Morgunblaðið - 02.01.2017, Qupperneq 36
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 2. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. „Barnið er í góðum höndum“
2. Tólf voru sæmdir fálkaorðunni
3. Katrínu eða Óttari að kenna?
4. „Pabbi, af hverju ertu að … ?“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á morgun, þriðjudag, kl. 16 verða
fyrstu tónleikar Hannesarholts á
árinu. Jane Ade Sutarjo, píanó- og
fiðluleikari, og Hulda Jónsdóttir
fiðluleikari leika verk eftir B. Bartók,
E. Ysafe og J. Brahms. Hægt er að
nálgast miða á midi.is.
Vetrarljóð í
Hannesarholti
Árlegir swing-
og nýárstónleikar
Stórsveitar
Reykjavíkur verða
í Silfurbergi,
Hörpu, 4. janúar
kl. 20. Fluttar
verða perlur gull-
aldar sveiflunnar
eða swing-tíma-
bilsins; 1930-50. Gestasöngvarar eru
Sigríður Thorlacius og Jón Jónsson
og verður Raggi Bjarna sérstakur
heiðursgestur. Miðar eru á harpa.is.
Gullöld sveifl-
unnar í Hörpu
Fimmtudaginn 5. janúar eru þeir
fyrstu af fernum Vínartónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hefj-
ast þeir kl. 19.30 í Eldborgarsal
Hörpu. Nokkur af
djásnum Johanns
Strauss prýða
efnisskrá fyrstu
tónleika ársins.
Þóra Einarsdóttir
og Bror Magnus
Tødenes syngja
einsöng. Miðar
eru á harpa.is.
Vínartónleikar
Sinfóníunnar
Á þriðjudag Norðvestan 10-15 m/s úti við A-ströndina, en annars
mun hægari. Él NA-til, en annars bjart með köflum. Kólnandi veður
og frost 0 til 8 stig seinni partinn, mildast við S-ströndina.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan 13-23 m/s og súld eða rigning,
hvassast á annesjum N-til og úti við SA-ströndina, en þurrt að kalla
A-til. Hægt hlýnandi veður og hiti 2 til 10 stig, hlýjast A-lands.
VEÐUR
Toppliðin í góðum
gír nema City
„Þótt mér líkaði vel í Danmörku lang-
aði mig til þess að breyta til eftir að
hafa leikið þar í sjö ár, eða allt frá því
að ég lauk menntaskólanámi hér
heima
á Ís-
landi,“
segir blak-
maðurinn Haf-
steinn Valdimars-
son, sem spilar nú í
Austurríki. »4
Með sjálfan forseta landsins, Xi Jin-
ping, í fararbroddi ætla Kínverjar að
verða stórveldi í knattspyrnunni sem
innan tíðar geti bæði haldið HM og
unnið sjálfan heimsmeistaratitilinn.
Tíu ára áætlun Xi forseta, sem var
hrundið af stað árið 2015, gengur út
á að tvöfalda fjármagnið sem knatt-
spyrnan í landinu hefur til umráða. »
2
Ætlar að gera landið
að stórveldi í fótbolta
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Skírnin markar upphaf trúargöngu
hvers manns og að athöfn þessi færi
fram á nýársdag er í því samhengi
um margt afar táknræn,“ segir
Helgi Guðnason, prestur í Hvíta-
sunnukirkjunni Fíladelfíu í Reykja-
vík. „Að fólk skírist til trúar með nið-
urdýfingu er velþekkt í starfi
hvítasunnusafnaða og fleiri mótmæl-
endakirkna víða um veröldina. Ég er
sjálfur skírður með þessum hætti og
hef oft annast svona athafnir. Þó
aldrei úti í sjó og því var þetta nokk-
uð skemmtilegt og hressilegt upphaf
á nýju ári. Hins vegar kom mér á
óvart þar sem ég stóð með sjóinn í
mitti að hann væri ekki kaldari.“
Eins og hjá Jóhannesi
skírara forðum
Það var ósk Andra Sveins Hahl,
sem býr í Þýskalandi og á íslenska
móður, að játa trú sína með dýf-
ingarskírn í Nauthólsvík. Fór sú at-
höfn fram á tólfta tímanum í gær-
morgun, á nýársdag. Andri Sveinn
vildi vera skírður á svipaðan hátt og
Jóhannes skírði Jesú forðum, eins og
segir frá í Biblíunni. Helgi segir at-
höfn þessa hafa vakið talsverða at-
hygli meðal fólks sem statt var við
Nauthólsvíkina í gær, svo sem sjó-
sundkappa sem hafa þann sið að
byrja árið með því að busla á þessum
vinsæla baðstað borgarbúa.
Þess má geta að í kirkju hvíta-
sunnumanna við Hátún í Reykjavík
er sérstök laug til skírna – og athafn-
ir meðal annars baptista og aðvent-
ista eru með líku lagi.
Eins og ferming
í lútherskum sið
Andri Sveinn er þátttakandi í
starfi safnaðar í Þýskalandi sem
starfar eftir sama trúarinntaki og
hvítasunnukirkjan á Íslandi. „Við
bjóðum reglulega upp á skírnar-
athafnir í Fíladelfíu hér heima. Áður
fær fólk sem skírt er ákveðna
fræðslu hjá okkur um þessa athöfn
og inntak hennar, sem er í raun og
veru mjög svipað og fermingin í lúth-
erskum sið. Tvær athafnir í einni, ef
svo mætti segja, og fólk verður líka
að gera þann greinarmun að formleg
skírn í kirkju, eins og við þekkjum
hana, og nafngjafir eru alls ekki það
sama,“ segir Helgi Guðnason, sem
hefur verið þjónandi í hvítasunnu-
kirkjunni í alls níu ár – nú síðast sem
prestur safnaðarins. Frá æsku hefur
hann tekið þátt í starfi safnaðarins,
en margir Helga nákomnir eru þar
virkir. Rösklega 2.000 manns eru í
Hvítasunnukirkjunni á Íslandi.
Niðurdýfing í Nauthólsvík
Hvítasunnu-
prestur skírði í
köldum sjónum
Morgunblaðið/Freyja Gylfa
Athöfn Helgi Guðnason, prestur Fíladelfíu, tók þéttingsfast og örugglega utan um skírnarbarnið Andra Svein Hahl.
Hann hélt fyrir nefið, lét vaða og kom upp úr kafinu eftir örskotsstund og hafði þá staðfest trú sína.
Niðurdýfingarskírn var iðkuð hér á
landi fram á 16. öld, að því er fram
kemur í helgisiðabók Þjóðkirkj-
unnar. Fyrirmæli forðum voru þau
að annaðhvort væri barninu dýft í
vatnið eða vatni ausið með allri
aðgát enda væri þetta gert því til
velferðar.
Að setja barn í kalt skírnarbað
þótti þó orka tvímælis og um-
hyggjusemin er talin ráða því að
niðurdýfing hvarf smám saman úr
skírnarvenju hér á landi. Við þetta
má bæta að niðurdýfingarskírn var
viðhöfð hér við kristnitökuna árið
1000. Hetjur þeirra daga vildu ekki
fara í kalt Þingvallavatnið og voru
því skírðar í Vígðulaug á Laugar-
vatni og í Snorralaug í Borgarfirði,
sem báðar eru heitar.
Hætt var með kalt skírnarbað
NIÐURDÝFING IÐKUÐ UM ALDIR Á ÍSLANDI
Mig langaði til
að breyta til
Chelsea heldur enn sex
stiga forskoti á Liverpool í
toppsæti ensku úrvals-
deildarinnar í knattspyrnu.
Chelsea hélt sigurgöngu
sinni áfram, en liðið vann
13. deildarsigur sinn í röð
með 4:2 sigri á móti Stoke.
Liverpool hafði betur gegn
Manchester City í stórleik
umferðarinnar og Totten-
ham, Arsenal og Manchest-
er United fögnuðu öll sigr-
um í leikjum sínum. »1