Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Blaðsíða 17
Vikublað 5.–6. ágúst 2015 Lífsstíll 17 Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Við elskum umslög - en prentum allt mögulegt • Nafnspjöld • Reikninga • Veggspjöld • Bréfsefni • Einblöðunga • Borðstanda • Bæklinga • Markpóst • Ársskýrslur Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is Flippaðir Facebook-hópar F acebook, eða andlitsbókin eins og gárungarnir segja stundum, er löngu orðin hluti okkar dag- lega lífs. Íslendingar eru þar í hópi 1.44 milljarða jarðarbúa sem tengjast gegnum samfélagsvef- inn. Hann er líka ansi stór vinnu- staður því hjá Facebook vinna yfir tíu þúsund manns. Í dag eru yfir 620 milljónir hópa á Facebook. Hópar eru notaðir í ýmsum tilgangi – fólk getur sameinast um áhugamál, baráttumál, átrúnaðargoð eða hvað sem er. Hér eru nokkrir athyglisverðir íslenskir hópar á Facebook. n Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is n Pulsur, mangó og Ingvar E. Sama myndin af Ingvari E. Sigurðs- syni á hverjum degi Þessi hópur er stórkostlega flippaður, en nafn hans gefur skýrt til kynna hvað málið snýst um. Þegar þetta er ritað eru 4.911 meðlimir í hópnum, sem bíða spenntir daglega eftir að geta „lækað“ hina ljómandi fínu mynd af Ingvari sem stjórnendur birta ítrekað. Myndin, sem er svart-hvít og sýnir magnaðan karakter þessa ástsæla leikara, fær hér um bil 200 „læk“ í hvert sinn sem hún birtist. Bull Þessi hópur er enn sem komið er lítill, en markmiðið er skýrt, þar birta meðlimir færslur sem eru hreinræktað bull. Páll Ivan frá Eiðum er stofnandi hópsins en samkvæmt honum er lítið hægt að segja af viti um hópinn. „Ogije00 j lgööö öö kfg-naðn˜ √̈å∂ πƒ[[™]lfk llljge99g æjg f9e8jga nmnmvmv nfngi040 mgfðjhððð, er líklega það gáfulegasta sem hægt er að segja um hann.“ Landssamtök aðdáenda Ránar Ísberg Ástarsagnahöfundurinn og karlhatarinn Rán Ísberg er einn eftirminnilegasti karakterinn úr gömlu Fóstbræðraþáttunum. Helga Braga lék þessa snarbiluðu og baneitruðu konu sem meðal annars gaf út bókina 101 leið til að fara illa með karlmenn. Á síðu hópsins er hægt að nálgast dýrmætar heimildir, en auðvitað ætti heildarsafn Fóstbræðra að vera til á hverju menn- ingarheimili. Frægir fá sér pulsu Það er löngu orðið markmið margra frægra Íslendinga að komast á þessa síðu. Ákveðinn virðingarsess fylgir því að verða viðfangsefni Árna Sveinssonar sem tekur myndir út um gluggann sem gnæfir yfir Bæjarins bestu í Tryggvagötu. „Við erum með aðstöðu í húsinu fyrir aftan pulsuvagn- inn og það lá beint við að byrja með þennan fjölmiðil. Þetta er létt og skemmtileg leið til að skemmta samlöndum okkar í amstri hversdagsins. Sá frægasti hingað til er eflaust Hermann Hreiðarsson.“ Vegna vinsælda síðunnar hefur Árni oft lent í því að frægir eða hálffrægir krefji hann um mynd. „Ég hef þá yfirleitt svarað því að það sé ekki hægt að panta mynd, sérstaklega ef fólk er ekki nógu frægt. Ég fæ líka reglulega símtöl þar sem fólk lætur mig vita af frægum sem eru að fá sér pulsu, þá er ég kannski bara heima sjálfur að sjóða pulsur. Það er mikilvægt að vera með síðuna virka en ekki tómar endurbirtingar eins og Stöð 2 árið 1989. Þetta kom bersýnilega í ljós í sumar- fríinu okkar núna – þegar við drifum okkur loksins á skrifstofuna og birtum nokkrar nýjar myndir braust út mikill fögnuður hjá meðlimum síðunnar.“ Mango/Avocado Sælkerar hafa víst ekki farið varhluta af því að einstaklega erfitt getur verið að finna rétt þroskaða mangóávexti og lárperur í verslun- um. Í hópnum deila meðlimir upplýsingum um það hvar á landinu sé hægt að kaupa góð og rétt þroskuð mangó og avókadó. Helga Þórey Jónsdóttir er stofnandi hópsins, var orðin leið á því að þurfa að skipuleggja mangó- og avókadóát með margra daga fyrir- vara. „Stundum vill kona fá guacamole samdæg- urs,“ segir hún, en í hópnum sem Helga stofnaði eru núna 472 meðlimir. S01E01 Í þessum hópi eru sjónvarpsþættir ræddir líkt og um æðri bókmenntir væri að ræða. Heiti hópsins vísar til merkinga sem notaðar eru fyrir sjón- varpsþætti á netinu, S01E01 = sería 1, þáttur 1. Þarna er að finna alls konar fróðleik frá helstu sjónvarpsnörd- um landsins, meðmæli með þáttum, umræður, skoðanaskipti og einstaka rifrildi. Rúmlega tvö þúsund Íslendingar eru í hópnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.