Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 12
12 Fréttir Vikublað 7.–9. júlí 2015
Buxur vesti
Brók og skór
Einstakur markaður í hjarta borgarinnar
kolaportid.isOpið laugardaga og sunnudaga frá kl. 11-17
„Þessi tilraunastarf-
semi gengur ekki“
Þ
að er þungt hljóðið í fólki því
það virðist stefna í áfram-
haldandi tilraunastarfsemi,“
segir Árni Johnsen varðandi
ástandið í samgöngumálum
Vestmannaeyja. „Að mínu mati er
Landeyjahöfn aðeins nothæf yfir
sumartímann,“ segir annar viðmæl-
andi DV. Nýjar upplýsingar sýna að
um 260 þúsund rúmmetrum hefur
verið dælt úr höfninni í vetur en
áætlanir gerðu ráð fyrir að um 10–15
þúsund rúmmetrum yrði dælt upp
vegna viðhalds. Forstöðumaður sigl-
ingasviðs hjá Vegagerðinni segir að
áætlanir hafi miðast við nýja hent-
ugri ferju en aldrei hafi verið áætlað
hvað þyrfti að dæla vegna Herjólfs.
Þann 7. maí síðastliðinn
sendi áhugahópur um bætt-
ar samgöngur við Vestmannaeyj-
ar áskorun til innan ríkisráðherra,
þingmanna Suðurlands og bæjar-
stjórn Vestmannaeyja um að taka
mark á varnaðarorðum reyndra
skipstjórnar manna. Vísað var til
orða Steinars Magnússonar skip-
stjóra sem í samtali við Morgunblað-
ið sagði: „Menn verða þó að hafa í
huga að mannvirkið er aðeins hálf-
byggt. Það er mjög aðkallandi að
reistir verði varnargarðar sem næðu
lengra út og myndu umlykja þá sem
eru nú ystir. Slík framkvæmd er brýn
og myndi fjölga þeim dögum sem
fært væri í höfnina. Ný ferja myndi
ekki leysa vandann nema að litlu
leyti,“ segir Steinar sem hefur siglt á
Herjólfi síðan 2007.
„Vegagerðin hefur hins vegar
gefið það út að ekki sé hægt að breyta
höfninni, ekki með görðum eða
neinu,“ segir Árni Johnsen. „Þessi til-
raunastarfsemi gengur ekki áfram.
Rekstrarkostnaður skipsins er um
einn milljarður, moksturinn er hálf-
ur milljarður og engar áætlanir sem
standast. Það þarf bara að viður-
kenna mistökin og fara í raunhæfari
lausnir. Árni vill að þegar í stað verði
farið að skipuleggja borun ganga til
Vestmannaeyja: „Kostnaðurinn við
þau er um 30 milljarðar og engin fyr-
irsjáanleg jarðfræðileg vandamál.
Þetta er einfalt reikningsdæmi til
lengri tíma,“ segir Árni.
13 sinnum meira magn af sandi
Samkvæmt upplýsingum DV hefur í
vetur verið, sem fyrr segir, dælt um
260 þúsund rúmmetrum úr höfninni
sem er margfalt meira en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Óhætt er að segja að
orð Elliða Vignissonar hafi ekki ræst
en árið 2011 sagði hann í viðtali við
Eyjuna: „Það er ekkert óeðlilegt við
að dæla þurfi sandi upp úr höfnum.
Við höfum verið að dæla úr Vest-
mannaeyjahöfn frá því að hún var
stofnsett og reglulega þarf að dæla
úr Þorlákshöfn. Sérstaklega þarf að
dæla mikið fyrstu árin. Fyrsta árið
verður mikil dæling og minni von-
andi á næsta ári.“
Herjólfur hentar ekki
„Þetta verður alltaf erfið barátta og
það er alveg rétt að magnið var vaná-
ætlað. Stór hluti af því svæði sem við
erum að dýpka núna er vegna Herjólfs
þar sem hann ristir svo djúpt. Við
þurfum að dýpka miklu meira en ella
miðað við það skip sem höfnin var
hugsuð fyrir,“ segir Sigurður Áss Grét-
arsson, forstöðumaður siglingasviðs
Vegagerðarinnar. „Haustið 2008 var
tekin sú ákvörðun að halda Herjólfi
vegna fjárskorts, það er þó ljóst að
skipið hentar ekki til siglinga í Land-
eyjahöfn,“ bætir Sigurður Áss við.
„Baráttan er töpuð“
Að sögn Sigurðar Áss er verið að
undirbúa útboðsgögn varðandi
smíði ferju sem hentar fyrir aðstæð-
urnar í Landeyjahöfn og verkinu
verði ekki lokið fyrr en sú ferja hefur
hafið siglingar. Aðspurður hvort sigl-
ingartími nýrrar ferju til Þorláks-
hafnar verði sá sami og siglingatími
Herjólfs, segir Sigurður Áss: „Það er
ekkert hægt að segja til um það. Það
er reynt að miða við að þetta sé sami
siglingartími og hjá Herjólfi til Þor-
lákshafnar.“
DV hefur rætt við fjölmarga að-
ila sem þekkja til svæðisins í kring-
um Landeyjahöfn og segja þeir all-
ir að baráttan sé vonlaus að þeirra
mati. Einn gengur svo langt að segja
að hún sé töpuð. Sandurinn gangi
inn á landið með sjávarstraumum en
einnig fjúki umtalsvert magn ofan af
landi og niður í höfnina. Einnig segja
sjónarvottar að fjaran sé sífellt að
færast framar. „Ég er þess fullviss að
Landeyjahöfn verði orðinn innlyksa
innan tíu ára,“ segir einn viðmælandi
DV. Þessu hafnar Sigurður Áss
alfarið. „Mælingar sýna að fjaran
hefur hopað, ef eitthvað er, frá árinu
2010. Vissulega eru sveiflur milli ára
og það getur vel verið að fjaran hafi
eitthvað færst fram síðastliðinn vetur
en á heildina litið sýna mælingar að
fjaran hefur hopað.“
Tilgátan um Dragør
Ein kenning sem hefur gengið fjöllum
hærra varðandi hve vonlaus baráttan
sé snýr að skipinu Dragør sem strand-
aði í Bakkafjöru árið 1920. Nýlegar
myndir sýna að flakið er komið um
500 metra inn í land og vilja viðmæl-
endur DV meina að þetta sýni svart á
hvítu að náttúran muni hafa betur.
Sigurður Áss blæs á þessar full-
yrðingar: „Öll önnur skip sem hafa
strandað á suðurströndinni hafa
sokkið í sandinn en ekki þetta til-
tekna skip. Ef fjaran hefur ver-
ið þarna þá hefði skipið sokkið og
hulist. Það segir manni að ströndin
hefur ekki verið þarna. Annaðhvort
hefur farvegur Markarfljóts verið
þarna og skipið siglt upp fljótið áður
en það strandaði eða, sem er allt eins
líklegt, skipið flaut langt upp í land
og strandaði. Sjórinn gat gengið ansi
langt upp í land áður en garðarnir
voru settir upp,“ segir Sigurður Áss.
Undir kostnaðaráætlunum
Sigurður tekur hins vegar fullkom-
lega undir það að baráttan sé erfið
en bendir þó á að verkefnið sé und-
ir öllum kostnaðaráætlunum. „Árið
2007 var gert ráð fyrir að höfnin með
öllu myndi kosta 3,5 milljarða og það
er á verðlagi dagsins í dag um sex
milljarðar og svo bætist við viðhalds-
kostnaður, yfir allt tímabilið, sem átti
að vera um 600 milljónir. Það er því
hægt að segja að heildarkostnaður-
inn hafi átt að vera 6,6 milljarðar á
þessum tímapunkti en staðan er sú
að sá kostnaður, með allri dýpkun er
um 5,5–5,6 milljarðar. Við erum því
þrátt fyrir allt undir öllum áætlun-
um,“ segir Sigurður Áss.
Í könnun í byrjun árs kom fram að
72 prósent bæjarbúa í Vestmanna-
eyjum telji ólíklegt að Landeyjahöfn
þjóni samgöngum allt árið um kring.
Aðspurður um það segir Sigurður
Áss: „Við stefnum að því með nýrri
ferju og öðruvísi dýpkunaraðferðum
að um heilsárshöfn verði að ræða.
Tíminn verður hins vegar að leiða í
ljós hvort að það gangi eftir.“ n
n Baráttan fyrir Landeyjahöfn að tapast n Vegagerðin vill ljúka verkinu
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Tilraunastarfsemi Árni segir þungt hljóð
í Eyjamönnum.
Segir verkið á áætlun „Við erum því
þrátt fyrir allt undir öllum áætlunum,“ segir
Sigurður Áss.
Landeyjahöfn Um 260 þúsund
rúmmetrum af sandi hefur verið
dælt úr höfninni í vetur en gert
var ráð fyrir um 15–20 þúsundum
rúmmetrum í áætlunum. Vega-
gerðin segir að þær áætlanir hafi
miðast við hentugra skip en Herjólf.
Flak Dragør Hér má sjá
skipsflakið og fjarlægð þess frá fjöruborðinu.
Skipið strandaði árið 1920 og vilja menn meina
að þetta sé vísbending um örlög Landeyjahafnar.
„Það þarf bara að
viðurkenna mis-
tökin og fara í raunhæfari
lausnir.