Morgunblaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017 Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á liðnum árum. Starfsfólk Eignamiðlunar S í ð u m ú l a 2 1 · S . 5 8 8 9 0 9 0 · w w w . e i g n a m i d l u n . i s Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Árás var gerð á skemmtistað í Istanbúl í Tyrk- landi rétt eftir miðnætti á gamlárskvöld, klukk- an 1.30 að staðartíma. Þrjátíu og níu manns hið minnsta létu lífið, þar af sextán erlendir ríkisborgarar. Þá eru hátt í sjötíu manns særðir að sögn yfirvalda í Tyrk- landi, en talið er að um 700 manns hafi verið inni á skemmtistaðnum þegar árásin var gerð. Suleyman Soylu, innanríkisráðherra Tyrk- lands, segir að byssumaðurinn sem hóf skothríð á næturklúbbinn hafi staðið einn að árásinni. „Viðamikil leit er hafin að árásarmanninum. Lögreglan hefur þegar hafið aðgerðir sínar og við vonum að árásarmaðurinn náist sem fyrst,“ sagði ráðherrann í samtali við fjölmiðla í gær. Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, sagði í gær að hryðjuverki af þessu tagi væri ætlað að skapa glundroða og hræðslu meðal íbúa landsins. Hann sór þess eið að yfirvöld í Tyrk- landi myndu halda áfram baráttunni við hryðju- verk af fullri hörku. Þetta er fyrsta hryðjuverka- árásin í Tyrklandi á nýju ári en á síðasta ári voru sex hryðjuverkaárásir framdar í landinu, sem kostuðu 215 manns lífið. Hryðjuverkaárás í Tyrklandi  Árás á skemmtistað í Istanbúl  Minnst 39 eru látnir og hátt í 70 manns eru slasaðir  Meðal látinna eru sextán erlendir ríkisborgarar  Byssumaður talinn hafa staðið einn að voðaverkinu AFP Særðir Fjölmargir voru fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús eftir hryðjuverk næturinnar. Hryðjuverk » Byssumaður hóf skot- hríð á skemmtistað í Ist- anbúl í Tyrklandi. » 70 særðust og 39 lét- ust í hryðjuverkaárásinni. » Meðal þeirra látnu eru 16 erlendir ríkisborgarar. » Hátt í 700 manns voru saman komin til að fagna nýju ári á skemmti- staðnum. » Forseti Tyrklands lofar áframhaldandi baráttu við hryðjuverkasamtök. Nýju ári er fagnað með ólíkum hætti um allan heim og fögnuðu til dæmis íbúar Barselóna á Spáni nýju ári léttklæddir á ströndinni þó aðeins væri um 13 gráða hiti. Skammdegið og kuldinn leyfir Íslendingum ekki slíkan lúxus þó ein- hverjir láti sig hafa það og stingi sér til sunds í sjónum í byrjun janúar. Aðrir láta sig bara dreyma um suðrænni höf, full af gleði og meira en það. AFP Fagna nýju ári léttklædd á ströndinni Íbúar Barselóna flykkjast á ströndina Elísabet Eng- landsdrottning mætti ekki til messu á nýárs- dag vegna veik- inda. Drottn- ingin hefur verið kvefuð og missti einnig af jóla- dagsmessunni af þeim sökum. Þá fór hún ásamt eiginmanni sínum með þyrlu til heimilis þeirra í Sand- ringham þann 22. desember en þau voru bæði slöpp og treystu sér ekki að fara með lest eins og tíðkast hef- ur. Talsmaður Buckingham-hallar segir að drottningin sé enn að ná sér en sé öll að koma til. Ekki er langt frá því að skyldum drottningarinnar var fækkað tölu- vert auk þess sem hún hvarf frá hlutverki sínu sem verndari 25 breskra samtaka. Elísabet verður 91 árs gömul á þessu ári og eiginmaður hennar Fil- ippus verður 96 ára. Drottning- in missir af kirkjuferð  Hefur ekki enn að náð sér af kvefi Barack Obama flutti sitt síðasta ný- ársávarp sem forseti Bandaríkjanna en hann hverfur úr embætti þann 20. janúar þegar Donald Trump verður svarinn í embætti. Forsetinn fór yfir farinn veg og þau verk sem hann og ríkisstjórn hans hafa komið í framkvæmd. Minntist hann m.a. á efnahags- ástandið sem ríkti þegar hann tók við völdum fyrir átta árum síðan. „Fyrir átta árum stóðum við á mörkum alvarlegrar efnahags- kreppu. Hátt í 800 þúsund Banda- ríkjamenn misstu vinnuna í hverj- um mánuði. Á sumum stöðum var einn af hverjum fimm án atvinnu og 180 þúsund bandarískir hermenn voru í Írak og Afganistan,“ sagði forsetinn og fór svo yfir þann við- snúning sem hefur orðið í Banda- ríkjunum síðan og hvatti jafnframt bandarísku þjóðina til að horfa fram á veginn. „Verkefnið framundan er að tryggja áframhaldandi framgang Bandaríkjanna. Halda við og byggja á þeim ávinningi sem unnist hefur.“ Að lokum sagði Obama það hafa verið forréttindi að hafa þjónað bandarísku þjóðini sem forseti og minnti landsmenn á að allir menn væru fæddir jafnir. AFP Kveður Í síðasta nýársávarpi Baracks Obama í embætti forseta Bandaríkj- anna sagði hann heiður hafa fengið að þjóna bandarísku þjóðinni. Síðasta ávarp Obama  Barack Obama flutti sitt síðasta nýársávarp  Verkefnin framundan að tryggja áfram framgang Bandaríkjanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.