Fréttatíminn - 04.03.2016, Síða 10
Saga Sigurðar Hólm
Sigurðarsonar, sem sögð var í
Fréttatímanum fyrir tveimur
vikum, vakti mikla athygli
en hann varð fyrir skelfilegu
ofbeldi í bernsku og náði
aldrei að fóta sig í lífinu.
Hann dvaldi á stofnunum
mestallt sitt líf, fyrst á barna-
heimili og síðan í fangelsi
í samtals 25 ár. Dóms er að
vænta yfir tveimur mönnum
í sakamáli sem var höfðað
eftir að Sigurður Hólm lést
í klefa sínum við grunsam-
legar aðstæður í fangelsinu
á Litla-Hrauni árið 2012, en
hann var þá 49 ára.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
tka@frettatiminn.is
Faðir Sigurðar Hólm Sigurðarsonar
heitir Magnús Magnússon. Hann
var 19 ára og vann við að byggja
lögreglustöðina við Hverfisgötu
árið 1963. Þegar hann var á leið
heim af skemmtistað, kvöld eitt
um helgi, hitti hann konu sem var
að stíga úr rútu, ásamt frænku
sinni, fyrir framan bæjaríbúðirnar
í Bjarnaborg.
„Við fórum að tala saman og hún
bauð mér inn í kaffi. Hún var utan
af landi og talsvert eldri en ég, en
eitt leiddi af öðru og það fór þannig
að ég eyddi nóttinni þarna,“ segir
Magnús í samtali við Fréttatímann.
Magnús segist ekki hafa vitað
fyrr en eftir þetta að hún var gift
og maðurinn hennar var í fangels-
inu á Litla-Hrauni. „Það var þekkt-
ur drykkju- og ofbeldismaður, mér
stóð náttúrulega ekki á sama.“
Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein
karla, en um 200 greinast að meðaltali ár hvert.
Meðalaldur við greiningu er um 70 ár og meinið
er sjaldgæft hjá körlum undir fimmtugu.
Upplýsingar um einkenni eru á mottumars.is eða
hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins
í síma 800 4040.
ERT ÞÚ AÐ FARAST
ÚR KARLMENNSKU?
Taktu virkan þátt í baráttunni og
vertu velunnari. Hringdu í síma:
eða skráðu þig á mottumars.is
571 5111
LÆRÐU AÐ ÞEKKJA EINKENNIN. ÞAÐ ER EKKERT MÁL.
#mottumars #karlmennska
„Hann þurfti að þola
ákaflega mikla grimmd“
„Ég hef leitað uppi leiðið hans og sett þar engla. það er mín leið til að biðja hann
fyrirgefningar að hafa ekki verið til staðar fyrir hann,“ segir magnús magnússon,
faðir sigurðar hólm, sem vissi ekki af tilvist sonar síns fyrr en mörgum árum eftir að
hann fæddist, enda var hann kenndur öðrum manni við fæðingu.“
Mynd | Hari Magnús Magnússon, faðir Sigurðar Hólm, var ekki ókunn-
ugur fátæktarhverfum enda hálfbróðir Sigurðar A. Magnús-
sonar rithöfundar og að mestu alinn upp í Herskálakampi.
Mynd | Bjarnaborg 1984. Sigfús Halldórsson | Listasafn Reykjavíkur.
10 | fréttatíminn | helgin 4. mars–6. mars 2016