Morgunblaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.01.2017, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þegar horft ertil heims-mála var ár- ið 2016 blendið, eins og þau eru flest. Það á ekki síst við um öryggi almennra borgara. Stundum heyrast bjálfaleg sjónarmið um að fleiri farist í bílslysum, og fleiri drukkni í baðkerum sínum en falli í hryðjuverkum á Vest- urlöndum. Munurinn er þó sá að baðkerin eru ekki á eftir fórnarlömbum sínum svo vitað sé. Drepa má alvarlegri ógn á dreif með slíku tali og sú er meiningin. Viðbrögðin hjá þeim sem gleypa fluguna eru vænt- anlega hin sömu og mannsins sem heyrði þá frétt í útvarpinu, að flest fólk andaðist í rúminu sínu. Sá ákvað að framvegis myndi hann sofa á gólfinu til að auka lífslíkur sínar. Hryðjuverkamönnum hefur tekist að skapa uppnám í vest- rænum samfélögum. Þeir, sem fögnuðu nýju ári í mannsöfnuði, gerðu það í skjóli þungvopnaðs lögregluliðs. Þessi ógn hefur lamandi áhrif á á frjáls sam- félög. Mannlífið er flóknara fyrir vikið. Friðhelgi einkalífs lætur jafnt og þétt undan nauð- syn þess að tryggja almennt ör- yggi. Lítið tilefni sem kallar á grunsemdir sópar einkamálum á bak og burt. Flestir vita að slík þróun er hættuleg. Yfirvöld hafa tilhneigingu til að misnota slíkar heimildir, jafnvel um við- kvæmustu þætti. Það þarf ekki Tyrki til. (Gordon Brown notaði hryðjuverkalöggjöf til að níðast á Íslendingum.) Merkel, kanslari Þýskalands, sagði í nýársávarpi sínu að nú væri svo komið að fáu væri að treysta og hryðjuverk væru helsta ógn sem Þjóðverjar stæðu frammi fyrir. Sumum þóttu þessi sannindi koma nokkuð seint úr þessari átt. Bretar samþykktu „brexit“ á síðasta ári, útgöngu sína úr ESB. Úrslitin voru afgerandi. Munurinn var þó ekki mjög mikill. Út vildu 52% en 48% vildu fara hvergi. Eins og geng- ur eru uppi ólíkar kenningar um hvað réð mestu um úrsögn Breta. En flestir segja, að ljóst sé, að eigi ein setning mesta sök, hafi Merkel átt hana: Þið eruð öll hjartanlega velkomin til Þýskalands. Í landamæra- lausu Evrópusambandi vissu allir hvað þetta þýddi fyrir þá sem eru í Schengen-samstarf- inu, sem Íslendingar hafa enn ekki komið sér úr. Og jafnvel þeir, sem eru utan þess eins og Bretar, lentu undir nær óbæri- legum þrýstingi. Þó voru það aðallega óbein áhrif þessarar vanhugsuðustu yfirlýsingar ársins sem gerðu mestan skaða. Breskur almenningur taldi að nú hefðu allar flóðgáttir opnast. Árinu lauk með óhugnaðinum í Berlín og hermd- arverkamaður byrjaði það nýja með því að skjóta 39 manns til bana á skemmtistað í Ist- anbúl og særa fjölmarga aðra. Þegar þetta er skrifað gengur ódæðismaðurinn enn laus. Of seint var brugðist við hættunni af „Íslamska ríkinu.“ Obama forseti sagði fyrir fáein- um árum að hermdarverka- menn væru hvarvetna á flótta. Isis margfaldaði afl sitt eftir það og hefur skotið rótum í mörgum löndum. Á seinasta ári fór loks að þrengjast að þeim bæði í Írak og Sýrlandi. Það er fagnaðarefni. En vitað var, að þegar baráttan um yfirráða- svæði í Írak og Sýrlandi harðn- aði áttu hermdarverkamenn ekki betri kosti en að fjölga hryðjuverkum í ríkjum heið- ingjanna. Tyrkir hafa ásamt Rússum sótt að Isis í Sýrlandi og Bandaríkjamenn standa fyrir lamandi loftárásum þar og í Írak. Þar eru Rússar í banda- lagi við Íran. Báðum löndum stendur ógn af Isis en þau eiga önnur sameiginleg markmið sem snúast um framtíð Assads forseta Sýrlands sem nú hefur yfirhöndina í borgarastyrjöld- inni þar. Staða Tyrkja er flók- in, svo ekki sé meira sagt. Er- dogan vildi Assad burt. En hann vill líka knésetja Isis og hefur ríkar ástæður til. Kúrdar hafa reynst þróttmestu her- menn allra gegn Isis. Erdogan getur illa gert upp við sig hvort honum er verr við Kúrda eða Isis. Innra öryggi Tyrklands stendur illa. Það munaði hárs- breidd að hernum tækist að myrða Erdogan og steypa stjórn hans. Fjöldi hermanna, lögreglumanna og stjórn- málalegra andstæðinga forset- ans var fangelsaður í kjölfarið. Dómarar og blaðamenn hlutu margir sömu meðferð. Það fer mikill þróttur í svo vafasöm innri átök og fjölmennasti her Nató í Evrópu er enn í uppnámi þótt stjórnarbyltingin hafi ver- ið kæfð í fæðingu. Skrifræðið í Brusel er lagið við að unga út tilskipunum í all- ar áttir og hefur „feita þræla“ um allt til að hotta þeim áfram. Brussel hefur þannig tekið af festu á því hvernig Íslendingar fagna áramótum. Fyrir fáein- um árum ákvað Brussel hversu lengi brennur mættu loga í Reykjavík og nágrenni! Nú er komið að rakettunum. Næst sennilega að litum á grímum og hæð og breidd hatta. Íslenskir handlangarar fagna þessu og þakka í bænum sínum. En það er ekki endilega víst að tívolí- bombur og rakettur á prikum séu hættulegustu vopn sem ESB þarf að fást við áður en það liðast í sundur. Ógnarverkin í Berlín og fjöldamorð í Istanbúl lita áramót} Byrjunin ekki góð R étt áður en árinu 2016 lauk rak ég augun í frétt þar sem greint var frá því að íslensk stjórnvöld hefðu gert samning við Lýðræðis- og mannréttindaskrifstofu Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, ODIHR, um þjálfun lögreglumanna og ákærenda hér á landi vegna hatursglæpa. Í þessu samkomulagi felst að ODIHR tekur að sér að halda námskeið á árinu 2017 fyrir leiðbeinendur úr hópi íslenskra lögreglumanna og ákærenda þar sem fræðsla verði jafnframt fastur liður í menntun og sí- mennt þessara hópa. Þetta eru svolítið sláandi tíðindi. Ekki að maður dragi í efa að þess kunni að vera þörf, sérstaklega sé litið til þess sem er að gerast í Bandaríkjunum og Bretlandi, þar sem hatursglæpir hafa aukist síðustu mánuði, en það er bara eitthvað svo ógurlega stutt síðan manni fannst fas- istalegar skoðanir vera hlægilegt heimskugaspur fárra. Ný- nasistar í einhverjum göngum, sköllóttir með hakakross- húðflúr, þetta voru næstum brandarafréttir, eitthvað sem maður hefði aldrei trúað að þyrfti að hafa raunverulega áhyggjur af. Allt á uppleið, framfarir í hugsun og siðferði hlytu að vera samferða framförum í vísindarannsóknum. Það er því ekki skrýtið að mörgum líði eins og þessi breytta tilvera hafi komið aftan að manni. Afturgöngur sem manni fannst ekki þurfa að hafa stórar áhyggjur af eru komnar á kreik. Það þarf raunverulega að standa í því að út- skýra muninn á réttu og röngu, góðu og illu, fyrir fólki sem ætti í krafti upplýsingar að vita betur. Það þarf að eyða tíma í eitthvað sem áður var bara sjálfsagt; við erum öll jafn- rétthá. Á fyrsta degi ársins 2017 var greint frá því í breskum fjölmiðlum að helmingur bresku þjóð- arinnar segist skynja það að fasistalegar skoðanir séu á mikilli siglingu, ekki bara þar heldur líka í Bandaríkjunum og allri Evrópu. Samkvæmt þess- ari könnun, sem BMG Rannsóknarsetrið gerði fyrir breska blaðið Independent, er raunveruleg- ur ótti meðal almennings sem finnst fasistaleg við- horf vera að ná útbreiðslu sem aldrei fyrr. Það sem einkum vakti athygli var að eldra fólk hafði meiri áhyggjur en yngra en stjórnandi rann- sóknarinnar sagði að með aldri kæmi reynsla og því væri líklegra að eldra fólk hefði meiri tilfinn- ingu fyrir breytingum sem þessum meðan yngra fólk hefði ekki jafnlangan samanburð. Það er gott að hérlendis ætli menn að vera und- irbúnir undir hatursglæpi og hafi vilja til að bregðast við þeim. Á fyrsta degi nýs árs las ég líka fréttir sem gáfu manni von. Independent greindi þannig frá kvöldverði í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar, þar sem Akkeri, samtök áhugafólks um starf í þágu flóttamanna, bauð hælisleit- endum til gamlársdagssamverustundar.Þetta mergjaða framtak vekur athygli um allan heim. BBC News, The In- dependent, Belfast Telegraph eru meðal þeirra fjölmiðla sem hafa sagt frá þessum viðburði en um 300 hælisleitendur mættu til að eiga saman notalega stund, þar af 80 börn, þar sem fólk hlustaði á tónlist, gæddi sér á mat og góðgæti og spjallaði. Eða eins og forsetinn orðaði það í gær þegar hann ræddi um stofnun lýðveldisins.„Rétt eins og þá erum við herlaus þjóð en við getum þó lagt okkar skerf til barátt- unnar við þau öfl sem helst ógna friðsæld í okkar álfu, öfga- og haturshreyfingar sem engu eira.“ julia@mbl.is Pistill Brandarafréttir verða að veruleika Júlía Margrét Alexandersdóttir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is Það er mikilvægt að við semhöfum það hlutverk aðstuðla að lausn ágreinings ávinnumarkaði veltum fyrir okkur hvort kerfið sem við höfum búið til utan um það verkefni, sé nógu skil- virkt. Ég tel að við getum gert betur og myndi vilja að við gerðum árang- ursmælingar og markvissan sam- anburð við önnur lönd og settum okk- ur skýr markmið til að ná bættum árangri,“ segir Bryndís Hlöðvers- dóttir, ríkissáttasemjari, en hún tók við embættinu um mitt ár 2015 og hef- ur síðan unnið að því að greina tæki- færi til umbóta í starfsemi embættis- ins. „Það er til dæmis alltof sjaldgæft að nýr kjarasamningur taki við af kjarasamningi, áður en samningstím- inn rennur út,“ bætir hún við en hið eðlilega ástand sé að ekki komi til átaka á vinnumarkaði. Of algengt sé hér á landi að gripið sé til neyð- arúrræða til að stöðva kjaradeilur, hvort sem það er vinnustöðvun eða lagasetning. „Þarna erum við komin út á neyðarbraut kerfisins og það er ekki gott að mál fari í auknum mæli þang- að. Við eigum að leysa málin fyrr.“ Alls 26 mál til meðferðar Árið 2016 einkenndist af ólgu á vinnumarkaði, ekki síður en fyrri ár, að mati Bryndísar. Málafjöldi hjá embættinu var þó ekki hinn sami og árin á undan enda fjölmargir kjara- samningar gerðir árið 2015 með gild- istíma út árið 2018 og inn á árið 2019. Alls voru 26 mál til meðferðar emb- ættisins á þessu ári en ekki tókst að ljúka níu þeirra fyrir árslok og verður unnið að þeim áfram hjá rík- issáttasemjara á næsta ári. Til sam- anburðar voru sáttamál 60 talsins árið 2015 og 55 árið 2014. Auk fimm kjaradeilna félaga sjó- manna og Samtaka fyrirtækja í sjáv- arútvegi (SFS) eru þetta mál Félags kennara og stjórnenda í tónlist- arskólum og Samninganefndar sveit- arfélaga, mál Flugfreyjufélags Íslands og SA vegna Flugfélags Íslands, deila Félags skipstjórnarmanna og Félags vélstjóra og málmtæknimanna(VM) á hvalaskoðunarbátum við SA og deila Sjómannafélags Íslands við Eimskip vegna Faroe Ship. Þá kom til vinnustöðvana í nokkrum málum á árinu og í einu þeirra, deilu verkalýðsfélaganna í Straumsvík og Rio Tinto Alcan lagði ríkissáttasemjari fram miðl- unartillögu til lausnar málinu en því úrræði hafði ekki verið beitt frá árinu 2008. Einnig voru vinnustöðvanir í deilu Félags flugumferðastjóra við ríkið ásamt yfirstandandi allsherj- arverkfalli sjómanna. „Sjómenn hafa tvífellt kjarasamning og staðan því snúin þar, en sama á við í deilu Flug- freyjufélags Íslands og SA vegna Flugfélags Íslands, sem er á mínu borði í dag,“ segir Bryndís. Þá hafi mikill tími embættisins farið í Salek- samstarfið um bætt vinnubrögð við gerð kjarasamninga á árinu en koma verði í ljós hvort framhald verði á því á næsta ári Taki höndum saman Reynt hefur mjög á þanþol kerf- isins hin síðustu ár og það end- urspegli ólguna á vinnumarkaði. Það sé því sameiginlegt verkefni aðila á vinnumarkaði, stjórnvalda og rík- issáttasemjara að gera það skilvirk- ara. „Verkfallsprósentan og hlutfall sáttamála þar sem boðað er til vinnu- stöðvana er hátt og má nefna sem dæmi að boðuð voru verkföll í 72% þeirra deilumála sem komu til með- ferðar sáttasemjara á árinu 2015 og til vinnustöðvana kom í um 30% þeirra,“ segir Bryndís en þá hafi málafjöldi fyrir Félagsdómi einnig verið í sögulegu hámarki árið 2015 eða yfir 20 úrlausnir. Árið einkenndist af ólgu á vinnumarkaði Morgunblaðið/Eggert Vöfflur Alls voru 26 mál til meðferðar hjá embættinu á þessu ári en þegar tekst að semja eru iðulega bakaðar vöfflur til að fagna lokum viðræðna. „Á árinu 2017 renna út samn- ingar ríkisins og Lækna- félags Ís- lands í apríl, gerðardómur í máli BHM félaga og rík- isins rennur út í lok ágúst og síðar á árinu rennur m.a. út samningur Félags grunnskóla- kennara og SNS sem gerður var nýlega. Gera má ráð fyrir að und- irbúningur vegna þessara mála hefjist strax í upphafi árs og tím- inn verður síðan að leiða í ljós hvernig gengur að vinna að þeim. En auk hefðbundinna starfa hjá embættinu munum við halda áfram á umbótavegferðinni okk- ar og árið leggst bara vel í mig,“ segir Bryndís en fyrir lok febrúar skýrist svo hvort samnings- forsendur kjarasamninga hafi staðist eða hvort forsendu- ákvæði þeirra verði virkjuð með tilheyrandi afleiðingum. Áfram á um- bótavegferð ANNASAMT NÝTT ÁR Bryndís Hlöðversdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.