Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Blaðsíða 10
Vikublað 5.–6. ágúst 201510 Fréttir
FYRIR MEÐFERÐ EFTIR 2-7 DAGA EFTIR MEÐFERÐ
ekki gera upp a mil li,
al lir eiga skilid Baby Foot!
,
FÆST Í V E RS LUNUM UM LAND A L LT
Dæmdur í
fangelsi
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt rúmlega tvítugan Sómala
í eins mánaðar fangelsi fyrir að
framvísa öðru vegabréfi en sínu
eigin við komuna til landsins
þann 20. júlí síðastliðinn.
Maðurinn var á leið til Kanada
þegar hann framvísaði sænsku
vegabréfi. Maðurinn játaði brot
sitt skýlaust fyrir dómi. Auk þess
að sæta fangelsi í einn mánuð
var manninum gert að greiða 150
þúsund krónur í sakarkostnað.
Frábærar
móttökur
Íslensku keppendurnir, sem tóku
þátt í Alþjóðasumarleikum Speci-
al Olympics, komu til landsins á
þriðjudag og var tekið höfðing-
lega á móti hópnum. Alls voru 41
keppandi frá Íslandi á leikunum
og náðist frábær árangur; 4 gull-
verðlaun, 3 silfurverðlaun og 6
bronsverðlaun.
Starfsmenn Isavia á Keflavíkur-
flugvelli tóku á móti hópnum á
þriðjudag. Eftir að hafa fengið
heiðursvatnsboga yfir flugvélina
frá slökkvibifreiðum Keflavíkur-
flugvallar var tekið á móti þeim í
flugstöðinni með lúðraþyt, blóm-
um og veitingum eftir langt ferða-
lag frá Los Angeles.
„Má ég þá safna milljón?“
n Reykjavíkurmaraþonið á næsta leiti n Fjölmargir hlaupa til styrktar góðum málefnum
S
enn líður að Reykjavíkur-
maraþoni Íslandsbanka en
það fer fram laugardaginn
22. ágúst næstkomandi.
Hægt er að heita á hina
ýmsu hlaupara og hlaupahópa sem
skráðir eru þátttakendur í hlaupinu
og safna áheitum fyrir góðgerðarfé-
lög.
Hver sem er getur heitið á skráða
hlaupara og hafa nú þegar safnast
yfir fimmtán milljónir króna í áheit.
DV ræddi við nokkra einstaklinga
sem hlaupa til styrktar góðgerða-
málum.
Hver sem er getur verið
með geðsjúkdóm
Birgir Örn Breiðfjörð ætlar að hlaupa
21 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni
Íslandsbanka þar sem hann hyggst
safna 150.000 krónum til styrkt-
ar Geðhjálp en Birgir greindist með
geðhvarfasýki fyrir stuttu síðan.
„Ég greindist með geðhvarfasýki
í vor. Fréttirnar voru ákveðið sjokk
fyrir mig og mína,“ segir Birgir sem
þegar hefur safnað 112.000 krónum
þegar þó nokkur tími er í hlaupið.
Hann segir það hafa verið mik-
inn létti að fá greininguna og í henni
hafi falist ákveðin fagnaðartíðindi
enda gat hann þá loks brugðist við
ýmsum hlutum í eigin fari sem áður
voru óþekktir.
Birgir segist ætla að hlaupa hálf-
maraþonið til að vinna bug á for-
dómum og fáfræði gagnvart geð-
sjúkdómum. „Hugmyndin er sú að
sýna fram á að það sést ekki alltaf
utan á fólki hverjir eru með geðsjúk-
dóma og hverjir ekki. Hver sem er
getur verið með geðsjúkdóm.“
Hann segir fordóma gagnvart
geðsjúkdómum þó hafa minnkað
töluvert í samfélaginu en alltaf megi
gera betur.
Til styrktar Útmeð‘a
Helga Helgadóttir hefur safnað
43.500 krónum til styrktar Útmeð‘a,
átaks á vegum Geðhjálpar og Rauða
krossins, gegn sjálfsvígum ungra
karlmanna. Á áheitasíðu sinni hvet-
ur Helga vini og vandamenn til að
styrkja hið þarfa málefni og hlaup-
ið líka.
Fyrrverandi unnusti Helgu, lífs-
glaður maður með bjarta framtíðar-
sýn, veiktist á nokkrum dögum og sá
enga leið aðra en að enda líf sitt.
Helga hleypur því Reykjavíkur-
maraþonið til að styðja við verkefni
Útmeð‘a-hópsins sem fór af stað í
sumar.
Söngvari DIMMU hleypur
42 kílómetra
Styrktarsjóður gigtveikra barna skor-
aði á hljómsveitina DIMMU að
hlaupa 10 kílómetra á mann í Reykja-
víkurmaraþoninu. Stefán Jakobsson,
söngvari hljómsveitarinnar, svaraði
fyrir hönd hennar: Ekkert mál. Þegar
hann sagði hljómsveitarfélögum sín-
um frá stöðu mála sögðu þeir, að sögn
Stefáns: Tekur þú þetta ekki bara? Því
fór að Stefán hleypur 42 kílómetra í
Reykjavíkurmaraþoninu og niður-
staðan sú að DIMMA hlaupi til styrkt-
ar Styrktarsjóði gigtveikra barna.
Þegar hafa safnast 106.000 krónur.
Ætlaði fyrst að safna billjón,
svo milljón
Baldvin Týr Sifjarson, fimm ára,
greindist með Duchenne-vöðvarýrn-
un þriggja ára gamall. Hann hyggst
taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu
eins og foreldrar hans hafa alltaf gert
en hann samdi við móður sína um að
taka þátt og fer því 3 kílómetra í flotta
hjólastólnum sínum. Allur ágóði af
hlaupi Baldvins rennur til Duchenne-
amtakanna á Íslandi.
„Hann sagðist ætla að safna
billjón en ég sagði honum að það
væri ekki alveg hægt,“ segir Sif
Hauksdóttir, móðir Baldvins. „Þá
spurði hann: má ég þá safna millj-
ón? Já, sagði ég. Já, þá geri ég það,
sagði hann.“ Útlit er fyrir að Baldvini
takist ætlunarverk sitt en hann hef-
ur þegar safnað meira en hálfri
milljón króna.
„Þetta verður í fyrsta skipti sem
hann fer í Reykjavíkurmaraþonið,“
segir Sif en Baldvin hefur greini-
lega verið duglegur við að taka þátt
í hinum ýmsu hlaupum og tók með-
al annars þátt í Latabæjarhlaupinu í
fyrra.
„Hann er mjög spenntur fyrir
hlaupinu,“ segir Sif að lokum.
Til styrktar krabbameinssjúkum
börnum
Olga Færseth hleypur 10 kílómetra til
styrktar krabbameinssjúkum börnum
en í júní fengu hún og fjölskylda
hennar þær fréttir að tveggja ára
dóttir þeirra, Kolfinna Rán, væri
með krabbamein. Fréttirnar voru
fjölskyldunni að vonum afar erfiðar
en fimm dögum síðar fór hún í
lyfjameðferð.
Við tekur 6 mánaða meðferðartími
og því ljóst að komandi mánuðir verði
þeir erfiðustu sem fjölskyldan hefur
upplifað en auk Kolfinnu eiga Olga og
kona hennar tvö önnur börn.
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna kynnti starfsemi sína fyrir fjöl-
skyldunni og þann stuðning sem þær
gætu fengið hjá þeim. Þeim var und-
ir eins ljóst að þær myndu leita mik-
ið til félagsins og vilja því leggja sitt af
mörkum til þess.
Olga hefur safnað 241.500 krón-
um.
Hleypur með hjálp vinkvennanna
Ósk Jóhannesdóttir ætlar að hlaupa
10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþon-
inu og hyggst safna 250.000 fyrir Hr-
inginn, en hún hneig niður í fót-
boltaleik í nóvember 2013 og greindist
í kjölfarið með hjartaóreglu. Við tóku
erfiðir tímar, mikil óvissa og margar
heimsóknir á Barnaspítala Hringsins
og í nóvember 2014 fór Ósk í aðgerð
til Boston en síðar kom í ljós að hún
þyrfti að fara í enn aðra til, sem gerð
verður hérlendis í haust. Ósk hefur
verið á kafi í íþróttum en henni hef-
ur verið ómögulegt að stunda þær af
fullum krafti síðan hún greindist með
hjartaóreglu. Með hjálp vinkvenna
sinna ætlar hún að ráðast í hið krefj-
andi verkefni og hlaupa í maraþon-
inu.
Þegar hafa safnast 160.000 krónur.
Fyrir pabba
Ólöf Jóna Ævarsdóttir hefur að mark-
miði að safna 150.000 krónum fyrir
MND-félagið á Íslandi en faðir henn-
ar greindist með MND-sjúkdóm-
inn fyrir nokkru síðan. Hún ætlar að
hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkur-
maraþoni Íslandsbanka.
„Pabbi minn greindist með MND í
maí í fyrra en það er taugahrörnunar-
sjúkdómur. Allir vöðvar líkamans
lamast,“ segir Ólöf.
„Hann er með verstu útgáfuna
af þessu þannig að þetta hefur verið
fljótt að gerast. Það er misjafnt hvern-
ig það er, sumir lifa með þessu í 10–
15 ár.“
Ólöf er ófrísk og þegar hún mun
hlaupa maraþonið verður hún kom-
in 20 vikur á leið. „Ég er bara spennt
Birna Guðmundsdóttir
birna@dv.is
Stefán Jakobsson Söngvari Dimmu
hleypur fyrir gigtveik börn.
Birgir Örn Breiðfjörð Hleypur til styrktar
Geðhjálp.