Morgunblaðið - 02.01.2017, Side 13
fellt meira um myndbönd. Ljós-
myndir eru auðvitað ennþá góðar og
gildar í tímaritum og mat-
reiðslubókum en myndbönd eru lyk-
illinn, og sem ljósmyndari í dag er
það styrkur að kunna að gera
myndbönd.“
Neikvætt að vera húsmóðir
Katrín Björk segir að Modern
Wifestyle hafi ekki endilega átt að
vera matarblogg til að byrja með.
„En þegar ég birti fyrstu uppskrift-
ina mína, sem var ekki einu sinni
neitt sérstaklega girnileg því að
matarmyndataka er mjög sérhæfð,
varð uppskriftin strax mjög vinsæl.
Ég gerði mér grein fyrir að fólk vill
lesa um mat og fá uppskriftir og ég
hlustaði á það. Uppskriftirnar slógu
í gegn og þar með ákvað ég að verða
betri í að taka myndir af mat.
Ég var og er enn mikið að velta
fyrir mér hugtakinu húsmóðir og
því að halda heimili, því ég hef alltaf
verið týpan sem puntar og eldar, og
veigra mér ekki við að halda mat-
arveislu fyrir 25 manns, ég bara
kann það og finnst það rosa gaman.
En ég hef oft mætt neikvæðni frá
fólki sem í staðinn fyrir að hvetja
mig áfram gagnrýnir mig fyrir full-
komnunaráráttu. Það er eins og það
fari í taugarnar á fólki að maður
gefi sér tíma til að leggja fallega á
borð eða elda 10 sortir af meðlæti.
Kannski er það af því að fólk tekur
okkur nútímahúsmæðrum sem
keppinautum og gleymir að þetta er
val og áhugamál. Mér er mikið í
mun að hvetja menn og konur sem
njóta þess að vera gestgjafar, að
elda og halda falleg heimili áfram og
útrýma þessari gamaldags og nei-
kvæðu hugsun sem oft er tengd við
orðið húsmóðir.
„We love it!“
Katrín Björk er með mörg
myndbönd á síðunni sinni og segir
að þau hafi verið vinsæl hjá les-
endum sínum. „Þegar ég fór svo í
atvinnuviðtalið sem ljósmyndari hjá
Mörthu Stewart, vildu þau sjá
myndböndin mín, og það eina sem
ég hafði voru þessi matreiðslu-
myndbönd með sjálfri mér í aðal-
hlutverki. Þau horfðu á þau öll og ég
sat bara hálfvandræðaleg og beið.
Svo litu þau upp, horfðu á mig og
spurðu: „Hvað er Modern Wife-
style?“ Ég fór að útskýra að þetta
væri blogg sem ég hefði verið með,
og þau sögðu: „We love it!“
Málið er að Martha Stewart er
75 ára og fyrirtækið er að leita að
einhverju nýju og fersku til að vera
hluti af heimi Mörthu. Þau vilja líka
reyna að ná til yngri lesenda, en
þeir eru flestir 45 ára og eldri.
Þannig að ég var ráðin til að gera
nokkur prufumyndbönd til að sjá
hvernig lesendur þeirra mundu
bregðast við mér,“ segir Katrín
Björk spennt.
Margar reglur
„Það eru margar reglur sem
þarf að fylgja við gerð svona mynd-
banda. Ég má t.d. ekki elda, því það
er bara Martha sem eldar. Ég verð
líka að nota gamlar hugmyndir frá
henni og þarf að fara gætilega þeg-
ar ég set þær í nýjan búning. Þetta
er mjög stórt fyrirtæki sem er erfitt
því þau vilja eitthvað nýtt, en um
leið má ekki breyta of miklu. Ég
valdi reyndar allt sjálf sem ég not-
aði og sýndi, en það var ýmislegt
sem ég hefði viljað gera öðruvísi,“
útskýrir Katrín Björk.
„Martha verður sjálf að sam-
þykkja allt sem er birt undir hennar
nafni og ég veit að hún sá prufu-
myndböndin mín og samþykkti að
þau færu í loftið. Það verður líka
spennandi að sjá hvernig hún bregst
við því að það sé verið að kynna til
sögunnar yngri konu,“ segir Katrín
Björk sem er enn sem komið er eina
nýja manneskjan á vefsíðu Mörthu.
„Ég er eina andlitið sem hefur
komið fram í myndbandi í nafni
Mörthu Stewart og er ekki Martha
Stewart sjálf. Það koma auðvitað
gestir í heimsókn til hennar í sjón-
varpsþáttunum og þegar hún er á
Facebook live, en ég er fyrsta
manneskjan sem er ein í mynd án
hennar undir hennar nafni.“
Ameríski draumurinn?
Katrín Björk er viss um að
framhald verði á samvinnu hennar
og Martha Stewart-lífsstílsveldisins.
„Ég er ekki búin að skrifa undir
neitt fast, en þau hafa mikinn áhuga
á Modern Wifestyle. Ég er rosalega
stolt af þessari samvinnu sem er
mikill gæðastimpill fyrir mig. En ég
er líka svolítið hissa, því ég var
tilbúin að leggja bloggið niður og
starfa einungis sem ljósmyndari. Ég
hélt að þeim kafla í lífi mínu væri
lokið, en það breyttist á þessum
fundi.“
Katrín Björk segir að áfram-
haldið snúist um hvort lesendur
Mörthu séu tilbúnir fyrir nýtt and-
lit. „Ég leyfi mér að efast um að
þeir taki mér illa, en ef svo verður
bíður mín alltaf starf hjá þeim sem
ljósmyndari og höfundur efnis.
Þessi góðu viðbrögð frá Mörthu
gera það að verkum að ég hef mik-
inn áhuga á að gera eitthvað meira
með Modern Wifestyle. Það eru alls
konar hugmyndir í gangi og reynd-
ar hafa fleiri en Martha sýnt síðunni
áhuga. Ég veit að það hefur tekið
mig mörg ár að byggja síðuna upp,
en mér líður eins og að þetta hafi
allt gerst á einni nóttu og að amer-
íski draumurinn sé til,“ segir Katrín
Björk bjartsýn og brosandi að lok-
um.
Nútíma húsmóðir Katrín Björk hefur tekið
mjög flottar matarmyndir fyrir síðuna sína
Modern Wifestyle.
http://www.mbl.is/matur/
http://www.marthastew-
art.com/contributor/1510109/
katrin-bjork
http://modernwifestyle.com/
Facebook http://facebook.com/
modernwifestyle
pinterest https://www.pinte-
rest.com/modernwifestyle/
Instagram instagram.com/
katrinbjork/
Hátíðarskreyting
Brot úr myndbandinu
þar sem Katrín Björk
ǵerði smekklegar há-
tíðarskreytingar.
Hanastél Katrín Björk
býður lesendum Mörthu
Stewart upp á áramóta-
hanastél með glans.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017
séum við tilbúin og með aðstæður
með okkur til stórra verka.
Áramótaheit um að strengja
ekki áramótaheit
Ef þetta hefur ekki virkað hing-
að til þá kannski er ekkert að þér
heldur virkar það bara ekki fyrir
þig að setja þér markmið af því nú
á að gera það. Kannski ættir þú að
hlusta betur á þig, hvað þú raun-
verulega vilt, getur og hefur þörf
fyrir og framkvæma í takt við það
en ekki dagatalið. Sýna þér jafnvel
meiri skilning og mildi fyrir það
sem ekki tókst og taka eftir öllu
því sem þér tókst, þó ekki væri
muldrað undir flugeldum í nafni
áramótaheitis. Eða strengja ein-
faldlega áramótaheit um að
strengja ekki áramótaheit og njóta
þess bara að vera þú og það sem
þú ert.
Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjaf-
arstofa, Skeifunni 11a, Reykjavík.
www.heilsustodin.is
Bókhveitivöfflur –
Glúten-, sykur- og mjólkurlausar
Hráefni:
2,5 dl bókhveiti
1,5 dl möndlumjöl
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
1/2 tsk kanill
2 egg
1 msk kókospálmasykur
2,5 dl mjólk að eigin vali
50 g smjör eða kókosolía
Aðferð:
1. Blandið þurrefnunum
saman í skál og setjið til hliðar.
2. Í annarri skál, hrærið egg-
in, bætið mjólk útí og síðan
smjöri/olíu.
3. Hrærið þurrefnunum
smám saman út í eggjablönd-
una, þar til deigið er orðið
jafnt.
4. Látið deigið standa í skál-
inni í 10 mín. áður en þið notið
það.
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek í 60 ár
Ármúla 15, 108 Reykjavík Sími 515 0500 fasteignakaup@fasteignakaup.is fasteignakaup.is
Fasteignasalinn þinn
fylgir þér alla leið í söluferlinu, frá upphafi til enda
Sirrý
lögg. fasteignasali
Erna Vals
lögg. fasteignasali
Íris Hall
lögg. fasteignasali