Morgunblaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Óvissa með undanþágur í verkfalli
Loðnuleitin átti að hefjast í dag HB Grandi vill ekki rugga bátnum Grænlenskt skip er til taks
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Stjórnendur HB Granda hafa ákveðið
að sækja ekki um undanþágu frá
verkfalli sjómanna fyrir áhafnir upp-
sjávarskipanna sem fara áttu í loðnu-
leiðangur fyrir Hafrannsóknastofnun
sem stendur fyrir dyrum. „Okkur
fannst það frekar óþægileg staða í
miðju verkfalli að fara á sjó með
undanþágu. Við viljum ekki rugga
bátnum,“ segir Ingimundur Ingi-
mundarson útgerðarstjóri. „Það hefði
líka verið talsverð fyrirhöfn að græja
skipin fyrir loðnuna og aðeins örfáa
daga á sjó.“
Nefnd sjó-
mannafélaganna
sem afgreiðir
undanþágubeiðnir
vegna verkfallsins
ætlaði að funda í
dag vegna loðnu-
mælinganna sem
farið er í á allra
fyrstu dögum
hvers árs. Fyrst
áttu aflaskip að
fara út og rannsóknarskipin Árni
Friðriksson og Bjarni Sæmundsson
og tvö uppsjávarskip til viðbótar, þeg-
ar einhverjar vísbendingar væru
komnar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er ekki einhugur innan sjón-
mannafélaganna um hvort gefa skuli
undanþágur frá verkfallinu. Sé ein-
hver einn á móti er ólíklegt að heim-
ildin fáist. „Nei, ég get ekkert sagt um
hver niðurstaðan í undanþágunefnd
gæti orðið. Það er allur gangur á því
hvernig svona mál hafa verð af-
greidd,“ segir Hólmgeir Jónsson,
framkvæmdastjóri Sjómannasam-
bands Íslands.
Undanþága er mikilvæg
Þótt loðnuskip HB Granda fari
ekki á sjó er rætt um að fá önnur í
verkefnið. Þá er til taks grænlenska
skipið Polar Amaroq. Áhöfn þess er
ekki í íslenskum stéttarfélögum og
því geta þeir sjómenn siglt sinn sjó
rétt eins og áhöfn rannsóknarskips-
ins, en verkfallið nær ekki til hennar.
Birkir Bárðarson fiskifræðingur
stjórnar loðnuleit Hafrannsókna-
stofnunar. Í janúarleiðangrinum seg-
ir hann venjuna þá að fara djúpt norð-
ur fyrir Vestfirði og svo norður og
austur á bóginn, en loðnan haldi sig
mikið á þeim slóðum í byrjun ársins.
„Við höfum ekki á öðru að byggja nú
en haustmælingu. Samkvæmt henni
var hrygningarstofninn 137 þúsund
tonn en hefði þurft að vera þrisvar til
fjórum sinnum stærri þannig að hægt
væri að gefa út heimildir til veiða. Því
er nauðsynlegt að mæla nú, venju
samkvæmt, hvert ástandið sé. Það er
mikilvægt að undanþága frá verkfall-
inu verði gefin,“ segir Birkir.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Venus Fer ekki til loðnuleitar nú.
„Þeir ákveða sjálfir hvert þeir vilja
fara og verða teknir fram fyrir á bið-
listum,“ sagði Unnur Þormóðsdóttir,
formaður færni- og heilsumatsnefnd-
ar heilbrigðisumdæmis Suðurlands, í
samtali við Morgunblaðið um flutn-
ing íbúa frá hjúkrunarheimilinu
Kumbaravogi.
„Á einhverjum stöðum er mögu-
leiki á að fjölga rýmum vegna hús-
næðispláss. Ég býst við að meirihlut-
inn vilji vera áfram í Árnessýslu og
Rangárvallasýslu,“ sagði Unnur en
helsta aðstaða í nágrenninu er Ás í
Hveragerði, Lundur á Hellu, Heil-
brigðisstofnun Suðurlands og Sól-
vellir á Eyrarbakka.
Heilbrigðisráðherra ákvað fyrir
helgi, í samræmi við tillögu Land-
læknisembættisins, að loka hjúkrun-
arheimilinu Kumbaravogi á Stokks-
eyri. Starfseminni verður hætt að
fullu 31. mars. Íbúarnir sem eru 29
talsins geta valið sér heimili hvar
sem er á landinu en sumir koma frá
eða eiga aðstandendur í öðrum
landshlutum.
Margir voru þegar í bið
Unnur sagði Kumbaravog hafa
hjálpað við fráflæði frá sjúkradeild-
inni með því að útvega biðpláss. Því
yrðu flutningarnir auðveldari en ella.
„Það er fólk á Kumbaravogi í bið-
plássum sem óskaði eftir að fara ann-
að og hefur beðið þess að komast á
önnur heimili, svo að það er ekki eins
og það séu 29 manns sem óskuðu eft-
ir að vera á Kumbaravogi og hvergi
annars staðar og að við séum að fara
að taka það frá þeim.“ tfh@mbl.is
Íbúar á Kumbaravogi verða
settir í forgang á biðlistum
Býst við að meirihlutinn vilji vera áfram á sama svæði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lokun Rekstur Kumbaravogs upp-
fyllti ekki lágmarkskröfur.
Vextir á Íslandi
eru of háir að sögn
Halldórs Benja-
míns Þorbergs-
sonar, fram-
kvæmdastjóra
Samtaka atvinnu-
lífsins, sem tekur
undir orð forsætis-
ráðherra um sama
mál. „Við teljum
að vextir séu of há-
ir. Verðbólguspár Seðlabankans hafa
ofmetið verðbólguna um eina prósentu
og þá má færa rök fyrir að stýrivextir í
dag séu hærri en lagt var upp með
þegar þeir voru settir. Við höfum mið-
að við að þeir séu einu prósentustigi of
háir hið minnsta,“ sagði Halldór í sam-
tali við Morgunblaðið.
Sigurður Ingi Jóhannsson vakti
máls á vaxtastefnu Seðlabankans í
áramótaávarpi sínu og sagði bankann
halda vöxtum of háum hvort sem væri
í kreppu eða uppgangi. Í ávarpinu tal-
aði Sigurður Ingi einnig um að leita
þyrfti nýrra lausna í peningamálum,
t.d. að beita aðhaldi í ríkisrekstri, en
Halldór sagði að núverandi stjórnvöld
hefðu getað gengið harðar fram á síð-
ustu árum. „Fyrir síðustu uppsveiflu
árin 2004 til 2008 var afgangur af ríkis-
reikningi átta til tíu prósent af lands-
framleiðslu. Síðustu fimm ár hefur
hann verið 0,8 til 1,4 prósent. Við verð-
um að sýna meira aðhald í rekstri hins
opinbera.“ tfh@mbl.is
SA telja
stýrivexti
of háa
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Ríkið sýni aðhald
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi tólf Íslendinga heið-
ursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í
gær, nýársdag. Sex konur og sex karlar fengu orðu fyrir störf sín og fram-
lög til fjölda málaflokka, allt frá björgunarstörfum til vísinda og velferð-
armála.
Eftirtaldir voru sæmdir riddarakrossi:
Benóný Ásgrímsson, Björn G. Björnsson, Eiríkur Rögnvaldsson, Gerður
Guðmundsdóttir Bjarklind, Gunnhildur Óskarsdóttir, Kolbrún Halldórs-
dóttir, Peggy Oliver Helgason, Ragnar Kjartansson, Sigríður Sigþórs-
dóttir, Sigurður Pálsson, Þorbjörg Arnórsdóttir og Þór Jakobsson.
Forseti Íslands sæmdi tólf fálkaorðunni á nýársdag
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Viðurkenning fyrir framlag til íslensks samfélags
Birkir
Bárðarson