Morgunblaðið - 02.01.2017, Page 8

Morgunblaðið - 02.01.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017 alvöru grillaður kjúklingur Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585 Opið alla daga kl. 11-22 Vonandi kemur að því að óþarftverður að fagna því að kona hafi sest í þennan eða hinn virðingarstólinn.    Bæði þar sem oft-ast skiptir ann- að máli en kynferðið eitt en einkum þó vegna þess að þá sé svo komið að rétt- mætar ástæður fréttamatsins verði ekki lengur til stað- ar.    Tveir helstu virð-ingarmenn Breta eru kvenkyns. Önnur hefur ríkt í áratugi en hin skem- ur.    En þessar valdakonur eiga fleirasameiginlegt en það að vera konur. Til dæmis heita eiginmenn beggja Philip.    Í umræðum um útfærslu á „Brex-it“ í þinginu nýverið sótti Cor- byn, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, að Theresu May forsætisráðherra og gagnrýndi framgöngu hennar.    Sagðist hann vilja minna forsætis-ráðherrann á að hún væri eng- inn Hinrik VIII. Ýmsir urðu til þess að taka þessum athugasemdum illa.    En aðrir töldu að tvær mann-eskjur myndu fagna mjög yf- irlýsingunni um að May ráðherra væri ekki Hinrik VIII.    Það gilti augljóslega um Elísabetuenda hefði slík staða þrengt mjög að drottningunni. En ekki síð- ur um Philip May. Honum hafði runnið kalt vatn á milli skinns og hörunds, þegar hann hugsaði um Hinrik og höggstokkinn hans. Philip May Það var eins gott STAKSTEINAR Elísabet II Veður víða um heim 1.1., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Akureyri 3 skýjað Nuuk 2 rigning Þórshöfn 2 léttskýjað Ósló -2 léttskýjað Kaupmannahöfn 5 skýjað Stokkhólmur 0 léttskýjað Helsinki -2 snjókoma Lúxemborg -4 þoka Brussel -1 snjóél Dublin 5 skýjað Glasgow 5 léttskýjað London 5 skúrir París 0 þoka Amsterdam 1 súld Hamborg 3 þoka Berlín 2 skýjað Vín -4 þoka Moskva 1 súld Algarve 15 léttskýjað Madríd 3 léttskýjað Barcelona 11 heiðskírt Mallorca 15 léttskýjað Róm 6 léttskýjað Aþena 6 léttskýjað Winnipeg -11 snjókoma Montreal -3 snjókoma New York 7 léttskýjað Chicago -6 þoka Orlando 21 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:18 15:47 ÍSAFJÖRÐUR 11:59 15:15 SIGLUFJÖRÐUR 11:44 14:56 DJÚPIVOGUR 10:56 15:08 Jólavenjur Íslendinga hafa tekið breytingum á síðustu árum, samkvæmt könnun Gallup sem var framkvæmd í síðari hluta desembermánaðar þar sem um 1400 einstaklingar voru spurðir hvort þeir tækju þátt í hinu og þessu yfir jólin. Gallup birti tölfræði yfir jólavenjur síðustu sex ára og gætir ýmissa breytinga. Jólatrjám í heima- húsum fer fækkandi, bæði lifandi og gervitrjám. Árið 2010 sögðust 88 prósent svarenda vera með jólatré en aðeins 82 prósent í ár. Örasta breyt- ingin á tímabilinu er í jólakortasendingum en rétt rúmlega helmingur sagðist hafa sent jólakort með hefðbundnum pósti fyrir jól í samanburði við 74 prósent árið 2010. Aðventuljós með sjö ljósum eiga einnig undir högg að sækja en þeim fækkar með nánast hverju ári. Athygli vekur að fjöldi styrkja til góðgerðamálefna eykst talsvert frá síð- asta ári eða úr 80 prósentum í 88. Sumt stendur þó í stað. Á tímabilinu var ávallt sama hlutfall sem sagðist gefa jólagjafir eða 98 prósent. Kirkjusókn hefur verið nokkuð jöfn, að síðasta ári undanskildu, en um þriðjungur svar- enda sagðist hafa farið í kirkju fyrir eða um jólin. tfh@mbl.is Jólatrjám í heimahúsum fækkar  Sumar venjur standa í stað en aðrar breytast ört Morgunblaðið/Árni Sæberg Þróun Í tæknisamfélaginu finna færri tíma fyrir hátíðarnar til að setjast niður við jólakortaskrif. „Verðið á markaði nú er gott og því sækja menn á sjó þegar gefst, segir Heiðar Magnússon útgerðarmaður Brynju SH í Ólafsvík. Smábátamenn á Snæfellsnesi komust á sjó daginn fyrir gaml- ársdag eftir ótíðarkafla. Skv. veð- urspá blæs ekki byrlega í dag en betur á morgun og má þá gera ráð fyrir að sótt verði á sjó. Það sem ræður háu fiskverði nú er verkfall sjómanna á fiskiskipum, sem nær þó ekki til báta sem eru undir tólf lengdarmetrum. Af þessum sökum er lítið framboð af fiski nú, en eft- irspurn er mikil um áramót Þann 30. desember var meðal- verð kílós á þorski á Fiskmarkaði Snæfellsnesbæjar 428 kr. og þorsk- ur sem er stærri en 8 kíló fór á 600 kr/kg. Verð á ýsu var einnig gott, 436 kr/kg. sbs@mbl.is Þorskurinn selst nú dýrt Morgunblaðið/Alfons Finnsson Sjósókn Kjartan Haraldsson á Brynju SH hampar golþorski.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.