Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2015, Blaðsíða 8
Vikublað 7.–9. júlí 20158 Fréttir Fimm hundruð þúsund ferðamenn F rá áramótum hafa 517.037 er- lendir ferðamenn farið frá landinu, sem er 115.265 fleiri en á sama tíma í fyrra. Þetta er 28,7 prósenta aukning á milli ára. Um 137 þúsund erlendir ferða- menn fóru frá Íslandi í júní síðast- liðnum samkvæmt talningum Ferða- málastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Það eru 26.712 fleiri ferðamenn en í júní á síðasta ári. Aukningin nemur 24,2 prósentum á milli ára. Frá áramótum hefur verið aukn- ing alla mánuði, eða 34,5% í janúar, 34,4% í febrúar, 26,8% í mars, 20,9% í apríl og 36,4% í maí. Um 72% ferðamanna í júní voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir, eða 24,5% af heildar- fjölda. Þjóðverjar voru næstir, eða 10,5% og Bretar á eftir þeim, eða 8,4%. Á eftir fylgdu Frakkar (5,3%), Kín- verjar (5,1%), Kanadamenn (4,6%), Norðmenn (4,1%), Svíar (3,3%), Dan- ir (3,1%) og Pólverjar (2,9%), sam- kvæmt upplýsingum Ferðamálastofu. Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Kínverjum, Bretum og Kanadamönnum mest milli ára í júní. Alls komu 12.334 fleiri Bandaríkjamenn til landsins í júní í ár en í fyrra, 3.167 fleiri Kínverj- ar, 2.060 fleiri Bretar og 1.008 fleiri Kanadamenn. Þessar fjórar þjóðir báru uppi 69,5% aukningu ferða- manna í júní. Nokkrum þjóðum fækkaði hins vegar í júní frá því í fyrra. Rússum um 40,6%, Svíum um 16,7%, Dönum um 13,6% og Norðmönnum um 10,2%. Heildarfjöldi ferðamanna í júní hefur meira en fjórfaldast frá árinu 2002 og munar þá mestu um aukn- ingu N-Ameríkana sem hafa ríflega sexfaldast og þeirra sem flokkast undir ,,annað“ sem hafa áttfaldast. Á sama tíma hefur fjöldi ferða- manna frá Mið- og Suður-Evrópu ríflega þrefaldast, fjöldi Breta hefur einnig þrefaldast og fjöldi Norður- landabúa nærri tvöfaldast. Hlutverk þeirra síðastnefndu hefur minnk- að með árunum í júní, samkvæmt tölum Ferðamálastofu. n Um 137 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá Íslandi í júní Flugstöð Leifs Eiríkssonar Rúmlega hálf milljón erlendra ferðamanna hefur yfirgefið Flugstöð Leifs Eiríkssonar það sem af er árinu. „Svo eru það útlendingarnir sem gefa í“ U m ein milljón ferðamanna kom til Íslands í fyrra en á þessu ári er gert ráð fyrir yfir 20 prósenta fjölgun. Eins og við er að búast eru áhrifin mikil á íslenskt samfélag, þar á meðal á þjóðvegum landsins, þar sem margt hefur breyst. Höskuldur Erlingsson, varðstjóri lögreglunnar á Norðurlandi vestra, segir að gríðarleg breyting hafi orðið úti á þjóðvegunum með auknum fjölda ferðamanna til landsins. Margir þeirra aki of hratt á bílaleigubílum sínum og stoppi hvar sem þeim detti í hug til að taka myndir af hestum. Kínverskar mæðgur í vanda „Stærsta breytingin er að þetta er orðin svo mikil umferð allt árið um kring. Eins og í vetur, þá var mik- il umferð erlendra ferðamanna alla daga,“ segir Höskuldur. Mikill fjöldi þeirra kom frá Asíu og lentu margir í vandræðum og umferðaróhöppum á bílaleigubílum sínum út af veðri og ófærð. „Ég man eftir kínverskum mæðgum sem óku út af. Þetta var um mánaðamótin janúar febrúar. Ég spurði: „Hvað eruð þið að gera hérna núna?“ Og þær sögðu: „Northern lights“,“ segir Höskuldur. Þær höfðu því ákveðið að koma til Íslands vegna norðurljósanna, sem hafa fengið mikla umfjöllun og kynningu í Asíu. Ferðamenn keyra hraðar Að sögn Höskuldar keyra erlendu ferðamennirnir hraðar en þeir ís- lensku. „Mín tilfinning er sú að það hafi orðið mikil á breyting á öku- hraða Íslendinga, þeir eru farnir að keyra hægar,“ segir hann og nefnir mögulega ástæðu fyrir því vera hækk- un eldsneytisgjalds. „Svo eru það útlendingarnir sem gefa í. Hátt hlut- fall af þeim sem við stoppum er útlendingar.“ Taka myndir af hestum Oft þarf lögreglan einnig að hafa af- skipti af útlendingum sem stoppa bíla sína úti í vegkanti til að taka ljós- myndir. „Þeir eru afar mikið í því að stoppa hingað og þangað og taka myndir af hestunum hérna. Þá spá ekkert í hvort það er blindhæð eða ekki,“ segir hann en þannig geti þeir sett sjálfa sig og aðra í stórhættu. „Við höfum ekki sektað fyrir þetta en við höfum stuggað við ferðamönnum út af þessu.“ Vík í þriðja sæti Elías Guðmundsson, sem rekur Víkurskála á Vík í Mýrdal, veitinga- staðinn Ströndina, Icelandair Hótel Vík og Icelandair Hótel Eddu, segir að sprenging hafi orðið í fjölda ferða- manna á svæðinu undanfarin ár en Vík í Mýrdal er orðinn þriðji fjölsótt- asti ferðamannastaður landsins. Vel í stakk búin „Það hefur verið góður stígandi í þessu undanfarin ár. Það er talsverð aukning frá því í fyrra og í fyrra var talsverð aukning frá því árið áður,“ segir Elías um hinn aukna ferða- mannastraum. „Það er mjög fjöl- breytt þjónusta hér í Mýrdalnum og ég vil meina að við séum mjög vel í stakk búin til að taka á móti því fólki sem hingað kemur.“ Sækja í fjörur, jökla og fossa Hann segir ferðamenn sækja mest í fjörurnar, jöklana og fossana. „Það eru Seljalandsfoss, Skógafoss, Sól- heimajökull, Dyrhólaey, Reynisfjara og Víkurfjara. Við erum vel í sveit sett gagnvart náttúruperlum.“ Fjöldinn dreifist betur um landið Kristján Daníelsson, framkvæmda- stjóri Kynnisferða, segir að undan- farna mánuði og síðasta árið hafi ferðum þeirra með erlenda ferða- menn fjölgað á staði sem áður voru ekkert sérlega mikið sóttir. „Við telj- um það mjög jákvætt að það er að vaxa mikið straumurinn á Snæfells- nes, Borgarfjörð og suðurströndina, sem hefur alltaf verið frekar rólegt. En það er verulega gaman að sjá að þetta er að dreifast mun betur,“ seg- ir Kristján. „Fólk er að átta sig á því að það er fleira að sjá á Íslandi og fjöldi skemmtilegra verkefna í gangi. Ég hef verið nokkuð ánægður að sjá þessa þróun af því að það er enginn hagur fyrir okkur að beina allri um- ferð á Gullna hringinn eða eitthvað slíkt.“ Brottförum fjölgað Auk þess að fara í auknum mæli á aðra staði en Gullfoss, Geysi og Þingvelli reyna Kynnisferðir að dreifa tímasetningum ferðanna. „Við höfum verið að breyta framboðinu með því að fjölga brottförum til að reyna að minnka álagsstreymið sem er á þessa stærstu staði. Við erum með brott- farir á öðrum tímum en áður til að þetta dreifist meira yfir daginn,“ segir Kristján. n n Stöðva bíla sína úti í vegkanti og taka myndir af hestum n Setja sjálfa sig og aðra í stórhættu Freyr Bjarnason freyr@dv.is „Það er talsverð aukning frá því í fyrra og í fyrra var talsverð aukning frá því árið áður. Elías Guðmundsson Elías segist vel geta tekið á móti auknum fjölda ferðamanna. Kristján Daníelsson Fjöldinn dreifist betur um landið en áður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.