Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Síða 4
Vikublað 5.–6. ágúst 20154 Fréttir
GÓLFMOTTUR
Við leigjum út gólfmottur í anddyri.
Haltu fyrirtækinu hreinu og minnkaðu
ræstingakostnað.
Við sækjum og sendum.
Fáðu verðtilboð!
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is
S í m i: 567 4 8 4 0 • Fu n a h ö fð i 1 • 110 R v k .
bilo@bilo. is • w w w. b i l o. i s
Skoðaðu heimasíðuna okkar
ww
w.
bi
lo
.is
Ef
þú
er
t í b
ílahugleiðingum?
... með okkur!
FRÁ KR. 48.900
Stórar björgunaræfingar
fátíðar í íslenskum göngum
n Tveir brunar í Noregi n Erfitt að ráða við reykinn í eldsvoða n Engar eftirlitsmyndavélar
S
tórar björgunaræfingar í
jarðgöngum á Íslandi hafa
verið mjög stopular í gegn-
um árin. „Þetta hefur ver-
ið gert en því miður ekki al-
veg nógu oft,“ segir Gísli Eiríksson,
sem hefur umsjón með jarðgöngum
Vegagerðarinnar, spurður út í tíðni
björgunaræfinga. „Það hafa ekki ver-
ið stórar æfingar haldnar síðustu
árin en slökkviliðsmenn hafa farið
einu sinni á ári og æft sig í stjórnkerf-
unum við göngin. Ég tel það mjög
mikilvægt að menn fari og æfi sig í
þeim. En menn geta ekki alltaf verið
í stórum æfingum, það er ekki raun-
hæft.“
Í reglugerð umhverfisráðu-
neytisins um brunavarnir í sam-
göngumannvirkjum frá árinu 2004
er kveðið á um að slökkviliðsstjóri
skuli reglulega halda æfingar með
eiganda samgöngumannvirkis og
lögreglu í samræmi við fyrirmæli
viðbragðs áætlunar.
Gísli segir það útbreiddan
misskilning að þegar talað er um
björgunaræfingu þurfi hún að vera
stór, með mörgum bílum og miklum
mannskap. Oftast nær sé nóg að hafa
litlar æfingar þar sem menn skoða
hvort ákveðnir hlutir séu í lagi.
Ekki nógu margar æfingar
Vegagerðin hefur eftirlit með öllum
jarðgöngum á Íslandi nema Hval-
fjarðargöngunum, sem eru einkarek-
in. Þar hefur engin stór björgunaræf-
ing verið haldin í áratug, eins og kom
fram í DV fyrir skömmu. Slökkviliðs-
stjóri höfuðborgarsvæðisins og fram-
kvæmdastjóri Spalar sögðu báðir að
tími væri kominn á slíka æfingu.
Að sögn Gísla stendur til að halda
stóra æfingu í Fáskrúðsfjarðargöng-
um, auk þess sem æfing var haldin í
Héðinsfjarðargöngum 13. desember
síðastliðinn. Hann segir að slökkvi-
liðsstjórar í viðkomandi sveitarfé-
lögum eigi að stjórna æfingunum en
frumkvæðið að þeim geti komið frá
mörgum aðilum, þar á meðal Vega-
gerðinni.
Reykurinn stærsta vandamálið
Í grein DV kom einnig fram að
slökkvilið eigi mjög erfitt með að
ráða við það ef mikill eldsvoði eða
sprenging yrði í Hvalfjarðargöngum.
Gísli segir aðalvandamálið ef elds-
voði eða sprenging verður í göngum,
eins og hefur gerst í Noregi, vera reyk-
inn sem myndast. Erfitt sé að slökkva
sjálfan eldinn.
„Það sem skiptir máli er rýming, að
koma fólki út. Þó að bíldrusla brenni
þá gerir það ekkert til. Vandamálið er
reykurinn. Hann fer bara í aðra áttina,
þannig að öðrum megin eru menn í
reyk en hinum megin er allt í lagi. Það
er voðalega lítið hægt að gera í því,“
útskýrir hann en slökkviliðið þarf
alltaf að fara inn með vindinum til að
eiga möguleika á að slökkva eldinn.
„Þetta er ekki einfalt og það eru engar
lausnir á þessu,“ bætir hann við en
tekur fram að verið sé að vinna í þess-
um málum.
„Í Noregi eru í kringum 1.000 göng
og þar eru um það bil tveir brun-
ar í mánuði. Það hefur enginn farist í
bruna í norskum göngum.“
Engar eftirlitsmyndavélar
Einu eftirlitsmyndavélarnar í íslensk-
um göngum eru í Hvalfjarðargöng-
um. Spurður hvort slíkar vélar þurfi
ekki í hin göngin ef eitthvað myndi
koma upp á segir Gísli að staðlarn-
ir sem farið er eftir miðist við umferð
og hún hafi ekki verið nógu mikil til að
myndavélar hafi talist nauðsynlegar.
Einnig þurfi þá að ráða mannskap til
að fylgjast með. Hann telur að smám
saman þurfi þó að auka eftirlitið, sér-
staklega þegar göngum fjölgar hér á
landi.
Engir brunahanar eru heldur í
göngum á vegum Vegagerðarinnar.
Gísli segir engar reglur kveða á um
að brunahana þurfi. Þess í stað þurfa
slökkviliðsbílar með vatnstanki að
vera til staðar til að slökkva eld.
Slysatíðni helmingi lægri
„Menn tala um hættu í göngum en
það má ekki gleymast að jarðgöng eru
öruggustu hlutar vegakerfisins. Slysa-
tíðni í göngum er helmingi lægri en úti
á vegum, samkvæmt norskum tölum.
Það er hægt að hugsa sér að það verði
stórslys en það hefur þó ekki gerst, þó
svo að það hafi legið nærri því í Noregi
nokkrum sinnum,“ segir hann. n
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Oddskarðsgöng Björgunaræfingar í Oddskarðsgöngum
hafa verið af skornum skammti. Mynd VEgagERðin
Skatestraum-göngin Olíuflutningabíll með 16.500 lítra af eldsneyti innanborðs varð
fyrir umferðaróhappi í Skatestraum-göngunum í Bremanger í Noregi. Sex slösuðust og mikil
mildi þykir að ekki hafi farið verr þann 15. júlí sl.„Það sem skiptir
máli er rýming,
að koma fólki út. Þó að
bíldrusla brenni þá gerir
það ekkert til. Vandamál-
ið er reykurinn.