Morgunblaðið - 02.01.2017, Side 27
Árið 1997 færði Jón sig yfir á Stöð
2 sem einn í grínhópnum Fóst-
bræðrum en þeir gerðu alls fimm
þáttaraðir til ársins 2001. Fóst-
bræður náðu fljótt miklum vinsæld-
um og þykja nú einhverjir bestu
gamanþættir sem gerðir hafa verið
hér á landi. Eftir ýmsar tilraunir
bæði í útvarpi og sjónvarpi sló Jón
aftur í gegn með Næturvaktinni
haustið 2007. Í kjölfarið fylgdu hinir
vinsælu þættir Dagvaktin og Fanga-
vaktin, og einnig kvikmyndin Bjarn-
freðarson. Fyrir túlkun sína á Georg
Bjarnfreðarsyni fékk Jón Edduverð-
laun árið 2010 en alls hefur Jón
fengið á annan tug Edduverðlauna á
sínum ferli sem handritshöfundur,
framleiðandi og leikari.
Jón hefur auk þess fengist við
auglýsingagerð, bókaskrif, sviðsleik
og uppistand, s.s. sýninguna: „Ég
var einu sinni nörd“, sem var sýnd í
Loftkastalanum veturinn 1999-2000.
Jón hóf dæmalaus afskipti sín af
íslenskum stjórnmálum er hann
stofnaði Besta flokkinn árið 2009,
bauð fram í sveitarstjórnarkosn-
ingum í Reykjavík 2010, fékk sex
manns kjörna í borgarstjórn og tók
við starfi borgarstjóra í júnímánuði
sama ár. Hann var síðan borg-
arstjóri til 2014 er hann hætti af-
skiptum af stjórnmálum, jafn
skyndilega og hann hafði hafið þau.
Jón hefur síðan haldið sínu striki
sem grínisti, uppistandari og leikari
á Stöð 2, m.a. með þáttunum Borg-
arstjórinn sem þar hafa verið í sýn-
ingu að undanförnu.
Jón er meðlimur í Félagi íslenskra
leikara og Félagi leikskálda og hand-
ritshöfunda.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Jóhanna Gnarr
Jóhannsdóttir, f. 11.7. 1961, nuddari.
Foreldrar hennar: Jóhann Gíslason,
f. 17.6.1937, d. 6.4. 2010, vélstjóri í
Kópavogi, og Guðlaug Svala Ingi-
bergsdóttir, f. 29.5. 1939, húsfreyja.
Börn Jóns frá fyrra hjónabandi
eru Dagur Kári Gnarr, f. 28.5. 1987,
nemi í Reykjavík; Margrét Edda
Gnarr, f. 16.2. 1989, einkaþjálfari í
Reykjavík, en maður hennar er Ás-
geir Trausti Einarsson tónlist-
armaður, og Kamilla María Gnarr, f.
14.2. 1992, nemi í Reykjavík.
Synir Jóns og Jóhönnu eru Frosti
Gnarr, f. 29.12. 1986, grafískur hönn-
uður í Reykjavík, en kona hans er
Erla Hlín Hilmarsdóttir versl-
unarmaður og er sonur þeirra Fálki
Gnarr, f. 2.1. 2016 (sama dag og afi),
og Jón Gnarr, f. 31.5. 2005.
Systkini Jóns eru Óskar Krist-
insson, f. 15.12. 1942, leigubifreiðar-
stjóri í Reykjavík; Anna Kristín
Kristinsdóttir Östmark, f. 14.11.
1946, húsfreyja í Noregi, og Eyrún
Kristinsdóttir, f. 10.1. 1955, hjúkr-
unarfræðingur á Akureyri.
Foreldrar Jóns voru Kristinn Ósk-
arsson, f. 30.7. 1918, d. 30.11. 2008,
lögregluþjónn í Reykjavík, og Bjarn-
ey Ágústa Jónsdóttir, f. 1.9. 1922, d.
26.12. 2010, húsfreyja.
Úr frændgarði Jóns Gnarr
Jón
Gnarr
Alexía Margrét
Guðmundsdóttir
húsfr. í Mjóasundi
Jón Jónsson
b. í Mjóasundi
Anna Jónsdóttir
húsfr. Í Rvík
Jón Einarsson
múrari í Rvík
Bjarney Ágústa Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Ferjunesi og ekkja í Rvík
Guðný Hannes-
dóttir húsfr. í
Stokkseyrarseli.
Guðrún
Gísladóttir hús-
fr. á Eyrarbakka
Gísli Ólafsson
bakarameist.
í Rvík
Erlingur
Gíslason
leikari
Benedikt
Erlingsson,
leikari, leikstj.
og leikskáld
Sigurþóra S
Þorbjörns-
dóttir húsfr.
í Rvík
Þórunn
Jónsdóttir
húsfr. í
Mjósundi.
Bergur
Felixson
frkvstj.
Leikskóla
Rvk.
Felix
Bergsson
leikari.
Páll Einarsson b.
á Loftsstöðum og
söðlasmiður í Rvík
Ingibjörg Páls-
dóttir húsfr. í
Melbæ í Rvík
Páll
Sigurðsson
læknir og fv.
ráðun.stj
Dögg
Pálsdóttir
lögfr.
Guðbjörg Magnúsdóttir
húsfr. í Arnkötludal
Guðmundur Sæmundsson
b. í Arnkötludal,
af Tröllatunguætt
Guðrún J. Guðmundsdóttir
húsfr. á Eyri
Sumarliði Óskar Arinbjörnsson
b. á Eyri í Gufudalshr.
Kristinn Óskarsson
lögreglum. í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Munaðstungu
Arinbjörn Jónsson
b. í Munaðstungu
Guðrún
Pálsdóttir
húsfr. í Rvík
Jón Sig-
urðsson fv.
forstj.Járn-
blendiverk-
smiðjunnar
Kjartan Bjargmunds-
son húsasm. og
leikari í Rvík
Lilja
Sigrún
Jónsdóttir
læknir.
Sigurjón Ólafsson
myndhöggvari
Kristín Hannes-
dóttir húsfr. í
Eystri-Meðalholtum.
Kristín Jóns-
dóttir húsfr.
á Haugi
Gísli Gíslason
verslunarm.
í Rvík
Ingibjörg Sólrún Gísla—
dóttir svæðisstjóri UN
WOMEN og fv. borgarstj.
Einar Hannesson
b. í Ferjunesi í Árnessýslu,
sonur Hannesar Einarssonar
ættföður Kaldaðarnesættar
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2017
Þorbjörg Jónsdóttir fæddist áSauðárkróki 2. janúar 1917.Foreldrar hennar voru Jón
Þ. Björnsson, kennari og skólastjóri
á Sauðárkróki, f. í Háagerði, A-Hún.
1882, d. í Reykjavík 1964, og k.h.
Geirlaug Jóhannesdóttir, f. á Jökli í
Eyjafirði 1892, d. á Sauðárkróki
1932. Jón kvæntist aftur Rósu Stef-
ánsdóttur húsmæðrakennara.
Þorbjörg ólst upp á Sauðárkróki,
lauk gagnfræðaprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1937, lauk
námi við Hjúkrunarkvennaskóla Ís-
lands 1944. Hún stundaði verklegt
framhaldsnám í skurðlækningum
við Landspítalann 1944-45 og bók-
legt og verklegt nám í barnahjúkrun
og öðrum sérgreinum hjúkrunar í
Chicago 1946-47, bóklegt og verk-
legt nám við barnahjúkrun og deild-
arstjórn við háskóla í St. Louis 1947-
48, tók hluta af kennaranámi við
New York University School of
Education en lauk hjúkrunarkenn-
aranámi við Battersea Polytechnic
Department of Hygiene and Public
Health í London í júlí 1953.
Þorbjörg var hjúkrunarkona við
Landspítalann á röntgendeild og lyf-
lækningadeild haustið 1945-46 og
deildarhjúkrunarkona við sjúkra-
húsið á Akureyri hluta árs 1945.
Hún var kennari við Hjúkrunarskóla
Íslands 1948-1953 og skólastjóri
Hjúkrunarskóla Íslands frá 1.1. 1954
til 31.3. 1983, þar af í starfsleyfi
1977-78. Þorbjörg brautskráði alls
54 sinnum, alls 1.477 hjúkrunar-
fræðinga.
Þorbjörg var gerð að heiðurs-
félaga í Hjúkrunarfélagi Íslands
1981. Hún átti sæti í stjórn félagsins
1948-52 og ritari í stjórninni í tvö ár.
Hún var formaður nefndar sem
menntamálaráðherra skipaði 1970,
sem kanna skyldi möguleika á há-
skólanámi í hjúkrunarfræði, var í
ritnefnd Sögu Hjúkrunarskóla Ís-
lands sem út kom 1990. Þorbjörg var
formaður Minningarsjóðs Kristínar
Thoroddsen frá stofnun hans.
Þorbjörg var ókvænt og barnlaus
og lést 14.12. 2005.
Merkir Íslendingar
Þorbjörg
Jónsdóttir
90 ára
Kristveig Björnsdóttir
Sveinbjörg Karlsdóttir
85 ára
Erla B. Bessadóttir
Gunnlaugur Sigurðsson
Inga Hrefna
Sveinbjarnardóttir
Ragnheiður Jónsdóttir
Sævar Guðmundsson
Unnur Baldvinsdóttir
80 ára
Erna Margrét
Jóhannesdóttir
Hlín Kristinsdóttir
75 ára
Árný Herborg Oddsdóttir
Ásdís Guðmundsdóttir
Bergur Jóhann Sverrisson
Hrafnhildur Jónsdóttir
Hrafnhildur Karlsdóttir
Stefanía Erla
Gunnlaugsdóttir
70 ára
Ágústa Waage
Guðleif Sigbjörnsdóttir
Guðmundur Diðriksson
Jón Hilmar Jónsson
Ólafur Sigurðsson
Reynir Bragason
Sigríður Fjóla
Matthíasdóttir
Sigurður Ævar Harðarson
Valgerður Ása
Magnúsdóttir
60 ára
Danuta Wilkowska
Elsa Björk Pétursdóttir
Ingveldur Kr. Friðriksdóttir
Jón Ingi Guðmundsson
Miroslaw Józef Goliniewski
Óli Ragnar Gunnarsson
Sigurbjartur Ágúst
Þorvaldsson
Vilhjálmur Kjartansson
50 ára
Gylfi Magnús Jónasson
Jón Gnarr
Kolbeinn Sverrisson
Miroslawa Bober
Sigurður Snæbjörnsson
Steinar Trausti
Kristjánsson
Unnur Rán Halldórsdóttir
Þórunn Sveinsdóttir
Ægir Þór Gíslason
40 ára
Ása Gróa Jónsdóttir
Davíð Samúelsson
Jóhanna Bjarnadóttir
Jóhanna Kristín Claessen
Vigfús Þórarinn
Ásbjörnsson
30 ára
Einar Jónsson
Eydís Stefanía
Kristjánsdóttir
Íris Mist Magnúsdóttir
Janus Arn Guðmundsson
Jón Ingi Einarsson
Kim Maria Viola Andersson
Kristján Flygenring
Albertsson
Linnet Ríkharðsson
Lúðvík Freyr Sverrisson
Maria C. Ribeiro Morato
Lourenco
Marta Katarzyna
Grabowska
Mattías Arnar Þorgrímsson
Pálína María
Gunnlaugsdóttir
Rebekka Bjarnadóttir
Sigurður Ragnar Arnarsson
Stefan Pawel Koryczan
Þröstur Ingason
Til hamingju með daginn
30 ára Eydís er uppalin í
Njarðvík en býr á Akur-
eyri. Hún er leikskóla-
kennari á Krógabóli.
Maki: Pétur Ingi Kolbeins,
f. 1984, verkstjóri hjá
Mjólkursamlaginu á
Akureyri.
Börn: Aron Emil, f. 2009,
Elvar Breki, f. 2012, og
Emma Karen, f. 2016.
Foreldrar: Kristján Örn
Kristjánsson, f. 1952, d.
2010, og Ólöf Ásta Þor-
steinsdóttir, f. 1963.
Eydís Stefanía
Kristjánsdóttir
30 ára Mattías er Hólm-
ari og hefur búið í
Stykkishólmi mestalla tíð.
Hann er stýrimaður á
ferjunni Baldri.
Maki: Ágústa S. Jóns-
dóttir, f. 1988, sjúkraliði
og nemi í sálfræði við HA.
Foreldrar: Þorgrímur Vil-
bergsson, f. 1964, gagna-
grunnssérfr. hjá Norður-
áli, og Ingveldur Eyþórs-
dóttir, f. 1967, félagsráðgj.
hjá Félags- og skólaþjón-
ustu Snæfellinga.
Mattías Arnar
Þorgrímsson
30 ára Sigurður er úr
Kópavogi en býr í Reykja-
vík. Hann er viðskiptafr. og
sölustjóri hjá Borgar-
bílasölu.
Maki: Guðrún Björk Magn-
úsdóttir, f. 1990, leiðbein-
andi á Ásum í Garðabæ.
Börn: Berglind María, f.
2015.
Foreldrar: Arnar Krist-
jánsson, f. 1964, bús. í
Noregi, og Berglind Sig-
urðardóttir, f. 1963, bús. í
Rvík.
Sigurður Ragn-
ar Arnarsson
þegar þú vilt
kvarts stein
á borðið
Blettaábyrgð
Viðhaldsfrítt yfirborð
Slitsterkt
Bakteríuvörn
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | www.rein.is
By Cosentino