Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Síða 14
Vikublað 5.–6. ágúst 2015 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 14 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Samþykkti lög sem hann segir lýðskrum Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fór mikinn í grein sem birtist í Morgunblað­ inu fyrir helgi þar sem hann sagði meðal annars skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarinnar lýðskrum og sömuleiðis nýlega samþykkt lög um stöðugleikaskatt á fjármála­ fyrirtæki í slitameðferð. Telur Vil­ hjálmur að vandinn við stöðug­ leikaskattinn – 39% skattur á eignir slitabúa takist þeim ekki að ljúka nauðasamningum fyrir árs­ lok – sé að hann er ekki almennur og kunni því að vera andstæður stjórnarskrá. Gagnrýni Vilhjálms á stöðug­ leikaskattinn vekur vægast sagt furðu þegar litið er til þess hvaða þingmenn samþykktu frumvarp­ ið þann 3. júlí síðastliðinn. Að undanskildum einum þingmanni Pírata, sem kaus að sitja hjá, var frumvarp fjármálaráðherra sam­ þykkt samhljóða með 55 atkvæð­ um. Í þeim hópi var Vilhjálmur Bjarnason. Vík milli vina Margir hafa undr­ ast skeytasendingar millum Ólafs Stephensen, fram­ kvæmdastjóra Félags atvinnurek­ enda, og Ara Edwald, nýráðsins forstjóra Mjólkursamsölunnar, á opinberum vettvangi síðustu daga. Hér hafa tekist á aldavinir sem hafa unnið oft saman, til dæmis á vettvangi Samtaka atvinnulífsins, Sjálfstæðisflokksins og innan fjöl­ miðlafyrirtækisins. Ýmsir hafa velt fyrir sér hvort eitthvað annað og meira liggi að baki. Þú ætlar alltaf að vinna Þórunn Elva Sveinsdóttir, sem stal og eyddi 26 milljónum í netpóker. - DV Í sland ákvað að styðja viðskipta­ þvinganir Vesturveldanna gegn Rússlandi vegna hins ógeðfellda stríðsreksturs Rússa í Úkraínu. Þegar svo stór ákvörðun er tekin hlýt­ ur að vera ljóst að hún getur haft af­ leiðingar og þær miður heppilegar. Íslensk stjórnvöld geta ekki verið svo einföld að þau hafi ekki gert sér grein fyrir því. Það er alkunna að rússnesk stjórnvöld eru ekki þau umburðar­ lyndustu í heimi og Pútín forseti er sannarlega enginn Nelson Mandela. Þegar þetta er haft í huga má kannski furðu sæta að Rússar hafi ekki sam­ stundis sett viðskiptabann á Ísland eftir hina djörfu ákvörðun. Það gerðu þeir ekki heldur sýndu af sér óvænta gæsku því Íslendingar eru í hópi sjö þjóða sem undanþegnar eru inn­ flutningsbanni sem Rússar settu á matvæli frá Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og fleiri löndum. Einhverjir hafa haft orð á því að góð samskipti Pútíns Rússlandsforseta og Ólafs Ragnars Grímssonar Íslands­ forseta eigi sinn þátt í því að Rússar hafi ekki beitt sér gegn Íslandi. Sumir myndu kannski segja að þarna sýndi það sig að stundum borgaði sig að hjala við einræðisherra. En skjótt skipast veður í lofti og borist hafa boð frá Kreml þess efnis að vel komi til greina að beita Ísland viðskiptaþvingunum vegna stuðn­ ingsins við aðgerðir Evrópusam­ bandsins. Þessi hótun Rússa ætti alls ekki að koma á óvart, en um leið og fréttir af henni bárust hóf grátkór á Íslandi upp raust sína. Þar var þing­ maður Sjálfstæðisflokksins, Ásmund­ ur Friðriksson, forsöngvari. Með­ al þeirra sem hafa tekið hressilega undir hinn dramatíska söng eru hinn landskunni fjandmaður Evrópusam­ bandsins, Jón Bjarnason, og forsvars­ menn stórútgerðarinnar sem eru orðnir ansi vanir því að græða og sjá fram á mikið tjón standi Íslendingar við viðskiptaþvinganirnar. Það er nokkuð síðan Ísland ákvað að styðja viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi. Nú, ári seinna, rísa upp einstaklingar sem vilja að ákvörðun­ in verði dregin til baka vegna þess að viðskiptahagsmunir eru í húfi. Það er svosem stefna út af fyrir sig að vilja einungis styðja aðgerðir sem hægt er að græða á. En það er lítill sómi að því fyrir Íslendinga að segja sig úr bandalagi við siðaðar þjóðir vegna þess að rússneski björninn hótar að sýna krumlurnar. Það er einkennilegt að þingmaður Sjálfstæðisflokksins skuli vilja brotthvarf frá þeirri stefnu sem flokkur hans hefur ætíð fylgt og snýst um vestræna samvinnu. Stjórnvöld eiga að standa í lapp­ irnar en ekki gera sig að athlægi með því að hverfa frá ákvörðun sem all­ ar helstu vinaþjóðir Íslendinga taka þátt í. Undirlægjuháttur gagnvart hótunum Rússa væri þjóðinni ekki til sóma. n Hjalað við einræðisherra REGAL hunda- og kattafóður - góð næring fyrir dýrin þín Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is Inniheldur EKKI • Hveiti, soja eða maís • Aukaefni • Erfðabreytt matvæli • Sykur eða mjólkurafurðir N ú er líklega ekki á okkar nýsiðgæðistímum lengur sungið hið áður vinsæla lag: Komir þú til Vestmanna­ eyja, þar á kletti situr meyja. Eftir hverju er hún að bíða? Allir vita hún lætur ... búmsara­bassa ... Eftir hið svokallaða hrun banka, hamingju, peninga og bjart­ sýni hér á landi hafa komið mikl­ ir hreinsunartímar hvað varðar sið­ gæði. Í þeirri viðleitni er ekki komið að tómum kofunum. Svo virðist sem Ísland í sinni réttu fortíðarmynd sé að koma út úr kofaskápnum með ljós og framtak þeirra sem eru sjálf­ valdir handhafar birtu og hirðusem­ in í heimi andans og líkamans. Oft vill samt vera hjá postulunum svip­ að og hendir í lögmálinu um eðli óbrotna mannsins, að siðsemi vek­ ur siðleysi og höft vekja hömluleysi. Þótt þessar mótsagnir blasi hvar­ vetna við í sögu heimsins og mann­ kynsins virðast lítilmenni valdsins aldrei geta skilið það. Þeir þjösnast áfram með boðorðin fyrir aðra en brjóta þau sjálfir á bak við tjöldin. Eins mun þetta verða í atlögunni gegn Vestmannaeyjum og gjálífinu í dalnum á þjóðhátíð. Það virðist ekki nægja þær forvarnir, að femínista­ strákar og ámóta stúlkur fari í upp­ ljómun sinni um ferðaskrifstofur með spjöld sem á er letrað: Segið nei. Nei merkir nei. Þetta varnarlið gegn sinnuleysinu virðist ekki vita að í íslensku hugarfari er nei ekki til. Í sálarlífi fyrrum nýlendubúans merkir neitun í mesta lagi: „Ég hef ekki hugmynd um það.“ Siðfræðin og heimspekin geta ekki verið mót­ aðri í mórauða kollinum. Á siðgæði­ speki hugmyndaleysisins hefur líf okkar byggst um aldir og líklega mun ekkert breytast þótt fram á sviðið komi ungur mannauður sem hefur menntað sig í fræðunum við Ríkisháskólann í Idaho í Bandaríkj­ unum þar sem siðgæðið er númer eitt tvö og þrjú og nei sem merkir nei haft í hávegum. Að vísu er til ráð úr íslenskri bændamenningu sem mundi ef­ laust duga jafnt í Vestmannaeyj­ um og áður á bújörðum ef bændur vildu ekki hafa óreglu í fjárhúsum og hindra að rollur og hrútar færu út fyrir hinn afmarkaða fengi­ tíma. Ef hætta var á ferðurm saum­ uðu bændur fyrir rollurnar en ekki hrútana. Takið eftir því ofbeldi í kynjafræðum! Sem barn var maður látinn sníða mátulega bót úr ónýtum strigapoka og mæla hana við aftur­ endann á rollunni. Bóndinn saum­ aði sjálfur fyrir. Kæra fólk, í hvaða skóla sem þið lærið, þið hefðuð orðið fróðari um hvatalífið og ósigur karlrembunn­ ar við að sjá upplitið á hrútunum þegar þeir kumruðu hátt og hopp­ uðu upp á rollurnar en ráku hann beinharðan í strigapokabótina. Af þessu hafði bóndinn illgirnisislega íslenska ánægju. Hann hrelldi roll­ una. Takið eftir því, femínistar! Síð­ an var bóndinn glaður og reifur við stelpurnar á bænum, kallaði þær kindurnar sínar og kom kumrandi við gimbrina á þeim. Annað ráð er það að konur úr Konukoti dreifi skírlífisbuxum til stúlkna þegar þær stíga um borð í Herjólf. Það væri síst verra fyrir þær að ganga í þannig buxum en Halldór Laxness, að sögn, þegar hann var á þjóðhátíðaraldri álíka kaþólskur og meyjar eru fráhverfar í Herjólfsdal. Buxnahaldið yrði varla til þess að þær fengju Nóbelsverðlaun í hrein­ lífi, en erfitt að spá um það. Allt kem­ ur í ljós hjá lögreglunni og á neyðar­ móttökunni við heimkomuna úr hinum hreðjaglaða Herjólfsdal. n Komir þú til Vestmannaeyja Guðbergur Bergsson rithöfundur Kjallari „Annað ráð er það að konur úr Konu- koti dreifi skírlífisbux- um til stúlkna þegar þær stíga um borð í Herjólf. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Þessi hótun Rússa ætti alls ekki að koma á óvart, en um leið og fréttir af henni bárust hóf grátkór á Íslandi upp raust sína. Þjóð sem þjáist af sameiginlegri geðhrifapersónuleikaröskun Anna Andersen, um tilhneigingu íslenskra fjölmiðla til að segja frá umfjöllun erlendra fjölmiðla um Ísland. - DV Hjá Fangelsismálastofnun eru tvær stöður sálfræðinga Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, í pistli sínum um takmörkuð úrræði kerfisins fyrir nauðgara. - Stundin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.