Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 2
Vikublað 7.–9. júlí 20152 Fréttir Smart föt fyrir smart konur Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464 Stærðir 38-54 The New Yorker á hálendisvaktinni n Hálendisvakt björgunarsveita er hafin n Fjórir hópar sendir upp á hálendið H álendisvakt björgunar­ sveita er hafin og héldu fjórir hópar til fjalla á síð­ ustu dögum. Samhliða því ætla sjálf­ boðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar að standa vaktina á mörgum viðkomustöðum ferða­ manna víða um landið; Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum þar á með­ al. Spjallað verður við ferðalanga og þeim afhent fræðsluefni frá Neyðar­ línu, Sjóvá og Safetravel. Börnum verður boðið að fá sér sæti á fjór­ hjólum svo foreldrar geti smellt af þeim myndum. „Það eru tíu ár síðan við byrj­ uðum að fara með hópa frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg upp á hálendið og núna verðum við með búðir á þremur stöðum: Fjallabaki við Landmannalaugar, Skálan­ um Dreka við Öskju og Nýjadal við Sprengisand,“ segir Smári Sigurðs­ son, formaður Landsbjargar. Aðstæður á hálendi og til fjalla eru óvenjulegar þetta sumarið og jafnvel hættulegar. Þekking á að­ stæðum, reynsla og góð ferðahegð­ un er því mikilvæg en útköll björg­ unarsveita hafa sjaldan verið fleiri en undanfarnar vikur. Aðalmarkmiðið með Hálendis­ vaktinni er að vekja athygli á nauðsyn öruggrar ferðahegðunar og sérstökum aðstæðum á hálendinu. Hafa forðað fjölmörgum óhöppum Smári segir hlutverk hópanna fyrst og fremst að veita upplýsingar og fræðslu til að forða ferðamönnum frá óhöppum og slysum og vera við­ búnir ef í nauðirnar rekur. Mark­ miðið sé því tvíþætt. „Ég get með sanni sagt að við höfum forðað mörgum frá óhöpp­ um og slysum. Ferðamönnum hef­ ur fjölgað á þessum stöðum enda þekkja þeir ekki alveg kenjar ís­ lenskrar náttúru.“ Smári bætir því við að aðstæður á hálendinu séu öðruvísi en venju­ lega á þessum tíma. Það sé vegna óvenjumikils snjós, drullu og polla. „Það líður ekki sá dagur að björg­ unarsveitir séu ekki kallaðar út ein­ hvers staðar á landinu.“ Sjórinn óvenju mikill og svæði lokuð „Ég er í húsi. Við erum að græja okkur,“ segir Guðrún Katrín Jó­ hannsdóttir, sem er meðal björg­ unarmanna fyrsta hópsins sem stendur Hálendisvaktina og er á leið á Fjallabak við Landamannalaugar. Hún segir snjóinn mikinn á hálendinu og ekki sé búið að opna ýmis svæði hálendisins vegna þessa. „Venjulega komast hóparnir al­ veg upp á hálendi, svæðið enda stórt, og skiptist bæði í Fjallabak nyrðra og syðra, en nú er í raun bara búið að opna Landmannalaugar og upp í Veiðivötn. Þetta verður því óvenjuleg gæsla að því leytinu til að fólk verður minna á ferðinni en áður.“ Mæða muni meira á sveitun­ um Hellu og Hvolsvelli ef eitthvað gerist suður af Fjallabaki. Ekki sé hægt að komast þangað nema með sleða. „Hins vegar er gríðarlegur daga­ munur á snjónum. Þannig að þetta breytist líklega eitthvað,“ segir Guð­ rún Katrín. The New Yorker fylgist með Venjulega eru hóparnir einung­ is skipaðir fullgildum björgunar­ mönnum en í þetta skiptið slást Birna Guðmundsdóttir birna@dv.is „Margir ferðamenn verða líklega ör- magna vegna þess og við erum meðvituð um það. Smári segir mikilvægt að menn séu upplýstir Óvenju mikill snjór er á hálendinu þetta sumarið. Hálendisvaktin við störf Hjálpar mörgum ferðamönnum á hálendinu. Hlaupa í spari- fötum í sjóinn P ólar er matar­ og menn­ ingarhátíð þar sem rík áhersla er lögð á sjálfbærni og nærumhverfi,“ segir Katrín Helena Jónsdóttir, einn að­ standenda Pólar­hátíðarinnar, sem haldin verður dagana 7.–12. júlí næstkomandi á Stöðvarfirði, Aust­ fjörðum. Katrín segir að í samstarfi við fjölbreyttan hóp fólks verði boð­ ið upp á litríka dagskrá á Pólar sem samanstandi af námskeiðum, mat­ argerð, morgunjóga, hljómsveitum, bryggjuballi, sýningum og öðru. „Meðal þeirra sem spila á hátíð­ inni eru Teitur Magnússon, Prins Póló og Markús and The Diversion Sessions. Pólar­hátíðin byggist á hug­ myndinni um hæfileikasamfélag­ ið þar sem við hvetjum fólk til að leggja sitt af mörkum með hæfileik­ um sínum og þátttöku,“ segir Katrín. Peningar leiki eins lítið hlutverk og mögulegt er en ekkert kostar inn á hátíðina. Á Pólar er reynt að endurspegla þá möguleika sem náttúra, um­ hverfi og menning Stöðvarfjarð­ ar felur í sér. Til dæmis með því að veiða fisk úr sjó og bragðbæta með jurtum úr brekku og hlíð. „Eitt námskeiðið gengur út á þetta þar sem einn hópur býr til mat fyrir vikuna; fer í fjöruferð, göngu­ ferð út á fjall og út að sjó til að safna svæðisbundnum mat. Á laugardeg­ inum verður síðan slegið upp helj­ ar veislu þar sem maturinn verður framreiddur. Síðast þegar við héld­ um Pólar gekk það vel og nóg var af mat, þar á meðal fiski,“ bætir Katrín við. Þorpshátíðin Maður er manns Pólar-hátíðin haldin á Stöðvarfirði„Síðast þegar við héldum Pólar gekk það vel og nóg var af mat, þar á meðal fiski. Teknar fyrir kókaínsmygl Tvær franskar konur sitja í gæslu­ varðhaldi vegna misheppnaðr­ ar tilraunar til að smygla rúm­ lega 400 grömmum af kókaíni til landsins. Konurnar komu með flugi frá London í lok maí. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum grunuðu tollverðir konurnar um græsku þegar í flugstöðina var komið, stöðvuðu þær og höfðu samband við embættið. Stúlk­ urnar voru handteknar og færð­ ar til rannsóknar. Önnur þeirra reyndist hafa hluta efnanna inn­ vortis en hin hafði komið þeim fyrir utan á líkama sínum. Þær eru báðar um tvítugt en rannsókn málsins er á lokastigi. Lést við Gullfoss Ferðamaður sem hneig niður við Gullfoss á laugardag er lát­ inn. Ferðamaðurinn, eldri kona frá þýskalandi, hafði glímt við hjartveiki. Læknar sem voru á vettvangi, ferðamenn, hófu strax endurlíf­ gun. Þær báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin þegar komið var til Reykjavíkur. Hún var flutt þangað með þyrlu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.