Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 17
Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is
7. júlí 2015
Grillsumarið
Kynningarblað
Grillpylsurnar skara fram úr þegar kemur að bragði og úrvali
S
igurður Haraldsson kjöt-
iðnaðarmeistari stofnaði
Kjötpól í desember 2004
ásamt Ewu Kromer og byrj-
uðu þau smátt við lítinn
tækjakost. Þetta hefur undið upp á
sig og nú eru fjórir starfsmenn hjá
fyrirtækinu og framleiða þau yfir 40
tegundir af pylsum og skinku.
Markmið þeirra er að framleiða
vörur sem eru lausar við öll auka-
efni og innihalda eingöngu kjöt,
krydd og salt. Bjóða þau upp á fjöl-
breytt úrval af gómsætum pylsum
og skinku frá öllum heimshornum,
um er að ræða vandaða vöru sem er
eingöngu unnin úr íslensku hráefni.
Snakkpylsur á borð við hinar banda-
rísku Slim Jims og pólsku Mysliska
er kjörið að hafa með sér í ferðalag.
Grillpylsurnar skara fram úr
þegar kemur að bragði og úrvali.
Allt frá feitari pylsum á borð við
Zwyczajna, sem krydduð er með
hvítlauk og svörtum pipar, til fitu-
minni tegunda á borð við Slaska og
Torunska. Eyvindur heitir íslenska
pylsan, en hún er úr lambakjöti.
Þeir sem vilja kitla bragðlaukana
geta fengið sér Rosiwska, sem hægt
er að fá með annaðhvort nauta- eða
svínakjöti. n
Pylsur eru meira
en bara pylsur