Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Page 6
Vikublað 5.–6. ágúst 20156 Fréttir Fæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.www.provision.is Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað við aldursbundinni augnbotnahrörnun. Nú er vítamínið með endurbættri formúlu sem gerir það enn betra en áður. Viteyes í nýju umbúðunum er komið í dreifingu og er fáanlegt á sömu stöðum og áður, um allt land. NÝTT OG ENDURBÆTT AUGNVÍTAMÍN Í NÝJUM UMBÚÐUM! Nýjar umbúðir Augnheilbrigði Selkópurinn gefinn refunum Selkópurinn sem slapp úr Hús- dýragarðinum aðfaranótt mánu- dags og fannst á tjaldsvæðinu í Laugardal hefur mögulega vitað af örlögum sínum og þess vegna reynt þessa fræknu flóttatilraun. Þeim selkópum, sem fæðast rétt fyrir sumarið, er nefnilega slátrað á haustin og þeir nýttir í fóður fyrir refina sem Húsdýra- garðurinn heldur. DV hefur áður fjallað um örlög selkópanna en greint var frá því sumarið 2013 að þeir fái að lifa út sumarið með mæðrum sínum en er síðan slátrað. Rætt var við að- stoðarforstöðumann Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, Sigrúnu Thorlacius, sem sagði þá að kjötið af kópunum færi ekki til spillis. „Við höfum notað kjötið í fóður hérna, refirnir hafa étið það. Við höfum nýtt það svona innanhúss handa hinum dýrunum.“ Aðspurð hvort ekki væri hægt að sleppa kópunum lausum að hausti segir hún það ekki vera hægt þar sem selir sem aldir eru á þennan hátt kunni ekki að bjarga sér sjálfir í þannig aðstæðum. „Nei, svona selir kunna ekki að bjarga sér í náttúrunni.“ Þá var einnig rætt við Árna Stefán Árnason, lögfræðing og dýraverndunarsinna, sem sagði mikinn blekkingarleik eiga sér stað í Húsdýragarðinum á hverju ári og þá sérstaklega í garð barna: „Mér finnst ömurlegt að það sé verið að gera út á það á vorin að það séu að fæðast lömb, kálfar, geitur og selkópar en það er síðan ekkert sagt um framhaldið. Þau enda öll í slátur- húsi um haustið.“ S litabú Glitnis mun ekki framselja eign að fjárhæð um 37 milljarðar, sem er and- virði samtölu innlána Glitnis í krónum hjá Íslandsbanka, til íslenskra stjórnvalda í formi reiðufjár, eins og stærstu kröfuhafar slitabús- ins höfðu áður samþykkt sem hluta af stöðugleikaframlagi Glitnis. Þess í stað fá stjórnvöld afhent skuldabréf í íslenskum krónum til tíu ára. Þessi breyting á því samkomulagi sem gert hafði verið við helstu kröf- uhafa Glitnis, og fjármálaráðuneytið tilkynnti um samhliða því að áætl- un um losun fjármagnshafta var op- inberuð 8. júní síðastliðinn, var gerð að beiðni Íslandsbanka í því skyni að verja lausafjárstöðu bankans. Með öðrum orðum taldi Íslandsbanki að það væri of mikil áhætta fólgin í því fyrir lausafjárstöðu bankans ef Glitnir tæki út samstundis 37 milljarða inn- lán sín í krónum. Fram kemur í svari Íslandsbanka við skriflegri fyrirspurn DV að bankinn hafi „talið mikilvægt að viðhalda sterkri lausafjárstöðu bankans í gegnum afnám gjaldeyrishafta og lagði því til að umræddar greiðslur væru í formi skuldabréfs“. Þá bendir bankinn á að laust fé hans hafi verið 214 milljarðar króna í lok fyrsta ársfjórðungs á þessu ári og að „með samkomulaginu [sé] tryggt að lausafjárstaðan verður áfram afar sterk“. Undirrituðu rammasamkomulag Íslandsbanki og Glitnir undirrituðu rammasamkomulag 16. júlí um þær aðgerðir sem Íslandsbanki myndi grípa til svo slitameðferð Glitnis næði fram að ganga í samræmi við þær tillögur sem kröfuhafar hafa lagt fram og „stýrinefnd um losun fjár- magnshafta hefur staðfest“ að taki á „greiðslujafnaðarvanda vegna inn- lendra eigna í eigu gömlu bankanna,“ eins og sagði í tilkynningu. Hið rétta er hins vegar að framkvæmdahóp- ur um losun hafta hefur gefið það út að tillögur kröfuhafa Glitnis uppfylli stöðugleikaskilyrði stjórnvalda og þar með forsendur fyrir undanþágu frá höftum. Stýrinefndin hefur aftur á móti enga afstöðu enn tekið til til- lagna kröfuhafa en í henni eiga með- al annars sæti fjármálaráðherra og seðlabankastjóri. Í tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér um miðjan síðasta mánuð sagði að „Glitnir fái afhent skuldabréf í íslenskum krónum frá Ís- landsbanka að andvirði samtölu inn- lána Glitnis í íslenskum krónum hjá bankanum. Skuldabréfið verður á markaðskjörum til 10 ára.“ Enginn virkur markaður Ef stjórnvöld fá afhent skuldabréf í krónum til tíu ára að fjárhæð 37 millj- arða – í stað reiðufjár – þá mun það hafa áhrif á yfirlýst áform um að stöð- ugleikaframlag gömlu bankanna verði nýtt til að greiða niður skuld- ir hins opinbera. Til stóð að Glitn- ir myndi afhenda stjórnvöldum 58 milljarða greiðslu í reiðufé í krónum en heimilt væri að draga fallt að 5 milljarða frá þeirri fjárhæð vegna inn- lends rekstrarkostnaðar slitabúsins. Nú er hins vegar ljóst að sú upphæð sem stjórnvöld fá í formi reiðufjár frá Glitni verður umtalsvert lægri enda var stærstur hluti slíkra eigna slita- búsins í formi innlána í krónum hjá Íslandsbanka. Talsverð óvissa er um endanlegt verðmæti þeirra innlendu eigna sem stærstu kröfuhafar Glitnis hafa samþykkt að gefa eftir til að ljúka skuldaskilum með nauðasamningum en þær eru líklega metnar á bilinu 250 milljarðar til 400 milljarðar. Íslenska ríkið, eða félag á vegum Seðlabankans, gæti hugsanlega selt slíkt skuldabréf útgefið af Íslands- banka í stað þess að geyma það á efnahagsreikningi sínum. Óvíst er hins vegar hvaða verð gæti fengist fyr- ir bréfið. Enginn virkur markaður er með tíu ára skuldabréf í krónum út- gefnu af íslenskum banka. n Í ritum Seðlabanka Íslands um fjár- málastöðugleika hefur verið ítrekað að lausafjárstaða stóru viðskiptabankanna sé sterk sem birtist meðal annars í því að lausafjárhlutfall þeirra í heild og í erlendum myntum sé vel yfir lágmarkskröfum. Nýjar og stífari lausafjárreglur tóku gildi undir lok ársins 2013 – mun fyrr en í flestum öðrum Evrópuríkjum – sem byggjast á alþjóðlegu viðmiði Basel-nefndarinnar um bankaeftirlit. Fyrir þetta ár má heildarhlutfallið ekki fara undir 80% en krafan mun hækka upp í 100% á næstu tveimur árum. Heildar- lausafjárhlutfall Íslandsbanka var 134% í lok fyrsta ársfjórðungs. Viðskiptabankarnir þrír eru allir að mestu fjármagnaðir með innlánum og í nýjasta riti Seðlabankans um fjármála- stöðugleika, er bent á að tæp 73% af þeim sé laus innan mánaðar, um 85% innan þriggja mánaða og rúmlega 90% laus innan sex mánaða. Samkvæmt nýju lausafjárreglunum skulu bankarnir eiga lausar eignir sem nema um 45% innlána sem eru laus innan mánaðar eða um 18% af efna- hagsreikningi sínum. Þrátt fyrir að Seðlabankinn nefni að innlán séu „almennt talin vera stöðug fjármögnun“ þá telur hann að bankarnir þurfi að halda áfram á þeirri braut að auka fjölbreytni í markaðsfjár- mögnun sinni. Samtals námu innlán viðskiptavina Íslandsbanka 521 milljarði króna í lok fyrsta fjórðungs 2015. Var hlutfall innlána á móti útlánum 80,3% og hafði lækkað um 2,6 prósent frá því á sama tíma fyrir ári. Hörður Ægisson hordur@dv.is Einsleit fjármögnun viðskiptabankanna Hætta við að afhenda ríkinu 37 milljarða í reiðufé n Innlán Glitnis í krónum afhent í formi 10 ára skuldabréfs n Gert að beiðni Íslandsbanka sem vildi „viðhalda sterkri lausafjárstöðu“ Íslandsbanki Vildi tryggja að lausafjárstaða bank- ans yrði áfram sterk. Mynd Bragi Þór JósEfsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.