Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2015, Side 20
Vikublað 5.–6. ágúst 201520 Menning
Úr listheiminum
Boris Johnson, borgarstjóri Lundúnaborgar og þing-maður, hefur landað feitum
samningi við bóka-
forlagið Hodd-
er. Bók John-
sons um William
Shakespeare mun
koma út á næsta
ári í tilefni 400 ára
dánardægurs leikrita-
höfundarins. Johnson er ekki
nýgræðingur á ritvellinum því
síðasta bók hans The Churchill
Factor, þar sem umfjöllunarefnið
var Winston Churchill, seldist
afar vel og fékk góða dóma. Einn
gagnrýnandi sagði hana vera
skyldulesningu.
Nú stendur yfir í Bandaríkjun-um réttarhald þar sem deilt er um höfundarrétt afmæl-
issöngsins: „Happy
Birthday to You,“
sem var upphaf-
lega saminn af
tveimur systr-
um seint á 19. öld
og hét þá „Good
morning to all“. Út-
gáfurisinn Warner/Chappell hef-
ur talið sig eiga réttinn og rukk-
að samviskulega um árabil fyrir
hverja einustu notkun á laginu
– upphæð sem talin er nema
tveimur milljónum dollara á
ári. Nú segja lögfræðingar kvik-
myndagerðarkonunnar Jennifer
Nelson, sem réðst í málsóknina,
að samkvæmt nýfundnum gögn-
um frá 1927 sannist að lagið hafi
aldrei verið höfundarréttarvarið.
Í síðustu viku fékk kínverski lista-maðurinn Ai Weiwei vegabréf-ið sitt aftur. Passinn var
tekinn af Weiwei í
apríl 2011 í rassíu
kínverskra stjórn-
valda gegn pólitísk-
um aðgerðasinn-
um og óþægilegum
röddum í landinu. Á
hverjum morgni á meðan ferða-
frelsi hans var skert setti hann
nýjan blómvönd í hjólakörfuna
sína fyrir utan vinnustofuna sína.
Á einkasýningu listamannsins
sem fer nú fram í Peking, þeirri
fyrstu sem er leyfð í borginni,
sýnir hann slíka blómakörfu
úr postulíni – talandi um lág-
stemmda gagnrýni.
Í leit að illum meistara
Skósveinarnir er ágætis skemmtun fyrir börnin
U
pphaf Minions er stór-
skemmtilegt. Skósveinarn-
ir detta um hver annan í
leit sinni að illmennum til
að votta hollustu sína, dálítið eins
og kjósendur Sjálfstæðisflokksins.
Leitin færir okkur í gegnum ver-
aldarsöguna, frá einfrumungum yfir
í risaeðlur og loks að innrás Napóle-
ons í Rússland. En þá fer að hægjast
um og nær myndin ekki aftur sömu
hæðum.
Við erum nú stödd á besta hugs-
anlega stað og tíma til að vera uppi
á sé kvikmyndunum trúað, New
York og London í „Swingin Sixties“.
Sveinarnir ganga framhjá plakati af
Nixon og maður fær vatn í munn-
inn, hér stefnir í dásamlega satíru á
Watergate og Víetnam með klaufa-
bárðunum gulu í aðalhlutverki. En
illu heilli halda þeir áfram göngu
sinni.
Fyrr en varir eru þeir komnir til
London þar sem Don Draper sjálfur
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Minions/
Skósveinarnir
IMDb 6,7 RottenTomatoes 64% Metacritic 56
Leikstjórar: Kyle Balda og Pierre Coffin
Handrit: Brian Lynch
Raddir: Sandra Bullock, Jon Hamm og
Michael Keaton
91 mínúta
n Bragi Árnason leikur í breskum spennutrylli n Flytur einleik á Suðureyri
B
ragi Árnason býr í London
þar sem hann fæst við ýmis
spennandi verkefni. Hann
er leikari, uppistandari og
söngvari. Hann leikur að-
alhlutverkið í breskum spennutrylli
sem frumsýndur verður á næsta ári.
Bragi er í heimsókn hér á landi og
sýnir einleik sinn, Barry and his Guit-
ar, á einleikjahátíðinni Act Alone á
Suðureyri í kvöld, 5. ágúst. Verkið var
á sínum tíma frumsýnt í London. Eft-
ir einleikjahátíðina á Suðureyri held-
ur Bragi til Skotlands en þar sýnir
hann verkið á Edinborgarhátíðinni
og áætlað er að sýningar verði nítján.
Barry and his Guitar er stutt verk,
tæplega sextíu mínútur. Átta lög eru
í sýningunni, öll eftir Braga.
Spurður um efni verksins segir
Bragi: „Upphaflega hugmyndin var
að búa til verk um sögu popptónlistar
en svo áttaði ég mig á því að það verk
yrði mjög langt, auk þess sem höf-
undarréttarmál yrðu erfið. Ég ákvað
þá að búa til litla ævintýralega gam-
ansögu, lauslega byggða á reynslu
minni í London. Verkið fjallar um
ungan mann sem er í hlutastarfi á
kaffihúsi í London en dreymir um að
verða poppstjarna. Hann kemst fyr-
ir slysni upp á kant við glæpagengi.“
Bragi segir sýninguna vera í stöðugri
þróun. „Góðir vinir hafa verið ósparir
við að gefa mér ráðleggingar og sýn-
ingin tekur því stöðugum breyting-
um. Andy James og Seth Jones, sem
reka Moors-leikhúsbarinn í Norð-
ur-London, hafa hjálpað mér einna
mest við að leikstýra og þróa hana.“
Nokkurt brölt að vera listamaður
Bragi lærði leiklist í KADA (Kogan
Academy of Dramatic Art) í London
og útskrifaðist þaðan sem leikari
árið 2010. Jafnframt listsköpun hef-
ur hann unnið önnur störf. „Það er
nokkurt brölt að vera listamaður í
London og ég hef jafnhliða listsköp-
un unnið aðra vinnu,“ segir hann. „Ég
hef til dæmis unnið við afgreiðslu-
störf og starfað í sunnudagaskólan-
um í Íslendingakirkjunni í London.
Ég hef líka fengist við kennslustörf
og starfað sem stuðningsfulltrúi og
hef þá umsjón með börnum og ung-
lingum, þar á meðal eru einhverf-
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bragi Árnason Í
Bretlandi hefur hann
komið fram í kvikmynd-
um, leikið á sviði og í
sjónvarpi.
MyND SIGTRyGGuR ARI
Í hlutverki
morðingja