grísunum og kippa
með sér dýrindis ís
lensku svínakjöti á
grillið. Afhending
í Reykjavík er í
boði þegar pant
aður er heill eða
hálfur skrokk
ur, er hann þá
sendur í vinnslu eft
ir óskum neytandans,
einnig er hægt að fá hann
sendan heim að húsi með flutninga
fyrirtækjum.
Grís við hvert tækifæri
Í maí síðastliðnum var opið
hús á Ormsstöðum þar
sem gestir og gangandi
gátu skoðað hvern
krók og kima. „Það
var mjög skemmti
legt og fræðandi
fyrir marga, við
stefnum á að gera
þetta oftar í fram
tíðinni, til að kynna
áherslur búsins þar sem
lagt er upp úr dýravelferð,“
segir Guðný. Alltaf er þó hægt
að fá að klappa útigrísunum á sumrin
þegar litið er í heimsókn. Fyrir þá
sem koma úr borginni og eru ekki
kunnugir á Suðurlandi þarf að beygja
til vinstri hjá Ingólfsfjalli og svo inn
á Sólheimaveg hjá Versluninni Borg.
Þaðan er einungis nokkurra mínútna
akstur til Ormsstaða.
Beikon er bráðnauðsynlegt á hvern
hamborgara eða að útbúa borgarann
að hætti Ameríkanans og gera „pullet
pork“ úr bóg. Þá er kjötið hægeldað í
strimla og svo notað í grísasamlokur.
Þar sem það er foreldað þarf einung
is að hita það í skamma stund á grilli
og er því tilvalið að hafa það með í úti
leguna. Þegar kemur að svínakjöti al
mennt er hugmyndaflugið það eina
sem stendur í vegi fyrir frumlegum
og glæsilegum réttum. Ýmsar upp
lýsingar má finna á heimasíðu Orms
staða www.ormsstadir.is eða fylgjast
með þeim á Facebook. n
M
ýranaut Leirulæk var
stofnað árið 2007 og
rækta þau Gunna og
Bjössi á Leirulæk ásamt
Hönnu og Anders úrvals
nautgripi til kjötframleiðslu og selja
þau gæðakjöt beint til neytenda.
„Við leggjum mikla áherslu á gott
kjöt og góð persónuleg samskipti við
viðskiptavini okkar,“ segir Hanna í
samtali við DV. Gripirnir þeirra eru
holdanautgripir sem eru ætlaðir til
kjötframleiðslu en einnig elur Mýra
naut upp naut af íslensku mjólkur
kúakyni.
Á Leirulæk eru um 90 kýr og kvíg
ur sem eru úti allt árið. Kálfarnir fá
að vera hjá kúnni í átta til níu mánuði
áður en þeir eru teknir inn. Það er
mikilvægt að kálfarnir fái mjólk eins
lengi og hægt er, svo þegar naut
in koma inn þá fá þau ótakmarkað
an aðgang að heyi. Nautgripirnir fá
einnig heimaræktað bygg síðustu
þrjá mánuðina fyrir slátrun. Gripun
um er svo slátrað á Hellu
sem sér um að úrbeina og
sérpakka kjötinu eftir ósk
um viðskiptavina.
Undir gæðamerki
Meginmarkmið gæða
merkisins Beint frá býli
er að tryggja neytendum
gæðavöru, þar sem öryggi og rekjan
leiki vöru er í fyrirrúmi. Mýranaut
selur sínar vörur undir því. Hægt er
að panta skrokka eða hluta úr skrokk
á heimasíðunni þeirra, myranaut.
is. Svo er tilvalið að líta við í sveita
markaðinum Ljómalind í Borgar
nesi þar sem hægt er að nálgast kjöt
ið frá Mýranauti. n