Morgunblaðið - 02.01.2017, Side 6

Morgunblaðið - 02.01.2017, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017 LIVERPOOL VS SWANSEA 20. janúar í 2 nætur Stutt og hnitmiðuð fótboltaferð á frábæru verði! Allur pakkinn frá kr. 114.900 m/morgunmat Holiday Inn Express Flug, hótel og miði á leikinn m/Beat Loung aðgengi Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Grunnskólunum hafa á síðustu árum verið falin mörg ný verk- efni, jafnhliða breytingum á sam- félaginu. Hugsanlega gefa nið- urstöður könnunar Pisa okkur því vísbendingu um að álagið í skól- unum sé slíkt að þeir ráði ekki að óbreyttu við hlutverk sitt og verk- efni,“ segir Ólafur Loftsson, for- maður Félags grunnskólakennara. „Í dag eru skólarnir án aðgrein- ingar og hóparnir fjölbreyttari en áður. Nemendur eru af ýmsu þjóð- erni og mæltir hver á sínu móð- urmáli, sumir hafa greiningar og aðrir ekki góð tök á námsefninu. Kennarar í dag sinna svo miklu víðtækara hlutverki en bara að fræða nemendur.“ Færni íslenskra nemenda í náttúrufræði, stærðfræði og lestri hefur hrakað mikið á síðustu tíu árum, samkvæmt því sem fram kemur í nýrri könnun Pisa. Færni íslenskra gunnskólanema er nú undir meðaltali í OECD-ríkjunum. Á þessari niðurstöðu er engin ein- hlít skýring, segir Ólafur, sem minnir á að árangur í skólastarfi megi þó meta út frá mörgum kvörðum. Fengið málin í fangið „Á Íslandi eru til dæmis allir nemendur í hverjum árgangi sem taka Pisa-prófin en í öðrum lönd- um nær könnunin kannski aðeins til ákveðinna nemendahópa. Hér á landi hefur jafnframt komið fram gagnrýni á framkvæmd prófanna og efni þeirra, svo þetta er alls ekki klippt og skorið. Hitt verður að taka fram að niðurstöður rann- sókna á undanförnum árum sýna að íslenskum börnum líður vel í skólanum sem er mikilvægt. Það er vel hlúð að allri umgjörð, krakkarnir fá stuðning hvert með sínu móti og við skulum líka muna að þrátt fyrir efnahagshrunið, nið- urskurð og fækkun starfsfólks gekk skólastarf að mestu áfalla- laust, segir Ólafur og heldur áfram: „Kjarni málsins er samt þessi að margt af því sem skólarnir sinna í dag má flokka til dæmis sem félags- eða heilbrigðismál og að sinna þeim hefur einfaldlega bæst við önnur störf kennara. Hvort þetta eigi að vera svona þarf nú að kryfja til mergjar eins og samið var um að gera þegar kjarasamningar kennara við sveit- arfélögin voru undirritaðir í lok nóvember. Oft er horft til þess góða árangurs sem nemendur í Finnlandi sýna skv. Pisa og raun- ar er margt í skólastarfi þar í landi til fyrirmyndar. Þar hafa verið gerðar margar góðar breyt- ingar en þá alfarið á forsendum skólafólks og að frumkvæði þess. Hér hafa grunnskólarnir hins veg- ar fengið, án mikillar umræðu, allskonar mál í fangið og þurft að leysa, svo sem aðgerðir vegna styttingar námstíma til stúdents- prófs, skóla án aðgreiningar, inn- leiðingu á nýrri aðalnámskrá, læs- isátak og fleira.“ Gleymum ekki bráðgerum Lengi býr að fyrstu gerð og það getur komið niður á árangri nemenda ef kennarar geta ekki sinnt hverjum og einum eins og vera skyldi. „Margir nemendur sem eiga í námserfiðleikum geta náð stórstígum framförum ef þeim eru skapaðar réttar að- stæður til þess. Vandinn er oft sá að kennararnir komast ekki yfir að sinna öllum þeim aðkallandi verkefnum sem þeim er ætlað,“ segir Ólafur og heldur áfram: „Svo má ekki gleyma bráð- gerum nemendum sem eiga líka rétt á kennslu við hæfi. Fyrir suma krakka felst lítil áskorun í almennu námsefni, þeir eru jafn- vel langt á undan jafnöldrum í getu. Kennararnir þurfa ekkert síður að fá tækifæri til að mæta þessum nemendum en öðrum. Bráðgerir nemendur þjást stund- um af skólaleiða og þurfa örvun til að nýta hæfileika sína. Og við þekkjum mörg að ef ráterinn á heimilinu bilar, fjarstýringin eða sjónvarpið virka ekki þá eru krakkarnir kannski flinkust að finna út úr hlutunum. Þetta verð- um við að hafa í huga en þó alls ekki taka niðurstöðum könnunar PISA af léttúð.“ Ólafur Loftsson er formaður Félags grunnskólakennara Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skólamaður Hér hafa grunnskólarnir fengið, án mikillar umræðu, allskonar mál í fangið, segir Ólafur. Hlutverk kennara er víðtækara nú en var  Ólafur Loftsson er fæddur árið 1966. Hann er menntaður kennari og starfaði síðast við kennslu í Foldaskóla.  Ólafur hefur lengi starfað með björgunarsveitum, meðal annars alþjóðasveit Slysa- varnafélagsins Landsbjargar og í viðbragðsteymi á vegum Sameinuðu þjóðanna. Hver er hann? Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Helsta áskorun Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar er að tryggja sátt með- al þingmanna flokkanna um ríkisstjórnar- samstarf milli flokkanna, segir Birgir Guð- mundsson, stjórnmálafræðingur og dósent við Háskólann á Akureyri. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæð- isflokks, freistar þess nú að mynda ríkis- stjórn þessara flokka undir sínu forsæti. Verði hún að veruleika mun hún hafa minnsta mögulega þingmeirihluta, 32 þingmenn. Birgir segir líkur til þess að stutt sé í land hjá formönnunum þremur, í það minnsta hvað varðar málefnasátt- mála. „Menn eru líklega búnir að koma sér saman um meginatriði málefnasamn- ings en eiga kannski eftir tæknileg atriði og skiptingu ráðuneytanna,“ segir hann, en Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, hefur sagt að samkomulag um Evrópumál og sjávarút- vegsmál sé langt komið. Birgir segir að ekki hefði verið ákveðið að hefja formlegar viðræður nema samkomulag væri langt komið. „Vegna þess hvað þetta hefur tekið langan tíma og misheppnast oft tilkynna menn svona ekki opinberlega án þess að þetta sé nokkurn veginn klárt,“ segir hann. Birgir segir stjórnarsáttmála hafa aukið vægi í fjölflokkastjórnum og stjórnum með nauman meirihluta. Sáttmálinn sé þó aðeins grundvöllur og upphaf að ríkisstjórnarsam- starfi. „Hitt er það hversu varanleg stjórn getur orðið og það gæti verið að valda þeim áhyggj- um hvað þeir eru með lítinn minnihluta. Að ekki verði óvæntar uppákomur er kannski hluti af því sem þeir eru með einhverjum hætti að reyna að tryggja, en það er aldrei hægt að tryggja það alveg,“ segir Birgir. Kröfur BF og Viðreisnar um ráðuneyti óljósar Birgir telur líklegt að Sjálfstæðisflokkur muni fá flesta ráðherrastóla en óljóst sé hvaða kröfur Björt framtíð og Viðreisn geri í þessum efnum. Fyrir liggur að Bjarni Benediktsson verður forsætisráðherra verði stjórnin að veruleika. „Flokkarnir verða að raða þessu þannig að baklandið eða einstakir þingmenn í þingflokk- unum verði ekki ósáttir og geri uppreisn; að sátt verði til lengri tíma,“ segir hann. Líklegt sé að á næstunni ræði formenn flokkanna þriggja við þingflokka sína til að tryggja sam- hljóm um samstarfið. Brýnt að ná sátt meðal þingmanna  Líklegt að málefnavinna við stjórnarmyndun sé langt komin  Naumur meirihluti kallar á samhljóm Birgir Guðmundsson Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@mbl.is „Sagt hefur verið að raunveruleg hætta sé á því að íslenska verði ekki til eftir 100 ár,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra í áramótaávarpi sínu. Hann gerði stöðu íslenskunnar að umtalsefni og kvaðst stundum velta fyrir sér hvort raunveruleg hætta væri á því að íslenskan myndi í fyrirsjáanlegri framtíð láta svo á sjá að henni yrði ekki bjargað. Ari Páll Kristinsson, rannsókna- prófessor hjá Árnastofnun, er afar ánægður með að forsætisráðherra hafi tekið málið upp á þessum vett- vangi. „Það er auðvitað engin leið til að fullyrða um það en ýmis merki benda til þess að staða tung- unnar fari hratt versnandi og sú þróun gæti orðið svo hröð að við ráðum hvorki við eitt né neitt,“ sagði Ari Páll í samtali við Morg- unblaðið. Foreldrar sinni máluppeldinu Hann sagði að ein af ástæðunum fyrir þróuninni væri að óformleg málnotkun, talmál, væri sýnilegri á ýmsum sviðum en áður. „Sletturnar hafa verið notaðar í óformlegu sam- hengi meðan menn hafa ekki komið sér niður á bestu nýyrðin, þannig að þetta er alltaf ákveðið grátt svæði á milli. Það sem gæti verið að breytast er að við heyrum óform- lega málnotkun oftar opinberlega en við heyrðum áður í fjölmiðlum og á samskiptamiðlum.“ Spurður hvað væri til ráða svar- aði Ari að veita þyrfti börnum og unglingum góðan aðgang að eldra ritmáli, hvetja þau til bóklestrar og hvetja foreldra til að sinna málupp- eldinu. Staða íslensku hratt versnandi  Fagnar ummælum forsætisráðherra Úr áramótaávarpi „Nefnt hefur verið að það þurfi um einn milljarð króna á næstu tíu árum til að þróa samvinnu tungumáls og stafrænnar tækni. Að öðrum kosti bíði ís- lenskunnar hnignun í tækni- samfélaginu. Þótt vissulega megi segja að einn milljarður sé há upphæð, þá hygg ég að hún sé lág þegar haft er í huga hvað í húfi er.“ Sigurður Ingi Jóhannsson Ari Páll Kristinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.