Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.12.2016, Síða 45
Listakonurnar JFDR og Gyða Val-
týsdóttir halda tónleika í Gym &
Tonic á Kex Hosteli í kvöld, laug-
ardag. Jófríður Ákadóttir, úr Pascal
Pinon, stendur að baki JFDR. Gyða
hóf ung tónlistarferil sinn með múm
og nam m.a.
við Rimsky-
Korsa-
kov-
tón-
listarhá-
skólann í St.
Pétursborg.
18.12. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
Norse nefnist sýning Odee sem
opnuð hefur verið á Egilsstaða-
flugvelli. Verkin á sýningunni eru
innblásin af austfirskri náttúru og
norrænni goðafræði. Sýningin
stendur til 14. febrúar.
Litir vatns og jarðar nefnist mynd-
listarsýning Olivier Manoury
sem opnuð hefur verið í Hann-
esarholti. Þar sýnir hann vatns-
litamyndir af íslenskri náttúru. Sýn-
ingin stendur til 20. janúar.
Croon & Swoon kemur fram á
Dillon Whiskey Bar í kvöld, á
Gauknum á fimmtudag og í Gamla
bíói á föstudag. Andrea Gylfadóttir
syngur jólalög af gamla skólanum í
djass- og blúsútsetningum.
Breiðfirðingakórinn heldur jóla-
tónleika í Fella- og Hólakirkju á
morgun, sunnudag, kl. 20. Stjórn-
andi er Julian M. Hevlett, meðleik-
ari er Renata Iván og einsöng syng-
ur Alexandra Chernyshova.
„Sérstaða okkar er að bjóða upp á
tónleika þar sem eingöngu eru kerta-
ljós, það eru engin rafmagnsljós hjá
okkur,“ segir Ármann Helgason,
klarínettuleikari og einn sex meðlima
kammerhópsins Cameractica sem
heldur árlega kertaljósatónleika sína
á næstu dögum. Fernir tónleikar
verða haldnir næstu kvöld kl. 21, í
Hafnarfjarðarkirkju 19. desember,
Kópavogskirkju 20. desember,
Garðakirkju 21. desember og loks í
Dómkirkjunni í Reykjavík 22. desem-
ber.
Að sögn Ármanns er efnisskráin
mismunandi eftir árum. „Við sækjum
í fjársjóð Mozarts og spilum þessi
ljúfu og heiðklassísku verk. Sum
frægustu verkanna spilum við
kannski á nokkurra ára fresti en við
bætum alltaf við nýjum verkum
þannig að fólk heyrir stundum eitt-
hvað kunnuglegt en kynnist jafn-
framt nýjum verkum.“
Frá ólíkum æviskeiðum
Í ár verða leikin verk frá ólíkum ævi-
skeiðum tónskáldsins. „Elsta verkið
er samið þegar hann er aðeins 16 ára
gamall, létt og leikandi Divertimento
fyrir strengi. Flautukvartettinn
samdi hann um tvítugt en Klarín-
ettukvartettinn er umritun á verki
sem hann samdi þegar hann var þrí-
tugur. Þá er sálmurinn „Í dag er glatt
í döprum hjörtum“ úr Töfraflautunni
saminn rétt fyrir andlátið en Mozart
lést langt um aldur fram, aðeins 35
ára gamall.
Camerarctica hefur frá upphafi
haldið tónleikana í sömu þremur
kirkjunum en árið 2008 bættist
Garðakirkja við. „Okkur þykir vænt
um allar þessar kirkjur, tengjumst
þeim náið og þykir gott að koma í
þær. Það er fallegur hljómur í þeim
öllum og þetta er einstök stemning,
bara kertaljós og falleg tónlist. Fólk
kemur á tónleikana okkar ár eftir ár.“
Tónleikar Camerarctica eru ómiss-
andi hluti af jólaundirbúningi
margra. „Mozart á svo stóran aðdá-
endahóp og stóran stað í hjörtum
fólks og áheyrendur okkar eru bæði
fólk sem kemur á þessa einu klass-
ísku tónleika á ári og svo fólk sem
stundar klassíska tónleika allt árið.
Tónlistin er svo tær og svo mikil dýpt
í henni. Fólk nýtur léttleikans og un-
aðslegra laglínanna og getur látið
hugann reika inn á við í myrkrinu og
notið kertaljósanna.“
Auk Ármanns skipa hópinn þau
Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari,
Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleik-
ari, Bryndís Pálsdóttir fiðluleikari,
Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og
Sigurður Halldórsson sellóleikari.
„Tónlistin er svo tær og svo mikil dýpt í henni. Fólk nýtur léttleikans og unaðs-
legra laglínanna og getur látið hugann reika inn á við í myrkrinu og notið kerta-
ljósanna,“ segir Ármann um tónleikana Mozart við kertaljós.
„Sækjum í fjár-
sjóð Mozarts“
Í 24 ár hefur kammersveitin Camerarctica boðið
áheyrendum að hlýða á verk eftir Mozart við
kertaljós. Margir koma ár eftir ár til að njóta.
Erla Rún Guðmundsdóttir erlarun@mbl.is
Meistari Wolfang Amadeus Mozart
samdi rúmlega 600 verk á stuttri ævi.
MÆLT MEÐ
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
NÝTT
TIMEOUT DeLuxe
MEĐ INNBYGĐUM
FÓTSKEMLI
kr. 358.400