Fréttatíminn - 04.03.2016, Qupperneq 58
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
Fyrir ferminguna og önnur
hátíðleg tækifæri
– servíettur, dúkar, yfirdúkar og
kerti í miklu úrvali
24/7
RV.is
Sjáðu allt
úrvalið á
RV.is
Fermingargjafir og
tíðarandinn hafa breyst all
rækilega frá því vasaúr þóttu
besta fermingargjöfin árið
1897.
Áður var nytsemi lykilorðið þegar
kom að fermingargjöfum og áttu
börnin að fá að gjöf nokkuð sem
fylgdi þeim inn í lífið. Fermingar-
gjafir hafa skiljanlega tekið stakka-
skiptum gegnum áratugina í takt við
tíðarandann. Í dag er algengt að börn
fái iPhone, iPad, utanlandsferðir og
glás af aurum í fermingargjöf. Síminn
hefur raunar leyst af hólmi nánast
öll önnur raftæki sem voru vinsælar
fermingargjafir á síðustu öld og
fram á þessa. Skrifborð, hillusam-
stæður og náttborð undir útvarps-
vekjarann voru algengar gjafir en
sjaldgæfara í dag. Börnin læra uppi
í rúmi með tölvuna í kjöltunni og
sofa með símann undir koddanum,
símann sem bæði geymir tónlistina
og sér um vakninguna. Rúmið er
mögulega eina húsgagnið sem haldið
hefur stöðu sinni sem góð og gild
fermingargjöf.
Svo er það hringrásin góða; Luxo
lampinn var vinsæl
fermingargjöf á sjöunda
áratugnum en lampinn
sá hefur gengið í endur-
nýjun lífdaga og gengur
orginallinn kaupum og
sölum fyrir háar upphæð-
ir á nytjamörkuðum og
antíkverslunum. Sama
gildir um tekkhúsgögn
og hansahillur sem fólk
er tilbúið að eyða svo
gott sem aleigunni í dag,
þetta voru fermingar-
gjafir síns tíma.
Það er raunar hægt að fara
alla leið á þarsíðustu öld til þess
að finna heimildir um ferm-
ingargjafir. Í ritinu Ísland voru
vasaúr besta fermingargjöfin
árið 1897. Bækur, Íslendinga-
sögur og sálmabækur komu
sterkar inn og orðabækurnar
síðar sem ennþá eiga upp á
pallborðið að einhverju
leyti.
Svo eru það blessuð kass-
ettutækin, steríógræj-
urnar, plötuspilararnir og
grammófónarnir. En aftur
er það síminn sem hefur
komið í staðinn fyrir stórar
og fyrirferðarmiklar græjur.
Einhvern veginn komst það
í tísku að gefa fermingarbörn-
um bakpoka og svefnpoka
og annan útilegubúnað, það
virðist hafa verið um 1960 sem
öllum fermingarbörnum var
gerður upp áhugi á göngum og
útivist. Næstu áratugina á eftir
fengu svo gott sem öll ferming-
arbörn einhvern útivistarbúnað
að gjöf, burtséð frá því hvort
barnið hefði nokkru sinni sýnt
áhuga á þess lags afþrey-
ingu. Margir
muna jafnvel
eftir djúp-
stæðum ágreiningi
milli fermingar-
systkina um frost-
þol svefnpoka eða
rúmmál bakpoka;
þó að á hvorugt hafi
nokkru sinni reynt.
Árið 1958 var úti-
legubúnaður þó aug-
lýstur fyrir drengi –
ekki stúlkur.
Axlabandakassar
og amatöraalbúm,
prímus og pennar
Svo eru það pennarnir góðu.
Snemma var farið að auglýsa penna
sem fermingargjöf og margir sem
luma jafnvel ennþá á svartri glans-
andi öskju sem inniheldur penna
með gyllingu. Í dag er ólíklegt
að fermingarbörn „neimdroppi“
pennaframleiðendur eftir mann-
dómsvígsluna; hvort fékkstu Parker
eða Eversharp er spurning sem
tæpast heyrist í dag.
58 | fréttatíminn | Helgin 4. mars–6. mars 2016
Fermingar