Morgunblaðið - 02.01.2017, Side 12

Morgunblaðið - 02.01.2017, Side 12
Hildur Loftsdóttir hildurl@mbl.is U pphaflega ætlaði ég að verða kvikmynda- tökukona,“ segir Katrín Björk Sævars- dóttir sem ólst upp á Akureyri en býr núna í bænum Bea- con í New York-ríki. „Ég vann í danska kvikmyndabransanum í mörg ár, en komst að því að hann átti ekki við mig. Ég er rosalega ráðrík og stjórnsöm og það hentar mér afar vel að vinna ein eins og ég hef gert með bloggsíðuna mína,“ segir Katrín Björk hlæjandi. Hún ákvað því að klára ljósmyndanámið sem hún hafði byrjað á í Kaup- mannahöfn og fór í International Center of Photography í New York. Myndbönd eru málið á netinu „Ég fór aftur til Danmerkur eftir ljósmyndanámið, en listljós- myndaraferillinn gekk ekki upp. Ég hef alltaf eldað og puntað. Það er sú sem ég er, en það tók mig langan tíma að fatta að maður gæti unnið við það sem maður er góður í án þess að læra það í skóla og það var ekki fyrr en maðurinn minn stakk upp á því að ég bloggaði um allt sem ég var að dunda mér við á heimilinu og blandaði þannig saman ljós- myndun og áhugamálunum mínum. Fyrst fannst mér það brandari en þar sem ég hafði lítið að gera, þá byrjaði ég að blogga,“ segir Katrín Björk sem opnaði Modern Wifest- yle-síðuna árið 2011. „Ég er mjög þakkát fyrir þessi ár í kvikmyndunum því það gerir að verkum að ég kann að gera mynd- bönd og það hefur verið að koma mér áfram hér í Bandaríkjunum. Lífsstílsheimurinn á netinu snýst sí- Nýtt andlit hjá Mörthu Stewart Katrín Björk Sævarsdóttir hafði haldið úti síðunni Modern Wifestyle í fimm ár þegar hún vakti áhuga samstarfsfólks lífsstílsdrottningarinnar Mörthu Stewart sem fékk þessa íslensku hæfileikakonu undir eins til liðs við sig. Fjölskyldan Katrín Björk ásamt syninum Normann Prince og eiginmann- inum Jens Søgaard í heimabænum Beacon í New York ríki. Myndbönd Tökulið frá Mörthu Stewart tók upp heima hjá Katrínu Björk. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017 Samtök grænmetisætna á Íslandi skora á landann að prófa vegan í jan- úar – veganúar eins og það er kallað á vefsíðunni www.veganuar.is. Fyrir dýrin, heilsuna og umhverfið eins og þar stendur, enda er markmiðið að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýraafurða og kynna kosti veganfæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd. Vegan eða veganismi er lífsháttur þar sem leitast er við að útiloka og forðast — eftir fremsta megni — hag- nýtingu og ofbeldi gagnvart dýrum, hvort sem það á við um fæðu, fatnað, skemmtun eða aðra neyslu. Á vefsíðunni segir að veganismi sé stærsta réttlætisbaráttuhreyfing í heiminum. Ennfremur að margar og fjölbreyttar ástæður séu fyrir því að fólk gerist vegan. Fyrir flesta sé dýra- vernd aðalhvatinn, suma langi til að líða betur og hafa jákvæð áhrif á jörð- ina, aðrir sæki í áskorunina en margir noti veganúar sem áramótaheit og líti á janúar sem heilsusamlega byrj- un á árinu. Skorað er á fólk að gerast vegan í mánuð og upplifa nýjar víddir í matargerð og líkamlegri og andlegri vellíðan. Áhugasamir um vegan lífstíl geta skoðað hugmyndir að spennandi mál- tíðum, en á síðunni eru þrjú ólík mat- arplön með uppskriftum að máltíðum vikunnar. Einnig er þar listi yfir vegan vörur og veitingar sem bjóðast hér á landi. Á Facebook er umræðuhópur um veganisma á Íslandi, Vegan Ísland, og eru allir sem áhuga hafa á að gerast vegan velkomnir í hópinn. Kl. 20 - 21, miðvikudaginn 4. jan- úar, verður kynningarfundur Veg- anúar 2017 í Bíó Paradís fyrir þá sem vilja prófa vegan lífsstíl í janúar. Vefsíðan www.veganuar.is Lífsstíll Leitast er við að forðast ofbeldi gagnvart dýrum. Veganúar – vegan lífstíll í janúar Áramótahelgin er liðin. Viðkvöddum gamla árið von-andi með fólkinu okkar, glamúr og góðum mat og svo sprengdum við það auðvitað glæsi- lega upp eins og alltaf og skáluðum fyrir nýju ári. Ótrúlegt en satt þá er janúar á árinu 2017 runninn upp þó svo árið 2016 virðist einhvern veginn nýgengið í garð og aftur stöndum við hér. Við nýtt upphaf, á nýju ári, með hugann fullan af góð- um fyrirætlunum um það sem koma skal. Flestir leyfa sér meira yfir hátíð- arnar. Meiri hvíld, gleði, mat og drykk og hjá mörgum, ekki síst þeim sem fá/taka sér meira frí, fer svefnrútínan á hliðina þegar njóta á meira og nýta tímann til þess sem hugurinn girnist. Á endanum kallar því eftirbragð veislunnar svo auðveldlega á rútínu á ný. Jafnvel smá samviskubit og þörf til að taka sig á, gera betur, finna fókus og vera meiri eða jafnvel minni. Viðmið í heilsuhegðun Á tíma sem við förum gjarnan niður fyrir okkar venjulega viðmið í heilsuhegðun og afköstum þá ger- um við plön um að ekki bara ná takti á ný, heldur fara upp fyrir okkar venjulega viðmið og verða meiri og betri en fyrr. Það er jú hefð fyrir því að strengja almenni- leg áramótaheit á þessum tíma. Fyrir suma virkar þetta og þá halda þeir auðvitað sínu striki, en þetta virkar alls ekki fyrir alla. Hvernig hefur það venjulega virkað fyrir þig að strengja ára- mótaheit? Er vaninn sá að á ára- mótum standir þú stolt/ur undir glitrandi flugeldum því þér tókst það sem þú hafðir ákveðið árinu fyrr? Sem er frábært og vel gert. Eða ert þú ein/n af þeim sem end- urvinna sömu heitin ár eftir ár og svekkja sig á því í hljóði með skarð í sjálfstraustinu að hafa ekki staðið sig eins og þau vildu og ætluðust til? Ef svo er þá langar mig að biðja þig um að staldra við. Stoppa. Þarf ekki að gera eitthvað öðruvísi ef það sem ítrekað hefur verið gert skilar ekki árangri? Það er ekkert sem segir að áramót þurfi að vera þessi risastóru tímamót. Það er ekkert sem segir að einmitt þá Eftirbragð veislunnar kallar á rútínu Morgunblaðið/Ómar Heit Sú hefð að strengja áramótaheit eftir hátíðarhöldin virkar ekki fyrir alla. Heilsupistill Mjöll Jónsdóttir sálfræðingur Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Á vef RÚV er hægt að taka þátt í vali á orði ársins 2016 fram til 4. janúar. Á listanum eru orð sem hafa einkennt þjóðfélagsumræðuna eða verið áber- andi með öðrum hætti og falla að rit- hætti, beygingu og framburði máls- ins. Áhugaverð orðmyndun getur líka komið orði á lista Ekki er leitað að fegursta orðinu og það getur haft jafnt neikvæða sem jákvæða merkingu og verið viðkunn- anlegt eða óviðkunnanlegt. Á listan- um eru orðin aflandsfélag, haturs- orðræða, hrútskýring, hú!, kynsegin, Panamaskjöl, skattaskjól, tjákn og víkingaklapp, en þátttakendur geta stungið upp á orði eða komið með at- hugasemd. Rúv, Mímir og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræð- um standa að valinu á orði ársins. Kosning stendur yfir til 4. janúar Hvert verður orð ársins 2016? Tækniþróunar- sjóður Styrkir til hagnýtra rannsóknarverkefna Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2017 Háskóli eða rannsóknastofnun skal leiða verkefnið en hvatt er til samstarfs við aðila úr atvinnulífinu. Nánari upplýsingar eru á tths.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.