Morgunblaðið - 02.01.2017, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017
Ármúli 8, 2. hæð - 108 Reykjavík
Sími: 414-4466 - www.draumahus.is
Föst söluþóknun - Allt innifalið *
399.900
Föst söluþók - Allt innifalið
AnnaTeitsdóttir
Nemi til löggildingar
787-7800
Lárus Óskarsson
Fasteignasali
823-5050
Ólafur Sævarsson
Nemi til löggildingar
820-0303
*
* gildir fyrir eignir
undir 60.000.000 kr.
í einkasölu.
Um áramót tóku gildi ný lög í
Frakklandi sem eiga að tryggja
rétt launþega til að hundsa vinnu-
tengdan tölvupóst sem þeim berst
utan hefðbundins skrifstofutíma.
Guardian segir lögunum ætlað að
sporna gegn þeirri röskun sem
tæknin hefur valdið á jafnvægi
vinnu og einkalífs. Með vinnupóst-
inn aðgengilegan í símanum og á
fartölvunni öllum stundum geta
skeyti frá vinnufélögum og við-
skiptavinum á öllum tímum dags
valdið hættu á kulnun í starfi,
svefnvandamálum og jafnvel sam-
bandserfiðleikum.
Að vera alltaf í sambandi við
vinnustaðinn hefur gefið mörgum
meiri sveigjanleika til að vinna utan
skrifstofunnar en hefur líka, að
sögn Guardian, leitt til þess að vax-
andi hópur fólks á frönskum vinnu-
markaði er í reynd að vinna mikið
af yfirvinnu launalaust.
Könnun sem gerð var í október
sýndi að um þriðjungur franskra
launþega notar tölvur og farsíma
daglega til að sinna vinnunni utan
reglulegs vinnutíma.
Nýju lögin skikka fyrirtæki með
50 starfsmenn eða fleiri til að skil-
greina nákvæmlega og semja við
starfsfólkið um réttindi þess til að
fá að vera í friði þegar vinnudeg-
inum er lokið.
Frönsk stéttarfélög hafa gagn-
rýnt lögin fyrir að gera fyrir-
tækjum enga refsingu ef þau
hundsa fyrirmæli laganna.
ai@mbl.is
AFP
Ónæði Fólk á ferð fyrir utan Gare du Nord. Eflaust öfunda margir franska
launþega af nýju lögunum enda getur verið lýjandi að vera alltaf við.
Nú geta Frakkar haft
slökkt á tölvupóstinum
Á þessu ári mun gamla kringlótta
eins punds myntin víkja fyrir nýrri
mynt með tólfhyrndri brún. Fer
nýja myntin í umferð 28. mars
næstkomandi og verður gamla
myntin ekki lengur gild eftir 15.
október.
Nýja myntin á að vera „sú örugg-
asta í heimi“ að sögn Konunglegu
myntsláttunnar, en í dag er talið að
ein af hverjum þrjátíu eins punds
myntum sé fölsuð.
Hornin tólf gefa myntinni
óvenjulega lögun og áferð sem erf-
itt er að falsa. Þá er myntin gerð úr
tvenns konar málmblöndum, sem
mynda silfurlitaðan innri hring inni
í gylltum ytri hring. Á peningnum
er líka eins konar heilmynd sem
breytist úr pundsmerki í tölustaf-
inn „1“ eftir því hvernig myntinni
er hallað.
Samhliða breytingunni á eins
punds myntinni mun breska mynt-
sláttan gefa út eldri myntir með
nýju útliti. Að sögn BBC koma út
tvær útgáfur af tveggja punda
myntinni; önnur tileinkuð því að
200 ár eru liðin frá andláti Jane
Austen, og hin tileinkuð afrekum
breska flughersins í fyrri heims-
styrjöldinni. Útlit nýrrar 50 pensa
myntar mun vísa til afreka Isaacs
Newton. ai@mbl.is
Öruggara pund í umferð í mars
Erlendir bankar hafa þurft að grípa
til ráðstafana vegna þess að reikn-
ingsyfirlit viðskiptavina verða æ
lengri.
FT segir helstu skýringuna vera
að snertilausar greiðslur hafa rutt
sér til rúms, sem þýðir að margar
milljónir smáupphæða, sem áður
hefðu verið greiddar með reiðufé,
birtast núna á bankayfirlitum. Einn-
ig eiga ýmsar smágreiðslur á netinu,
s.s. fyrir tónlist og snjallforrit, að
hafa fjölgað kortafærslum þar sem
lág upphæð skiptir um hendur.
Á aðeins tveimur árum hefur
meðalyfirlitið hjá HSBC lengst úr
2,55 síðum í 2,65 síður. Greip bank-
inn því til þess ráðs að láta prenta á
báðar hliðar reikningsyfirlitanna og
sparaði með því nærri 24 milljónir
blaðsíðna á ársgrundvelli. Hjá
Lloyds eru yfirlitin einnig prentuð á
báðar hliðar og var hönnun þeirra
breytt svo að koma mætti fleiri
færslum fyrir á hverri síðu.
ai@mbl.is
Snertilausar greiðslur
lengja bankayfirlitin
Ráða má af samantekt Bloomberg
yfir þróun helstu eignaflokka lið-
ins árs að íslenska krónan hafi
verið einn af betri fjárfestingar-
kostum ársins 2016.
Mest hækkaði rússneska rúblan,
eða um 21,31% og skrifaðist að-
allega á styrkingu olíuverðs. Bras-
ilíski realinn kemur í öðru sæti
með 20,96% styrkingu á síðasta ári
eftir að hafa verið í frjálsu falli frá
sumrinu 2011.
Í þriðja sæti lendir málmurinn
palladíum, sem hækkað hefur um
20,08% og loks íslenska krónan
sem varð 14,42% verðmætari á
árinu.
Aðrir hástökkvarar síðasta árs
voru silfur (14,41%) og sambíska
kwachan (11,96%). Suður-afríska
randið, lesótóski lotinn, namibíski
dollarinn og svasílenska lilangeníið
hækkuðu öll um 11%.
Á móti lækkuðu margir gjald-
miðlar hressilega. Egypska pundið
varð verst úti með 58,84% lækkun,
þá súrínamskur dollar sem rýrnaði
um 45,68% og venesúelskur bólív-
ari sem missti 37%. Gjaldmiðlar
Nígeríu, Mósambík, Síerra Leóne,
Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó,
Mongólíu, Angóla, Gíneu og Tyrk-
lands veiktust allir um rúmlega
37% til 17%.
Af helstu alþjóðlegu viðskipta-
gjaldmiðlum lækkaði breska pund-
ið mest, eða um 17,08% og mexí-
kóski pesóinn litlu minna eða
17,05%. ai@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Uppsveifla Íslenska krónan var í
fjórða sæti yfir þá gjaldmiðla og
málma sem hækkuðu mest 2016.
Krónan í félagsskap
rúblu og reals
Innkaupastjóravísitala kínverskra framleiðslufyrirtækja
lækkaði lítillega í desember en er þó enn jákvæð. Sam-
kvæmt opinberum tölum sem birtar voru á sunnudag
mældist vísitalan 51,4 stig í síðasta mánuði en var 51,7
stig í nóvember.
Gildi yfir 50 gefur til kynna aukningu í innkaupum en
gildi undir 50 sýnir samdrátt.
Wall Street Journal segir þetta fimmta mánuðinn í röð
sem vísitalan er fyrir ofan 50 stiga markið. Þá virðast
hinir ýmsu þættir innkaupastjóravísitölunnar benda til
að eftirspurn sé stöðug.
Kínversk stjórnvöld hafa verið að vinda ofan af örv-
unaraðgerðum sem fólust einkum í því að auðvelda að-
gengi fyrirtækja að ódýru lánsfé. Hafa ráðamenn nú
áhyggjur af vaxandi skuldsetningu í atvinnulífinu en eru
þó enn bjartsýnir á að tekist hafi að ná 6,5 til 7% hagvexti
á liðnu ári eins og að var stefnt. Verða hagvaxtartölur
birtar síðar í mánuðinum. ai@mbl.is
AFP
Greinar Önnum kafinn starfsmaður jólaskrautsverkmiðju í Zhejiang-héraði. Nýjustu tölur benda til stöðugleika.
Kínverskir innkaupastjórar brattir