Fréttatíminn - 04.03.2016, Blaðsíða 42
Mynd | Rut
Úr stefnu Reykja-
víkurborgar í þjón-
ustu við fatlað fólk
á heimilum sínum
2013-2024
„Fatlað fólk hafi tækifæri til
þess að velja sér búsetustað,
hvar og með hverjum það býr, til
jafns við aðra, og að því sé ekki
gert að búa þar sem tiltekið bú-
setuform ríkir.“
Þrátt fyrir að hafa tapað
máli við Reykjavíkurborg
fyrir héraðsdómi berst Sal-
björg Atladóttir og fjölskylda
hennar fyrir því að hún fái að
búa heima hjá sér. Málið er á
leið fyrir hæstarétt.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Salbjörg Atladóttir er fötluð og þarf
þjónustu allan sólarhringinn. Aðra
hverja viku býr hún heima hjá sér,
í íbúð í húsi foreldra sinna, en hina
á skammtímavistun fyrir mikið
fötluð börn. Þar er hún vistuð með
börnum sem eru miklu yngri en
hún. Salbjörg verður tvítug í næsta
mánuði og er fullorðin og á því rétt
á að búa heima hjá sér, rétt eins
og aðrir fullorðnir einstaklingar.
Samkvæmt öllum sem þekkja til
Salbjargar hentar fyrirkomulagið
henni afar illa.
„Allir þeir sem vinna með Sal-
björgu, læknar sem starfsmenn
borgarinnar, eru sammála um að
það henti henni afar illa að búa á
tveimur stöðum,“ segja Katrín Frið-
riksdóttir og Atli Lýðsson, foreldrar
Salbjargar. Salbjörg er einhverf og
hefur það rask sem fylgir því að
flytja í hverri viku mjög slæm áhrif
á líðan hennar. „Bæði atferlisráð-
gjafi og barnageðlæknir bentu á
fyrir rétti að ef Salbjörg fengi að
vera heima liði henni betur og þá
yrði með tímanum einfaldara að
þjónusta hana,“ segir Katrín.
Þau áhrif sem rótið hefur á Sal-
björgu eru meðal annars kvíði og
streita, sem birtist í því að hún sef-
ur illa, er óörugg og líður ekki vel.
Töpuðu máli við Reykjavíkurborg
Salbjörg hefur verið með samning
við Reykjavíkurborg síðan 2013
um að hún fái beingreiðslur til að
fá þjónustu heim aðra hverja viku,
en búi á skammtímavistun hina
vikuna. Þegar Salbjörg varð 18 ára
reyndu foreldrar hennar að færa þá
peninga sem lagðir eru í þjónustu
við hana að heiman, í að fá þjón-
ustu fyrir hana heim.
Samkvæmt verklagsreglum
Reykjavíkurborgar er ekki hægt að
breyta þessu fyrirkomulagi og eftir
ítrekaðar tilraunir foreldranna til
að finna lausn til að Salbjörg fengi
að vera heima sáu þau ekki annað
í stöðunni en að stefna borginni
vegna málsins.
Þrátt fyrir að allir sem vitni báru
í málinu væru sammála um að
verra væri fyrir heilsu og líðan Sal-
bjargar að þurfa að flytja í hverri
viku, tapaði hún málinu. Í dómn-
um segir að Reykjavíkurborg hafi
farið að lögum og dómari geti ekki
sagt borginni til um hvernig þjón-
ustu við fatlaða sé háttað.
Vellíðan og vanlíðan Salbjargar
jafndýr
„Þetta er í raun ekki spurning
um peninga, heldur hvernig þeir
peningar sem fara í þjónustu við
Salbjörgu eru notaðir. Það kostar
Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.isAPOTEK KITCHEN+BAR
2. TIL 6. MARS
APOTEKIÐ
BÝÐUR
SEAN
REMBOLD
VELKOMINN
Sean er búinn að vera í bransanum í 20 ár. Hann hefur starfað
sem yfirmatreiðslumaður á nokkrum af áhugaverðustu veitinga-
húsum Brooklyn m.a. Diner, Marlow & Sons og Reynard.
Einstök túlkun hans á klassískum bandarískum réttum með
„local“ og árstíðarbundnum hráefnum, hefur ekki aðeins skilað
Sean tveimur tilnefningum til James Beard verðlaunanna
sem besti matreiðslumaður New York, heldur líka komið
Williamsburg á kortið sem áfangastað sælkera.
SEX RÉTTA
FOOD&FUN VEISLA
AÐ HÆTTI SEAN
RÉTTUR 1
REYKT BLEIKJA með sýrðu lauk-kremi, “calcot” lauk
og piparrót
RÉTTUR 2
SMÁLÚÐA, bláskel, smjörbaunir og grænar jurtir
RÉTTUR 3
ANDABRINGA með bökuðu sellerí og fennel-eplapurée
RÉTTUR 4
LYNGHÆNA með „bulgur“, reyktum möndlum og jógúrt
RÉTTUR 5
LAMBAKÓRÓNA með jarðskokka-purée, brúnuðum lauk
og sýrðum sveppum
EFTIRRÉTTUR
OSTAKAKA með mangó og ástaraldin, súkkulaðisósa,
karamellað poppkorn, saltkaramella, marengs
8.500 kr.
Borðapantanir í síma 551 0011
Þegar maður
er búinn að sitja í
réttarsal og hlusta á
alla sem vinna með
barninu sínu segja
að það séu slæm
lífsskilyrði fyrir það
að búa á tveimur
stöðum, getur
maður ekki bara
hætt að berjast fyrir
að það fái að búa á
einum stað.
Salbjörg fær ekki að
búa heima hjá sér
álíka mikið að láta henni líða illa
og myndi kosta að láta henni líða
vel. Þess vegna skiljum við ekki
af hverju ekki er hægt að breyta
þessum reglum,“ segir Atli.
Svo virðist sem foreldrarnir
gangi á vegg reglugerða hjá ráða-
mönnum borgarinnar. Allir sem
vinni með Salbjörgu frá degi til
dags sjái kostina við að breyta
þessum verklagsreglum borgarinn-
ar. Samt gangi ráðamenn aldrei í að
breyta þeim.
„Það er dapurlegt að borgin virð-
ist ekki vilja taka þátt í þróun úr-
ræða fyrir fatlaða. Það virðist engu
skipta hver situr í stjórn og hversu
þeir virðast vera með hjartað á
réttum stað, samt breytist ekkert í
þessum málum,“ segir Atli.
En ef dómari getur ekki dæmt
borgina til að breyta verklags-
reglum sínum, hver getur það?
„Vonandi hæstiréttur,“ svarar
Atli, og Katrín bætir við: „Þegar
maður er búinn að sitja í réttarsal
og hlusta á alla sem vinna með
barninu sínu segja að það séu
slæm lífsskilyrði fyrir það að búa
á tveimur stöðum, getur maður
ekki bara hætt að berjast fyrir að
hún búi á einum stað. Við sömdum
þessar reglur, við hljótum að geta
breytt þeim.“
Salbjörg í íbúð sinni í Breiðholtinu
þar sem hún vill fá að búa.
Katrín Friðriksdóttir og Atli Lýðsson, foreldrar Salbjargar, segja það dapurlegt
að borgin virðist ekki vilja taka þátt í þróun úrræða fyrir fatlaða.
Mynd | Rut
42 | fréttatíminn | Helgin 4. mars–6. mars 2016